Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2016, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2016, Blaðsíða 40
Microsoft sýndi hvernig væri að steypa saman spjaldtölvu og fartölvuá smekklegan hátt með Surface-línu sinni, þar sem lyklaborði ersmellt á spjaldtölvuna og hún þá orðin að fartölvu. Fleiri hafa sleg- ist í hópinn, til að mynda Lenovo sem kynnti á dögunum ThinkPad X1 Tablet. Við fyrstu sýn er tölvan spjaldtölva í stærri kantinum, enda er skjárinn 12", en svo tekur maður uppúr kassanum lyklaborð og þegar því er smellt á hana breytist hún mjög í netta fartölvu og næfurþunnt lyklaborðið virkar mjög vel. Það er líka forvitnilegt hvernig Lenovo sér fyrir sér að maður geti keypt allskyns viðbætur til að auka notagildi hennar. Þannig verður fáanleg sérstök skjávarpaviðbót, en það er eining sem smellt er neðan á tölvuna, þar sem lyklaboðið annars er, og þá er hægt að nota hana sem skjávarpa við kynn- ingu, eða ámóta. Líklegt þykir mér að viðkomandi eining sé ekki í samkeppni við fullvaxinn skjávarpa, en notagildið er ótvírætt, eins og ég kynntist þegar ég fékk til prófunar Yoga Tab 2 Pro fyrir allnokkru, en í þeirri vél er innbyggður einskonar skjávarpi. Rétt að geta þess að á skjávarpaeiningunni er HDMI-tengi til að deila efni, nú eða taka við myndstraumi. Önnur viðbót er síðan með viðbótarrafhlöðu og fleiri tengjum, bætir við fimm tíma rafhlöðuendingu til viðbótar USB 3.0 tengjum, HDMI í fullri stærð og OneLink+ dokku. Enn má nefna viðbót sem ætluð er til að taka þrívíðar myndir með Intel RealSense-myndavél, en það er í raun þreföld myndavél, ein linsa til að fanga sýnilegt ljós, ein til að taka innrauðar myndir á sama tíma og svo innrauður leysir sem greinir fjarlægð og hreyfingu. Skjárinn er mög fínn, 2160 x 1440 díla, eða 2K, IPS snertiskjár. Felld inn í bakið á honum er málmplata sem hægt er að smella fram og nota sem stand, hvort sem maður er með lykla- borðið áfast eða ekki. Á bak við standinn er svo rauf fyrir microSD minnis- kort og því hægt að auka gagnaminni umtalsvert – sem stendur eru stærstu microSD-kortin 512 GB (microsSD tæknin býður mest upp á 2 TB). Vélinni fylgir sérstakur „penni“ sem hægt er að nota til að teikna á skjáinn eða skrifa, og eins til að ræsa forrit. Spjaldið, sem breytist í stand, er stillanlegt að því leyti að það er svo stíft að það helst nánast í hvaða stellingu sem er. Þannig er til að mynda hægt að stilla skjáhallann þegar vélin er notuð sem fartölva, þ.e. með lyklaborðið áfast, sem getur komið sér vel. Á henni er eitt USB 3.0-tengi, eitt USB C straumtengi og svo Mini DisplayPort. Sem spjaldtölva er hún ekki beinlínis létt, en nett engu að síður. Skjárinn er 12" og hún er 8,4 mm að þykkt og 800 g. Þegar lyklaborðið er komið á hana fer hún yfir kílóið – 1,1 kíló en lyklaborðið bætir ekki ýkja miklu við þykktina, 4,6 mm. Örgjörvinn í vélinni sem ég skoðaði er 1,51 GHz Intel Core m5-6Y57 (Sky- lake-örgjörvi). Minni í henni er 8 GB, getur mest verið 16 GB, og í henni 250 GB SSD-diskur. 64 bita Windows 10 fylgir. Hægt verður að fá hana með allt að Intel Core m7-örgjörva og 512 GB SSD-disk. Myndavélin á framhlið er 2 MP, en 8 MP á bakhlið og með flassi. Rafhlaðan er tíu tíma, að sögn Lenovo. ’Við fyrstu sýn er tölvanspjaldtölva í stærri kant-inum, enda er skjárinn 12",en svo tekur maður upp úr kassanum lyklaborð og þeg- ar því er smellt á hana breytist hún mjög í netta fartölvu og næfurþunnt lyklaborðið virkar mjög vel. Eins góðar og spjaldtölvur annars eru til flestra verka kemur iðulega fyrir að mann langar – eða maður þarf – að komast í vél með lyklaborði. Hvað með að fá sér spjaldtölvu með lyklaborði? Nett farspjaldtölva með næfurþunnt lyklaborð Græjan Árni Matthíasson arnim@mbl.is TÆKNI 40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.4. 2016 Bandaríska fyrirtækið Kuvee segist hafa búið til fyrstu snjallflöskuna. Sérstök tækni á að gera það að verkum að borðvín sem sett er í flöskuna heldur gæðum sínum í mánuð eftir að hún er opnuð. Snjallflaska komin fram Eðalfiskur ehf • Sólbakka 4 • 310 Borgarnesi • S. 437 1680 • sala@edalfiskur.is • www.edalfiskur.is Reyktur og grafinn Eðallax fyrir ljúfar stundir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.