Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2016, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.4. 2016
Kínversk
stjórnvöld hafa
svipt lögmann-
inn Pu Zhi-
qiang, sem get-
ið hefur sér orð
fyrir störf í
þágu mannréttinda í Kína,
málflutningsleyfi.
Pu greindi frá þessu á
félagsvef á fimmtudag og
sagði að dómur gegn sér í
desember fyrir að gagnrýna
kínverska kommúnistaflokk-
inn á netinu hefði verið gefinn
sem ástæða.
Um 200 lögmenn og aðger-
ðasinnar í dómsmálum hafa
verið hnepptir í varðhald eða
kallaðir til yfirheyrslu í Kína
síðan í fyrrasumar. Pu er und-
ir stöðugu eftirliti.
Kínversk stjórnvöld birtu áfimmtudag harkalega gagn-rýni á stöðu mannréttinda í
Bandaríkjunum og fordæmdu
Bandaríkjamenn fyrir ofbeldi lög-
reglu og mannréttindabrot. Gagn-
rýnin birtist daginn eftir að banda-
ríska utanríkisráðuneytið birti árlega
skýrslu sína um mannréttindi í heim-
inum þar sem kínversk stjórnvöld
voru gagnrýnd fyrir mannréttinda-
brot. Kínverjar hafa um árabil svarað
bandarísku skýrslunni með þessum
hætti og sagt að önnur ríki ættu ekki
að tjá sig um kínversk innanríkismál.
Í bandarísku skýrslunni segir að
færst hafi í vöxt á liðnu ári að þeir
sem berjast fyrir mannréttindum og
pólitískum réttindum í Kína séu beitt-
ir kúgun og þvingunum og er sér-
staklega bent á harðar aðgerðir gegn
lögmönnum sem verja almenna borg-
ara í viðkvæmum málum.
Tígrisdýr og flugur
Í Kína hafa undanfarna áratugi
skipst á tímabil umburðarlyndis og
hörku. Eftir að Xi Jinping komst til
valda virðist hins vegar hafa orðið
mun afdráttarlausari breyting. Leið-
togadýrkun fer vaxandi og fjölmiðlar
dásama góðvild „Xis frænda“. Rit-
skoðun hefur færst verulega í aukana
og talað er um að Xi hafi yfir að ráða
umfangsmestu leynilögreglu heims. Í
grein á vefsíðu tímaritsins New York
Review of Books skrifar Orville
Schell, sérfræðingur um málefni
Kína, að orðið hafi grundvallarbreyt-
ing í hugmyndafræði og stjórnar-
háttum, sem farin sé að hafa áhrif
bæði á umbótastefnu stjórnvalda og
samskiptin við útlönd.
Xi hleypti af stokkunum áhlaupi
gegn spillingu þegar hann tók við
völdum. Uppræta skyldi spillingu og
hreinsa úr flokknum „tígrisdýr og
flugur“. Þar var átt við spillta emb-
ættismenn og kaupsýslumenn hátt og
lágt. Síðan herferðin hófst 2012 hafa
rúmlega 160 „tígrisdýr“ verið hand-
sömuð og 1.400 „flugur“.
Spilling er landlæg í Kína. Kaup
embættismanna er lágt og freistingin
mikil fyrir þá, sem til dæmis veita
leyfi til framkvæmda, að maka krók-
inn.
Herferðin hefur hins vegar tekið
breytingum frá því hún hófst. Schell
rekur í grein sinni hvernig hún nær
nú til pólitískra keppinauta Xis og
annarra sem hafa aðrar hugmynda-
fræðilegar eða pólitískar skoðanir.
Hann talar um fjöldahreinsanir og
kallar þær nýmaóisma.
Eftirlit með borgurunum hefur
verið snaraukið og umsvif öryggis- og
leynilögreglu aukin. Vaxandi þrýst-
ingur er á fjölmiðla og alla þá sem
dreifa fréttum og upplýsingum að
þjóna hlutverki gjallarhorns fyrir
boðskap kommúnistaflokksins. Rit-
stjórum er sagt um hvað þeir eigi að
fjalla og hvað ekki. Frelsi til umfjöll-
unar hefur verið stórlega skert og
leiðtogadýrkun fer vaxandi.
Þeir sem ekki hlýða fá að kenna á
því. Schell rekur að í ágúst hafi við-
skiptablaðamaður vikublaðsins Caij-
ing verið hnepptur í varðhald eftir að
hafa fjallað um það hvernig stjórn-
völd handstýra hlutabréfamörkuðum
landsins og neyddur til að afneita eig-
in umfjöllun með auðmýkjandi hætti í
kínversku ríkissjónvarpsstöðinni
CCTV.
Fjölmiðlar skulu auðsveipir
„Allir fjölmiðlar sem flokkurinn rek-
ur verða að vinna og tala í þágu
flokksviljans og tillagna hans og verja
vald flokksins og einingu,“ sagði Xi í
ávarpi þegar hann heimsótti Nýju
kínversku fréttastofuna, Dagblað al-
þýðunnar og CCTV.
Það er sennilega í þeim anda að í
kínverskum fjölmiðlum hefur hvergi
verið minnst á fréttaflutning um að
ýmsir úr nánustu fjölskyldu Xis komi
fyrir í Panamaskjölunum, fremur en
fyrri umfjöllun fjölmiðla á borð við
The New York Times um auðsöfnun
Xis og fjölskyldu hans.
