Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2016, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.4. 2016
VETTVANGUR
Ásmundur Einar Daðason,þingflokksformaður Fram-sóknarflokksins, minnti
okkur á það í vikunni að fyrirhuguð
sala á Jökulsárlóni verðskuldaði
þjóðarathygli. Jökulsárlón ætti að
vera í þjóðareigu enda eitt vinsæl-
asta djásnið sem þjóðin skartaði.
Sala á Jökulsárlóni, hugsanlega út
fyrir landsteinana, væri glapræði
og í því samhengi benti Ásmundur
Einar réttilega á að „ekkert mál
ætti að vera stærra næstu vik-
urnar“. Nú lægi mikið við „að fólk
úr öllum áttum taki höndum saman!
Stjórnvöld verða einfaldlega að
leita allra mögulegra leiða til að
koma í veg fyrir að þetta gangi í
gegn“.
Steinunn Þóra Árnadóttir, þing-
kona VG, hefur einnig brugðist við
og lagt fram fyrirspurn á þingi um
framhald þessa máls. Og viti menn,
Sigrún Magnúsdóttir umhverfis-
ráðherra bættist í hópinn undir
vikulokin og vill kanna áhuga á
kaupum ríkisins og að Jökulsárlón
verði hluti af Vatnajökulsþjóðgarði.
Það voru góðar fréttir!
Þessi viðhorf eru hluti af
vakningaröldu sem risið hefur í
þjóðfélaginu og minnir um margt á
áskorun fjölda Íslendinga, bæði ut-
an flokka og úr flokkaflórunni allri,
svo og öllum kimum atvinnulífs,
meninngar og lista, fyrir nokkrum
misserum, um að ríkið festi kaup á
Grímsstöðum á Fjöllum. Ástæðan
var sú að útlendur milljarðamær-
ingur vildi eignast þá miklu jörð.
Hún ætti hins vegar að vera hlekk-
ur í eignarhaldskeðju í þjóðareign
sem umlykur öræfi Íslands. Það var
alla vega mat þeirra sem beindu því
til stjórnvalda að ríkið festi kaup á
Grímsstöðum á Fjöllum.
Enn er verið að hugsa málið í
Stjórnarráðinu. Ekki er öll von úti
að sú hugsun leiði til jákvæðrar
niðurstöðu.
En skiptir máli hvort eignar-
haldið er útlent eða innlent? Flokk-
ast slíkar vangaveltur ef til vill und-
ir illa þjóðrembu? Ef svo er skal ég
gangast við henni. Í mínum huga er
þetta þó ekki meiri þjóðremba en
sú sem birtist í heiti Grænlands á
grænlensku, Kalaallit Numat. Það
mun þýða land þjóðarinnar sem
landið byggir. Þessi tenging á milli
lands og samfélags er umhugsunar-
verð. Ekki síst fyrir okkur sem nú
stöndum frammi fyrir því að ákveða
hvort við ætlum að heimila að eign-
arhald á landi og þar með auðæfum
sem landinu tilheyra, sé selt út fyr-
ir landsteinana. Kannski væri ráð
að endurskíra Ísland og kalla það
land íslensku þjóðarinnar, þess
fólks sem Ísland byggir?
Jafnvel þótt við endurskírðum
ekki Ísland gæti þetta orðið ágætt
vinnuheiti; að við hugsuðum gjörðir
okkar og ákvarðanir með þessa
hugsun að leiðarljósi.
Við skulum ekki gleyma því að
samkvæmt verstu lagabreytingu Ís-
landssögunnar, sem gerð var undir
aldamótin, er búið að tvinna saman
eignarhald á landi og þeim jarð-
efnum sem þar er að finna og þá
einnig vatninu. Lágmark er að
eignarhald á auðæfum landsins sé
varðveitt innan landsteina og okkur
öllum sýnilegt og handfast.
Annars þarf ekki að hafa um
þetta óskaplega mörg orð. Við skilj-
um það öll að Herðubreiðarlindir
eigum við að eiga saman, Gullfoss
og Geysi, Þingvelli og að sjálfsögðu
einnig Jökulsárlón. Erum við ekki
sammála um það?
