Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2016, Page 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2016, Page 14
E instaka sinnum heyrist í farþega- flugvél í grennd við Oddeyrina á Akureyri. Vinalegt hljóð frá vélum Flugfélags Íslands. Naser- fjölskyldan frá Sýrlandi kippir sér ekki upp við það eftir að hafa upplifað skelfi- legan gný herflugvéla og sprengjuárásir í kjölfarið í heimalandinu mánuðum saman. Margir ættingjar hafa látið lífið í stríðinu og þau vita ekkert um afdrif þriggja systkina húsbóndans; hafa ekki heyrt frá þeim í þrjú ár, þau gætu setið í fangelsi en Joumaa finnst líklegra að þau hafi verið drepin af sveitum al- Assads forseta. Á nýju heimili þessarar glaðværu, sjö manna fjölskyldu er mikið brosað; þar ríkir þakklæti, gleði og bjartsýni. Fjórir mánuðir eru síðan hjónin Joumaa og Joumana komu til landsins ásamt sonum sínum fimm og 28 öðr- um sýrlenskum flóttamönnum. Tvær fjöl- skyldur settust að í Kópavogi en fjórar á Ak- ureyri. Alls fjölgaði Akureyringum um 23 þriðjudaginn 19. janúar og allir í þeim hópi virðast blómstra í höfuðstað Norðurlands. Hinn fertugi Joumaa Naser brosir breitt þar sem blaðamaður situr í stofu fallegrar íbúðar á efri hæð í tvíbýlishúsi á Eyrinni og sýpur á rótsterku, sýrlensku kaffi með engi- ferkeim. Fjölskyldan er þar öll saman komin, eiginkonan og móðirin Jumana er 35 ára, Ah- mad 16, Mohamad 15, Amjad 14, Mouhanad 12 og Majd er fjögurra ára. Elsti sonurinn er nýbyrjaður í Verkmennta- skólanum á Akureyri, þrír ganga í Oddeyrar- skóla og sá yngsti er í leikskóla. Jumana vinn- ur heima, hana langur út á vinnumarkaðinn en vill ná tökum á íslenskunni fyrst. Hún starfaði á snyrtistofu heima í Sýrlandi meðan lífið þar gekk sinn vanagang. Hefur reyndar haft nóg að gera heima síðustu ár og hefur enn, með fimm stráka. Áður en drengirnir byrjuðu í skóla höfðu allir Sýrlendingarnir, sem komu til Akureyrar í janúar, verið í mánuð á íslenskunámskeiði, bæði börn og fullorðnir. Joumaa er nýbyrjaður að vinna hálfan dag- inn hjá Rafmönnum, þar sem honum hefur verið afar vel tekið og samstarfsmenn bera lof á hann. Joumaa starfaði sem rafvirki í heima- landinu og einnig þann tíma sem fjölskyldan dvaldi í Líbanon. „Fólkið er æðislegt“ „Hann vill ekki segja gott – heldur mjög, mjög, mjög gott,“ segir túlkurinn Ahmed eftir fyrsta svar húsbóndans, þegar spurt er hvern- ig fjölskyldan hafi það í nýjum heimkynnum. „Við gátum ekki ímyndað okkur svona góðar móttökur og það strax frá fyrsta degi. Fólk hér er yndislegt; samfélagið á Akureyri hefur tekið okkur einstaklega vel,“ segir Joumaa. „Veðrið er vissulega öðruvísi en við erum vön, okkur er kalt en það jafnar sig. Enda er miklu betra að vera kalt en í stríði. Tungu- málið er erfitt en við reynum að læra. Það sem skiptir mestu máli er hve okkur er vel tekið og að strákarnir skuli vera komnir í skóla. Hér eru allir boðnir og búnir til að aðstoða okkur sem var því miður ekki raunin í Líbanon, þar sem við vorum í fjögur ár,“ segir fjölskyldu- faðirinn. „Fólkið er æðislegt,“ skýtur Moh- anad inn í, sá 12 ára. Það er sólríkt síðdegi norður í landi. Joumaa er kominn heim úr vinnunni, þrír son- anna – Ahmad, Amjad og Mouhanad halda senn á karateæfingu, Mohamad hefur hugsað sér að skreppa á líkamsræktarstöð. Majd, sá yngsti, leikur sér í tölvuspili, einbeittur á stól við hlið móður sinnar. Segja má að lífið gangi íslenskan vanagang. „Krakkarnir er mjög gott,“ segir broskarl- inn Amjad þegar spurt er um skólann. Ahmed túlkur staðfestir ánægju strákanna, og sá sem þetta skrifar upplifði hana reyndar með eigin skynfærum daginn eftir þegar hann kom við í gamla skólanum sínum. „Við getum tekið þátt í mestöllu í skólanum. Skiljum auðvitað ekki íslensku ennþá, það er erfitt, en kennararnir eru mjög duglegir við að beita alls konar leikjum og öðrum aðferðum til að reyna að koma okkur í skilning um hlut- ina,“ segir Amjad. Þegar blaðamaður drap niður fæti í Oddeyrarskóla var Amjad í heim- ilisfræði ásamt skólasystkinum sínum í átt- unda bekk, ilmurinn var indæll enda nýbak- aðir snúðar á borðum. Strákarnir eru mjög áhugasamir og dugleg- ir að sögn kennara og það leynir sér reyndar ekki. Mohamad og Mouhanad spreyta sig á ís- lenskum orðum í einni stofunni; eru þar tveir með kennara þá kennslustundina en halda fljótlega annað. Æfa sig þarna á táknum sem ekki eru þekkt í arabísku. „Ó ... Ómar,“ segir annar. Man eftir eftir einum af nýju skóla- bræðrunum. Þeir hlæja og gera að gamni sínu. Ör, segir kennarinn og bendir á afleiðingar gamallar skeinu. En orðið þýðir fleira ... Þeir hrista hausinn. En brosa; það vörumerki Ahmad, elsti bróðirinn, á karateæfingu. Majd litli leikur sér í tölvunni. Betra að vera kalt en í stríði Hjónin Joumaa og Joumana komu sem flóttamenn til Íslands síðari hluta janúarmánaðar ásamt sonum sínum fimm og 28 öðrum löndum sínum. Þegar boðið kom stukku þau út í mikla óvissu en voru samt staðráðin í að fara um leið og færi gæfist. Fjölskyldan er alsæl í dag á Akureyri. ’ Þeir brosa, sofa vel, borðavel og finnst æðislegt að verakomnir í skóla, eru við góðaheilsu og geta stundað íþróttir. Fjölskyldan í fótbolta með vinum. Mohamad með boltann, Mouhanad til vinstri. Texti og myndir Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Það var ánægjuleg lífsreynsla að kynnast Naser-fjölskyldunni, Joumaa, Joumana og drengjunum þeirra fimm, sem blómstra á Akureyri eftir að hafa upplifað stríð heima í Sýrlandi og fjögur erfið ár í Líbanon. Hugsanlega voru það örlög mín að hitta einmitt þetta fólk þegar ég falaðist eftir viðtali við einhverja þeirra sýrlensku flóttamanna sem komu til bæjarins í janúar. Þau búa nefnilega í húsinu þar sem ég ólst upp til tíu ára aldurs! Tilviljun? NÝTT LÍF Í NÝJUM HEIMKYNNUM 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.4. 2016

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.