Átakið er ekki bundið við fjölmiðla.
Mörg hundruð krossar hafa verið
rifnir niður af kirkjuturnum og
kirkjur jafnvel jafnaðar við jörðu.
Prestar eru handteknir og lögmenn
þeirra settir í gæsluvarðhald og
þvingaðir til að játa glöp sín opinber-
lega. Óháð, sjálfstætt starfandi sam-
tök hafa verið vöruð við því að starfa
með sambærilegum erlendum sam-
tökum og að bjóða stjórninni byrginn.
Herferðinni stýrir Miðstjórn aga-
eftirlits. Í grein Schells kemur fram
að mikil leynd hafi löngum hvílt yfir
stofnun þessari og ótti gagnvart
henni. Verkefni hennar er að halda
uppi aga innan flokksins. Xi hefur
gefið henni aukið vægi og sett yfir
hana Wang Qishan, aðstoðarforsætis-
ráðherra og félaga í stjórnmálaráð-
inu. Wang er gamall félagi frá því Xi á
yngri árum var sendur í endur-
menntun úti í sveit.
Wang var háttsettur í fjármálum og
viðskiptum í tíð Hu Jintaos og vann þá
náið með Henry Paulson, þáverandi
fjármálaráðherra Bandaríkjanna. Á
þeim tímum var þíða í samskiptum
Bandaríkjanna og Kína. Nú er öldin
önnur. Undir stjórn Xis er hörku beitt
heima fyrir og ágengni út á við.
„Xi frændi“
hreinsar til
Í Kína stendur yfir herferð gegn spillingu. Um
leið hefur verið látið til skarar skríða gegn póli-
tískum keppinautum ráðamanna og andófi.
AFP
Xi Jinping, forseti Kína, og einn hans nánasti samstarfsmaður, Wang Quishan, ganga af stjórnmálaráðstefnu kínverska
kommúnistaflokksins í mars. Wang stýrir svokallaðri Miðstjórn agaeftirlits og stýrir herferðinni gegn spillingu.
Pu Zhiqiang
Lögmaður
sviptur leyfi
’
Kommúnismi er ekki ást. Kommúnismi er hamar, sem við
notum til að mölva óvininn.
Maó Tsetung
ERLENT
KARL BLÖNDAL
kbl@mbl.is
BANDARÍKIN
LOS ANGELES Kobe
Bryant skoraði 60 stig þegar
hann lék sinn síðasta leik
sögunnar, lék
með Los Angeles Lakers í 20
ár og vann fimm meistaratitla.
Miðar í fremstu röð á
lokaleik hans munu hafa
kostað rúmar þrjár milljónir
króna á svörtum markaði.
Þegar félagar hans helltu yfir
hann kampavíni eftir leikinn
fannst honum of langt gengið.
Slíkt væri aðeins gert til að
fagna meistaratitlum. Lakers
var neðsta liðið í vesturdeild
NBA eftir tímabilið.
ÞÝSKALAND
BERLÍN Rúmlega 900 lögreglumenn, skatteftirlitsmenn og
tollverðir réðust inn í stærsta vændishúsið í Berlín og fundu
þar fyrir 117 vændiskonur og 100 viðskiptavini þeirra. Sex
voru handteknir.Vændi er löglegt í Þýskalandi, en yfirvöld
höfðu upplýsingar um að konur sættu þar skelfilegri meðferð.
GlæpasamtökinVítisenglar eru sögð hafa útvegað konur frá Austur-Evrópu og
víðar. Þeir sem voru handteknir verða ákærðir fyrir vanskil á lífeyrisgreiðslum og
skattalagabrot „eins og Al Capone“, svo vitnað sé í einn rannsakenda málsins.
KENÍA
NAÍRÓBÍ Kvikmyndaeftirlitið í Kenía
bannað auglýsingu frá gosdrykkjaframleiðandanu
Coca-Cola af velsæmisástæðum. Í auglýsingunni
sést par kyssast af ástríðu á bókasafni í nokkrar
sekúndur. Sagði formaður eftirlitsins að auglýsingin
tríddi gegn fjölskyldugildum“„s .
Bætti hann við að Coca-Cola
hefði samþykkt að breytt
útgáfa af auglýsingunni yrði
sýnd í Kenía.
NORÐUR-KÓREA
PYONGYANG Eitthvað fór
úrskeiðis þegar stjórnvöld í
Norður-Kóreu skutu á loft
ldflaug af gerðinni Musudan íe
askyni 15. apríl. Skeytiðtilraun
hvarf af ratstjám skömmu
eftir skotið og er talið að
það hafi sprungið. Flugskeytið
getur borið kjarnorkuvopn og
er hermt að það drífi alla leið
til Kyrrahafseyjarinnar Gvam
þar sem Bandaríkjamenn
eru með herstöð. Skeytinu
var skotið upp á afmælisdegi
Kims Il-Sungs, fyrrverandi
leiðtoga
Norður-
og afa
núverandi
leiðtoga, Kims Jong-Uns.
Afmælinu er ávallt fagnað
með stórbrotnum hætti.