Jökulsárlón er ekki flokkspólitískt
’Við skulum ekki gleyma því að samkvæmt verstulagabreytingu Íslandssögunnar, sem gerð varundir aldamótin, er búið að tvinna saman eignar-hald á landi og þeim jarðefnum sem þar er að finna
og þá einnig vatninu. Lágmark er að eignarhald á
auðæfum landsins sé varðveitt innan landsteina og
okkur öllum sýnilegt og handfast.
Morgunblaðið/Ómar
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur@althingi.is
Heilsan er eitt af því sem ritað er
um á samfélagsmiðlum. Margir
segja til dæmis frá því þegar þeir
fara út að hlaupa eða fara í ræktina.
Ragga Nagli
skrifar reglulega
inn á síðu sína á
Facebook hvetj-
andi pistla um lík-
amsrækt og
mataræði. Í vikunni skrifaði hún um
hvernig hún á yngri árum trúði
greinum um matarkúra og óæski-
leg matvæli: „Þessi boð og bönn,
reglur og refsingar leiddu til van-
þurftar, spennu og frústrasjónar í
skrokk og sinni. Að lokum sprakk
limmið og ólympísk átköst á Rich-
ter skala fylgdu í kjölfarið. En gleðin
var Þórðar, því sektarkenndin
mætti í sparidressinu og sturtaði
sjálfinu niður í tojlettið. Til að bæta
upp fyrir bílífið og friða samvisku-
bitið voru skaðastjórnunar-
aðgerðir með ómanneskjulegu
magni af þolæfingum og horaðir
einhæfir snæðingar það eina sem
rann niður ginið.
En bannlistinn hefur tekið
stakkaskiptum undanfarin ár, og
inniheldur nú eftirfarandi atriði:
samviskubit, niðurrif, einhæfni,
reglur, refsingar, boð, bönn, ójafn-
vægi, sektarkennd.
Að fara eftir þessum lista hefur
fært Naglanum stjórn, hamingju,
jafnvægi og gleði í heilsulífið þar
sem allt er leyfilegt innan skynsam-
legra marka og átköst heyra forn-
sögunum til. Boð og bönn og regl-
ur og refsingar geta aldrei orðið að
heilsusamlegum lífsstíl. Finndu þinn
eigin takt og hvað virkar fyrir þig
og þinn líkama.“
Sólveig Sigurðardóttir er líka
talsmaður öfga-
leysis í þessum
málum en hún
skrifar inn á Lífs-
stíll Sólveigar á Fa-
cebook. Hún
skrifaði um mikil-
vægi góðrar heilsu í vikunni. „Og í
dag hristi ég bara hausinn yfir því
hvernig ég fór með sjálfa mig. En
við erum svo ódauðleg.... Og ekk-
ert slæmt kemur fyrir okkur. Ætl-
um alveg að borða hollt og hreyfa
okkur. Sofa vel og minnka álag.
Skreppa í jóga og græja þetta allt.
Bara seinna þegar að tíminn er
réttur. En á meðan tikkar líkaminn
á rauðu í langan tíma. Líkaminn get-
ur gefið ansi marga sénsa áður en
[hann] byrjar að klikka.
Og mörg stöðvunarskilti brotin.
Trúið mér hef verið þar alloft.
Þetta þarf ekki að vera flókið. Einn
dagur í einu,“ skrifaði hún m.a.
Bragi Valdimar tók eins og
aðrir eftir því að
Facbook-notendur
settu barnamyndir
af sér í prófíl í til-
efni Barnamenn-
ingarhátíðar.
„Þessar bévítans
smákrakkamyndir á FB minna mig
bara á öll lækin sem ég fór á mis við
sem barn.“
Ásgeir H. Ingólfsson í Tékk-
landi, landinu sem mun nú mögu-
lega skipta um
nafn veitti barna-
myndunum líka
eftirtekt. „Vaknaði
í nýju landi. Tók
ekki eftir miklum
breytingum fyrr
en ég fór á Facebook og sá að flest-
ir íslensku vinir mínir höfðu elst
afturábak um 20-30 ár.“
AF NETINU