Fréttablaðið - 14.01.2017, Blaðsíða 88
Menntaskólinn
í Skálholti
Árið 1846 tók Lærði skólinn eða
Latínuskólinn til starfa í Reykjavík
í glænýju húsi, sem þá var stærsta
bygging á Íslandi. Menntaskólinn
í Reykjavík miðar stofnár sitt yfir-
leitt við þessi tímamót, þótt sumir
vilji halda því til haga að skólinn
í Lækjargötu sé í raun framhald af
eldri skólum sem starfræktir voru á
Bessastöðum, Hólavöllum og í Skál-
holti allt frá elleftu öld.
Óhætt er að segja að dönsk yfir-
völd hafi byggt af metnaði yfir skól-
ann í Reykjavík. Húsinu var ætlað að
hýsa allt að hundrað nemendur, sem
talið var ærið nóg til langrar fram-
tíðar, enda tilgangurinn með slíkri
skólastofnun einvörðungu sú að
framleiða embættismenn, einkum
presta, sýslumenn og lækna.
Fólksfjölgun og breytingar á sam-
félagsgerð leiddu með tímanum
til þess að nemendum fjölgaði og
stúlkur fengu jafnvel að setjast á
skólabekk. Áhersla á latínu og grísku
snarminnkaði, en raunvísindi og hin
svokölluðu „yngri tungumál“ (enska,
franska og þýska) urðu fyrirferðar-
meiri á námsskránni. Árið 1904 var
nafninu svo breytt í Hinn almenni
menntaskóli í Reykjavík, sem fljót-
lega var stytt í Menntaskólinn eða
bara MR.
Þrátt fyrir nemendafjölgunina og
fjölbreyttari námsgreinar bar lítið á
umræðum um húsnæðismál skólans.
Reist var bókhlaða sunnan við skóla-
húsið og lítið íþróttahús þar fyrir
aftan. Að öðru leyti sættu kennarar
og nemendur sig við gamla húsið,
enda mörg önnur brýnni verkefni í
samfélaginu.
Það var fyrst í tíð Jónasar Jóns-
sonar frá Hriflu sem ráðherra
menntamála að farið var að huga
að húsakosti MR. Jónasi var löngum
legið á hálsi fyrir að vera andsnúinn
stofnunum í Reykjavík, en hann lét
þó sinna brýnu viðhaldi. Jafnframt
beitti hann sér fyrir því að heimavist
yrði á ný komið fyrir í skólahúsinu
og var það í samræmi við þá stefnu
hans að skólinn skyldi aðgengi-
legur efnilegum sveitapiltum en ekki
verða reykvískur elítuskóli borgara-
stéttarinnar.
Það kom líka í hlut Hriflu-Jónasar
að skipa nýjan rektor Menntaskól-
ans. Úr ýmsum reynslumiklum kenn-
urum skólans var að velja, en Jónas
hafði annað í hyggju. Hann sótti til
starfans ungan náttúrufræðikennara
úr Gagnfræðaskólanum á Akureyri,
sem var um þær mundir að fá leyfi til
að útskrifa stúdenta. Rektorinn nýi,
Pálmi Hannesson, var rétt um þrí-
tugt. Hann hafði verið hallur undir
jafnaðarstefnu en gerðist nú dyggur
Framsóknarmaður og sat síðar á
þingi og í bæjarstjórn fyrir flokkinn.
Siðspilling á mölinni
Það kom snemma í ljós að sýn Pálma
rektors á skólastarfið var um margt
önnur og ferskari en þeirra sem þar
höfðu starfað í áratugi. Hann var
frjálsari af ýmsum hefðum og óflekk-
aður af gildismati reykvískra brodd-
borgara. Raunar hafði rektorinn ungi
talsverðar efasemdir um hversu heil-
brigt samfélagið væri á mölinni.
Í ræðum rektors komu ítrekað
fram áhyggjur af drykkjuskap nem-
enda, tóbaksreykingum, slæpings-
skap og innihaldsrýru tómstunda-
lífi. Að hans mati fullorðnuðust
ungmenni of hratt, fengu ekki að
njóta æskuáranna en tileinkuðu
sér snemma ósiði þéttbýlisins. Var
sú sýn í fullu samræmi við afstöðu
Hriflu-Jónasar sem kappkostaði að
byggja upp net héraðsskóla til sveita
þar sem ungmenni gætu numið í
guðsgrænni náttúrunni, laus úr soll-
inum.
