Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2016, Blaðsíða 31
Lúka af döðlum
lúka af fersku kóríander
1 hvítlauksgeiri
2-3 msk fetaostur í olíu
1 msk hunang
hálfur rauður chilli með fræjum
1 msk grísk jógúrt
Setjið allt í matvinnsluvél og maukið.
Berið fram með brauðinu.
Döðluchutney
17.4. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31
Fyrir 8-10 manns
3 msk olía
2 litlir laukar, smátt saxaðir
2 paprikur, skornar í litla bita
2 gulrætur, skornar í litla bita
2 sellerístilkar, skornir í litla bita
4 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir
2 msk engiferrót, smátt söxuð
(gott er að setja grænmetið hér að ofan í mat-
vinnsluvél og sleppa við að saxa)
dass af karrý madras (eftir smekk)
3 msk mild curry paste (best frá Pataks)
1 tsk sjávarsalt
1 tsk pipar
800 ml vatn
2 dósir kókosmjólk
800 ml rjómi
2 fiskiteningar
2 msk fiskisósa
Steikið grænmetið upp úr olíunni og bætið karrý,
curry paste, salti og pipar saman við. Bætið því
næst vatni, kókosmjólk, rjóma, teningum og fiski-
sósu saman við og náið suðu.
Til að þykkja súpuna aðeins er gott að búa til
smjörbollu og setja út í. Þá er smjör og fínt spelt
hrært saman í potti þannig að úr verður lítil bolla.
30 g smjör
30 g fínt spelt
Bætið smjörbollunni smátt og smátt í súpuna
meðan hún sýður á vægum hita (smjörbollunni
má sleppa ef fólk vill síður nota mjöl í súpuna).
2 avókadó, skorið í litla bita (má ekki vera óþroskað
því þá kemur vont bragð af því)
3 lime, kreist vel
3 msk kóriander
Þegar súpan er búin að sjóða í 5-10 mín má bæta
avókadó, lime og kóríander við hana og smakka
hana til og kannski bæta smá salti við hana.
Og svo er það auðvitað fiskurinn! Gott er að
nota bleikju, þorsk og humar og mæli ég með
100-150 g á mann eftir því hversu matarmikil hún
á að vera. Skolið fiskinn vel og látið leka vel af
honum. Setjið hann út í sjóðheita súpuna og látið
hann eldast þar í smá stund. Berið fram með
góðu brauði.
Besta fiskisúpan
1 lúka spínat
2 bananar
1-2 epli (eftir því hversu stór þau
eru og notið kjarnann því þar er
mikið að B-vítamínum)
hálfur dl kókosmjöl
1 dl kasjúhnetur
6 döðlur
350-400 ml vatn
350-400 ml góður appelsínudjús
smá klaki
Setjið allt í blandara og mixið
þar til hann er fallega grænn.
(Halla María notar Vitamix
blandara en það gæti verið gott
að gera helmingi minni upp-
skrift í kraftminni blandara).
Arna stjarna (búst)