Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2016, Síða 8
STEPHEN CURRY Einn besti körfuboltaleikmaður heims um þessar mund-
ir, ef ekki sá besti, lætur ekki mikið yfir sér. Hann er hvorki þrútinn af vöðv-
um né gnæfir yfir keppinautana. Það væri of langt gengið að segja að hann
væri væskilslegur að sjá, hann virkar einfaldlega venjulegur. Engu að síður
virðist hann geta prjónað sig að vild í gegnum varnir andstæðinganna og
aldrei hefur önnur eins þriggja stiga skytta spilað í bandaríska körfubolt-
anum. Sumir segja að hann sé besta skytta allra tíma.
Stephen Curry hefur átt stjörnutímabil og lið hans, Golden State Warri-
ors, hefur verið með eindæmum sigursælt. Síðasta umferð fyrir úrslita-
keppni var leikin á miðvikudag og með sigri sínum á Memphis Grizzlies setti
liðið met sem seint verður slegið. Á tímabilinu sigraði liðið í 73 leikjum og
tapaði aðeins níu. Gamla metið settu Michael Jordan og félagar í Chicago
Bulls þegar þeir sigruðu í 72 leikjum og töpuðu 10 tímabilið 1995-1996.
Sú var tíðin að lið Golden State var haft í flimtingum. Þegar Curry kom til
Golden State árið 2009 – hann var valinn sjöundi í leik-
mannavalinu – hafði liðið ekki komist í úrslitakeppnina
síðan 1995 og það breyttist ekki fyrstu þrjú árin hans í
deildinni.
Nú er öldin önnur. Golden State varð meistari í fyrra
og Curry var valinn mikilvægasti leikmaður úrslita-
keppninnar. Liðið hefur leikið enn betur í ár og virðist
óstöðvandi. Óhjákvæmilegt var að liðið yrði borið saman
við lið Chicago Bulls fyrir 20 árum eftir sigurgönguna í
vetur. Til þess að standast þann samanburð dugir Curry
og félögum ekkert minna en meistaratitill. Þar hjálpar
til að Steve Kerr, þjálfari Golden State, var leikmaður
Bulls þegar liðið sló metið og varð meistari á sínum tíma.
Reynsla hans segir til sín. Eltingaleikurinn við metið
hefur hins vegar gert það að verkum að mikið álag hefur
verið á lykilleikmönnum, sem ella hefðu verið látnir hvíla
til að safna kröftum fyrir úrslitakeppnina. Hvort það
mun há Curry og liðsfélögum hans þegar á hólminn er
komið er óráðið en árangurinn í vetur verður ekki tekinn
frá þeim. kbl@mbl.is
Í PRÓFÍL
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.4. 2016
EINS OG FARSÓTT Þriggja stiga skotið er aðals-
merki Stephs Currys. 2014 bætti hann metið í skor-
uðum þristum í fyrsta skipti, sló það aftur í fyrra og
stórbætti það í ár. Á þessu tímabili setti hann 402
þriggja stiga skot. Í fyrra skoraði hann úr 286 skotum.
Flestir dást að skotfimi hans, en öðrum þykir nóg
um og segja að þristarnir séu að eyðileggja leikinn.
„Það sem byrjaði sem kláði breyttist í útbrot, varð
að sjúkdómi og er nú farsótt,“ skrifaði dálkahöfund-
urinn Bernie Lincicome í Chicago Tribune fyrir mán-
uði. „Við skulum bara nefna nafnið. Stephen Curry.“
Lincicome segir að þriggja stiga skotið hafi verið
búið til fyrir þá, sem gátu ekki stækkað nógu mikið,
voru ekki nógu flinkir að drippla, gátu ekki keyrt af
nægum krafti að körfunni eða voru ekki nógu fljótir.
Nú sé ekki lengur neitt sérstakt við að hitta af löngu
færi. Körfuboltinn hafi lifað af ýmis skeið, tíma Jor-
dans, Wilts og Dr. J, en tími Currys sé minnst spenn-
andi, sama hvað oft sé rakið í andakt hvað hann hitti
úr mörgum þriggja stiga skotum á kvöldi.