Á fjórða áratugnum, í heimskrepp-
unni miðri, komu Menntskælingar
sér upp afdrepi í Reykjadal inn af
Hveragerði. Selið, eins og skálinn var
fljótlega nefndur, varð vettvangur
ótal skemmtiferða stúdenta og efldi
þannig skólaandann. Rektor taldi
þetta hins vegar bara fyrsta skrefið
og óskaði eftir stærra landi frá rík-
inu með það fyrir augum að skólinn
starfrækti sitt eigið bú með hvers
kyns landbúnaðarframleiðslu. Með
tíð og tíma yrðu sveitastörfin svo
hluti af námsskrá skólans og nem-
endur dveldu þar mun lengur en
bara eina og eina helgi.
Búskapardraumar rektors virtust
hálfgerðir loftkastalar, þar til atburð-
ir í alþjóðamálum beindu kastljósinu
að húsnæðismálum skólans. Ísland
var hernumið af Bretum vorið 1940
og fljótlega var skólahúsið gamla
tekið í þjónustu stríðsrekstursins.
Næstu tvö árin var MR að mestu
starfræktur í glænýrri aðalbyggingu
Háskólans.
Óvissan um hvort og hvenær Bret-
arnir létu skólabygginguna aftur af
hendi og samanburðurinn við nýtt
og fullkomið háskólahúsið kom af
stað umræðum um framtíðarað-
stöðu skólans. Í fyrsta sinn var farið
að tala á þeim nótum að gamli skól-
inn væri óhentugur og úreltur.
Jónas Jónsson var með frumlega
lausn á málinu. Hann skrifaði hug-
vekju í Tímann og lagði til að mis-
tökin frá árinu 1786 yrðu leiðrétt,
en þá var Skálholtsskóli fyrst fluttur
til Reykjavíkur eftir að öll skólahúsin
hrundu í Suðurlandsskjálftanum
tveimur árum fyrr. Skömmu síðar
gerði Pálmi rektor hugmyndina að
sinni. Með því að flytja Menntaskól-
ann í Skálholt mætti hrinda í fram-
kvæmd draumnum um stórfelldan
búrekstur samhliða skólastarfinu.
Á nýja staðnum myndu allir nem-
endur búa á heimavist, sem myndi
efla skólaandann og þroska skóla-
piltana – sem yrðu vel að merkja
allt piltar, því á nýja staðnum yrðu
engar stúlkur en Kvennaskólanum
í Reykjavík þess í stað heimilað að
útskrifa stúdenta.
Ekki var þessari hugmynd Fram-
sóknarmannanna tekið með neinum
húrrahrópum af stúdentum og kenn-
araliði. Bentu ýmsir á að hvað sem
sveitarómantík liði, væri Skálholt
afleitur staður fyrir framhaldsskóla,
enda bæði afskekktur og öfugt við
héraðsskólana byði staðsetningin
ekki upp á nýtingu jarðhita eða
greiðan aðgang að raforku.
En boltinn var farinn að rúlla og
skyndilega virtist samstaða um að
úrbóta væri þörf í húsnæðismálum
Menntaskólans. Var hart tekist á um
málið á næstu árum. Heimir Þor-
leifsson rakti þá sögu vel í verki sínu
Sögu Reykjavíkurskóla og er einkum
stuðst við frásögn hans í þessari
grein.
Einn skóli eða fleiri?
Ný fræðslulöggjöf var tekin upp árið
1946 með landsprófi. Menntaskól-
inn var þar með styttur úr sex árum í
fjögur, en fljótlega varð ljóst að fjölg-
un nemenda í framhaldsnámi yrði
meiri en sem næmi styttingunni.
Rektor og ráðherra menntamála,
sósíalistinn Brynjólfur Bjarnason,
voru sammála um að alltof dýrt yrði
að kaupa upp hús í námunda við MR
til stækkunar. Betra væri að byggja af
metnaði þar sem plássið væri nægi-
legt.
Í þessu skyni festi Nýsköpunar-
stjórnin kaup á landi Laugarness og
skyldi skólahúsinu fundinn staður
rétt norðan við núverandi húsnæði
Listaháskólans. Á svipuðum slóðum
hafði Sjómannadagsráð hug á að
koma fyrir Dvalarheimili aldraðra
sjómanna og gerði skipulagsstjóri
ráð fyrir framtíðarstað bæjarsjúkra-
húss Reykvíkinga á svæðinu.
