Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2016, Síða 12
FORSETAVAKTIN
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.4. 2016
Andri Snær Magnason rithöf-undur tilkynnti formlegaframboð sitt til embættis
forseta Íslands í Þjóðleikhúsinu á
mánudaginn fyrir fullum sal af fólki
og er byrjaður að funda út um land,
fyrstur frambjóðenda eftir því sem
næst verður komist.
Andri hélt fund á Ísafirði í fyrra-
dag og á Hótel KEA á Akureyri síð-
degis í gær. Þar var margmenni.
Andri sagðist mættur til að kynna
áherslur sínar en ekki síður að
hlusta á fólk.
Land, þjóð, tunga
Hann nefndi að tvær helstu fyrir-
myndir hans í lífinu væru Guð-
mundur Páll Ólafsson náttúrufræð-
ingur og Vigdís Finnbogadóttir,
fyrrverandi forseti Íslands. Vitnaði
Andri í ljóð Snorra Hjartarsonar,
Land, þjóð og tunga, sem hefði verið
í miklu uppáhaldi hjá Guðmundi Páli
heitnum og hjá Vigdísi og kvaðst
sjálfur hrífast af ljóðinu. Enda mað-
ur náttúruverndar og tungu, jafnvel
fyrst og fremst.
Orðrómur hafði lengi verið á
kreiki um að Andri Snær myndi taka
slaginn og framboð hans kom því
ekki á óvart.
Annar, sem nýlega var nefndur í
þessu sambandi, Guðni Th. Jóhann-
esson, sagnfræðingur, gantaðist
með það í samtali við Morgunblaðið
að loknum fundinum í Þjóðleikhús-
inu að hann hefði fengið lánaðan
feldinn hjá Andra Snæ eftir að hann
ákvað sig. Vinsælt er að þeir sem
hugsa málið liggi undir feldi, eins og
allir ættu að vita. Spurður hvenær
hann mundi kunngera ákvörðun
sína, svaraði Guðni á mánudaginn:
„Það er svo margt sem þarf að huga
að. Þetta er nú með stærri ákvörð-
unum sem maður tekur, þannig að
ég bið bara fólk að sýna smá bið-
lund.“
Í gær tók hann ögn sterkar til
orða í samtali við Hringbraut: „Ég
tek ákvörðun í næstu viku. Gerist
auðveldara. Ótrúlegur stuðningur úr
öllum áttum.“
Andri Snær starfar sem rithöf-
undur og hlaut m.a. Íslensku bók-
menntaverðlaunin fyrir barnabókina
Sagan af bláa hnettinum árið 1999.
Þá ritaði hann Draumalandið –
Sjálfshjálparbók handa hræddri
þjóð fyrir áratug, árið 2006. Fyrir
fundinn á Hótel KEA í gær snar-
aðist kona til frambjóðandans með
eintak af bókinni og gekk á brott
með bókina áritaða. Skemmtilegt!
Andri Snær er 42 ára og búsettur
í Reykjavík. Eiginkona hans heitir
Margrét Sjöfn Torp og eiga þau
fjögur börn. Hann hefur verið vara-
formaður Rithöfundasambands Ís-
lands, hefur setið í stjórn Þjóðmenn-
ingarhússins og átt sæti í stjórn
Íslenskrar málnefndar og Þjóðleik-
húsráði, auk þátttöku í ýmsum nátt-
úruverndarsamtökum.
„Lýðræði, náttúra og menning
eru þær þrjár stoðir sem forseti Ís-
lands þarf að gæta að,“ sagði Andri í
í Þjóðleikhúsinu. Hann lýsti þeirri
skoðun sinni að umhverfismál væru
og yrðu stærsta áskorun 21. aldar-
innar. „Þjóðgarður á hálendi Íslands
er ein af þeim hugmyndum sem við
gætum látið verða að veruleika,“
sagði Andri Snær og var ákaft fagn-
að. Frambjóðandinn sagði í samtali
við mbl.is, fréttavef Morgunblaðsins,
að loknum fundi að forseti Íslands
ætti ekki að skipta sér af daglegri
pólitík. Hann ætti hins vegar að
leggja fram skýra sýn í stóru mál-
unum.
Kosið á milli leikja?
Kosið verður til Alþingis eftir tvo og
hálfan mánuð, laugardaginn 25. júní.
Riðlakeppni Evróupmótsins í fót-
bolta í Frakklandi verður þá lokið;
síðasti leikur Íslands verður gegn
Austurríkismönnum 22. júní og þjóð-
in getur þá snúið sér alfarið að for-
setakosningunum. Nema landsliðið
kæmi á óvart en þá yrði ekki leikið á
ný fyrr en í fyrsta lagi daginn eftir
kosningarnar!
Andri af stað, Guðni fékk feldinn
Kosið verður til emb-
ættis forseta Íslands eft-
ir tvo og hálfan mánuð
og fjör fer nú að færast í
leikinn. Tíu hafa til-
kynnt framboð, fleiri
eru að hugsa málið.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Andri Snær Magnason, rithöfundur, bauð til fundar á Ísafirði í fyrradag og á Hótel KEA á Akureyri í gær. Þangað mætti fjölmenni og hlýddi á frambjóðandann.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Sturla H. Jónsson sagði fyrir
löngu að hann hygðist bjóða sig
fram til forseta í júní. Í vikunni
gaf hann það formlega út.
Í tilkynningu frá Sturlu kemur
fram að hann hafi nú þegar
safnað undirskriftum þriggja
þúsunda meðmælenda.
Sturla er fæddur í Reykjavík
4. nóvember 1966. Hann ólst
upp í Breiðholti, gekk í Fella-
skóla og hóf atvinnuþátttöku
strax að loknu grunnskólaprófi.
Hann hefur unnið við rafvirkj-
un, verið á sjó og unnið við jarð-
vinnu hjá verktökum. Hann hef-
ur einnig starfað við járnsmíði,
bifvélavirkjun, húsbyggingar og
fleiri iðngreinar.
Sturla er kvæntur Aldísi Ernu
Helgadóttur og eiga þau þrjá
syni, 16 til 26 ára.
Í vikunni tilkynntu tveir þjóð-
þekktir einstaklingar, sem
sterklega höfðu verið orðaðir
við framboð, að þeir færu ekki
fram: Bryndís Hlöðversdóttir
ríkissáttasemjari og fv. alþingis-
maður og Davíð Þór Jónsson
prestur og fv. grínisti.
Sturla var áberandi eftir bankahrunið. Hér mótmælir hann við Bessastaði.
Morgunblaðið/Ómar
ÖNNUR TÍÐINDI VIKUNNAR
Sturla, Bryndís, Davíð
10 vikur
TIL KOSNINGA
STÓRAR
STELPUR
tískuvöruverslun
Hverfisgötu 105
www.storarstelpur.is
Munið bílastæði
á bak við hús
Við erum á facebook