Ófá myndskeið af Curry að hita upp fyrir leiki með tvo
bolta hafa verið sett á vefsíðuna YouTube og aðrar slíkar.
AFP
Vændur um að gera
íþróttina leiðinlegri
LISTDANS Steph Curry er tign-
arlegur á velli og allt sem hann
gerir virðist áreynslulaust. Dag-
blaðið The New York Times
fjallaði í nóvember um hina list-
rænu hlið á leik Currys og sagði
hann líkan ballettdansara.
„Þegar ég horfi á Steph tek ég
helst eftir ótrúlegri samhæfingu
handa, fóta og hvernig hann fer
með boltann,“ sagði Taras Do-
mitro, aðaldansari hjá ballett
Helga Tómassonar í San Franc-
isco, í viðtali við blaðið. „Við not-
um ekki bolta, við erum með
konu. En hann rekur boltann eins
og við höndlum konu á sviðinu.“
Listræna
hliðin
Curry hefur sig á loft til að taka skot í leik gegn
Minnesota Timberwolves í byrjun apríl.
EPLIÐ OG EIKIN Stephen Curry
fæddist í Akron í Ohio 14. mars 1988.
Hann vakti fljótlega athygli fyrir
körfuboltahæfileika sína og blómstraði
með liði Davidson-háskóla. Hann byrj-
aði að leika með Golden State 2009.
Curry á ekki langt að sækja áhugann
á körfubolta.
Faðir hans, Dell Curry, spilaði í NBA í
16 ár, lengstum með Charlotte Hornets
þar sem hann lýsir nú leikjum í sjón-
varpi. Hann var afbragðs þriggja stiga
skytta, þótt sonurinn sé föðurbetrungur.
Dell Curry er stigahæsti leikmaður Char-
lotte frá því liðið var stofnað.
Steph Curry á tvö systkini. Yngri bróðir
hans, Seth, leikur einnig í NBA, spilar fyrir
Sacramento Kings. Systir hans, Sydel, leikur
blak í háskóla. Bræðurnir fóru iðulega á æf-
ingar með föður sínum og æfðu sig að skjóta
bolta á körfu.
Stephen Curry spjallar við Dell Curry,
föður sinn eftir leik við Atlanta í febrúar.
AFP
Körfubolti
í blóðinu
Besta skytta
allra tíma?
Stephen Curry gerir sig
líklegan til að senda
boltann í leik við Los
Angeles Clippers.
AFP
’ Curry virðistgeta prjónaðsig að vild í gegn-um varnir and-
stæðinganna.
Curry fylgist með hnefaleikum ásamt Ayesha,
konu sinni, í Oakland í mars.
Stephen Curry og Serge Ibaka,
leikmaður Oklahoma Thun-
der, berjast um frákast í leik
á heimavelli Golden
State Warriors í
Oakland í mars.
AFP
„Hundurinn minn var búinn að
vera í meðferðum hjá dýralækni
í heilt ár vegna húðvandamála
og kláða, þessu fylgdi mikið
hárlos. Hann var búinn að vera
á sterum án árangus. Reynt
var að skipta um fæði sem bar
heldur ekki árangur. Eina sem
hefur dugað er Polarolje fyrir
hunda. Eftir að hann byrjaði að
taka Polarolje fyrir hunda hefur
heilsa hans tekið stakkaskiptum.
Einkennin eru horfin og hann er
laus við kláðann og feldurinn
orðinn fallegur.“
Sigurlín Birgisdóttir, hundaeigandi
Sími 698 7999 og 699 7887
Náttúruolía sem
hundar elska
Við Hárlosi
Mýkir liðina
Betri næringarupptaka
Fyrirbyggir exem
Betri og sterkari fætur
NIKITA
hundaolía
Selolía fyrir
hunda