Um sama leyti voru settar fram
hugmyndir um skólabyggingar
á Golfskálahæð, á sömu slóðum
og höfuðstöðvar Veðurstofunnar
standa í dag. Þær teikningar gerðu
ráð fyrir gríðarmiklu íþrótta-
svæði í tengslum við skólann, enda
horfðu íslenskir skólamenn um
þessar mundir mikið til bandarískra
háskóla sem fyrirmynda og þeirrar
íþróttaáherslu sem þar ríkti.
Nýsköpunarstjórnin var fram-
kvæmdaglöð með eindæmum en
vannst ekki tími til að hefjast handa
við smíði nýja skólans. Árið 1947
tók við ríkisstjórn Stefáns Jóhanns
Stefánssonar sem reyndist mun
aðhaldssamari. Gilti það ekki hvað
síst um menntamálaráðherrann
Eystein Jónsson sem taldi ódýrara
að byggja í smærri skrefum innan
gamla Menntaskólareitsins. Ekki
skorti arkitektana þó metnaðinn
þar heldur og til er stórkarlaleg hug-
mynd frá Einari Sveinssyni, húsa-
meistara Reykjavíkurbæjar. Hún
gerði ráð fyrir að gamla skólahúsið
yrði fært úr stað og látið liggja með-
fram Bókhlöðustíg, bókhlöðunni
gömlu yrði hins vegar komið fyrir
við Amtmannsstíginn en á grunni
gamla skólans risi sex hæða ferlíki.
Myndi það húsnæði duga mennt-
skælingum höfuðborgarinnar til
langrar framtíðar. Féllu hugmyndir
af þessu tagi vel í geð hjá stúdentum
og kennaraliði sem vildu halda
skólanum miðsvæðis og á fornum
slóðum.
Enn varð stefnubreyting í málinu
með stjórnarskiptum árið 1949.
Björn Ólafsson, sem tók við ráðu-
neyti kennslumála, reyndist sam-
mála rektor um skynsemi þess að
flytja skólann. Þrýsti ríkið á um
það að Reykjavíkurbær legði til
landspildu, helst á Klambratúni en
til vara á Skildinganesmelum, þar
sem Hjónagarðar háskólastúdenta
standa nú.
Niðurstaðan, eftir nokkurt stapp,
varð á árinu 1953 sú að nýr MR skyldi
rísa í Hlíðahverfi, nánar tiltekið við
Hamrahlíð. Teiknað var gríðarstórt
skólahúsnæði ásamt heimavistum,
íþróttasvæði, sundlaug og grasagarði.
Þá var gert ráð fyrir rektorsbústað
syðst á lóðinni.
Rektorsbústaðurinn var þó eina
mannvirkið sem reis samkvæmt
þessum teikningum. Gegnir það í
dag hlutverki skátaheimilis fyrir
Hlíðarnar. Enn ein stjórnarskiptin
komu í veg fyrir að draumur Pálma
Hannessonar rættist. Bjarni Bene-
diktsson tók við sem menntamála-
ráðherra, en hann var andsnúinn
flutningum.
Hinn nýi ráðherra leitaði álits
kennarafundar á því á hvorum
staðnum skólinn skyldi vera. Kenn-
ararnir völdu Lækjargötu og fól sú
ákvörðun jafnframt í sér að einn
eða fleiri nýir menntaskólar yrðu á
næstu árum stofnaðir í Reykjavík,
fyrst MH og því næst Menntaskól-
inn við Tjörnina. Hefði vafalaust
margt þróast á annan veg ef þessar
stofnanir hefðu myndað saman einn
risaskóla í Reykjavík.
Rektor reyndi sitt besta til að
telja kennaraliðinu hughvarf. Hann
óttaðist að loforð um miklar nýbygg-
ingar á gamla MR-reitnum reyndust
lítils virði og skólinn myndi búa við
þrengsli næstu áratugina. Sú spá átti
líka eftir að rætast.
drykkjuskap
nemenda,
tóbaksreykingum,
slæpingsskap og
innihaldsrýru
tómstundalífi.
1 4 . j a n ú a r 2 0 1 7 L a U G a r D a G U r36 h e L G i n ∙ F r É T T a B L a ð i ð
saga
til næsta
bæjar
stefán pálsson skrifar
um frumlegar hug-
myndir í skólamálum.
1
4
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
F
2
-3
8
7
4
1
B
F
2
-3
7
3
8
1
B
F
2
-3
5
F
C
1
B
F
2
-3
4
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
1
2
s
_
1
3
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K