Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2016, Side 28
MATUR Maukið saman 400 grömm af kjúklingabaunum, 2 teskeiðar tahini, 3 matskeiðarólífuolíu, 1 hvítlauksrif og 2 matskeiðar sítrónusafa og smá salt og úr verður un-
aðslegt húmmus. Hægt að krydda með papriku-dufti og ferskum kóríander.
Jamie Oliver hummus
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.4. 2016
Tilbrigði við
grillaðar
samlokur
Einn þægilegasti kvöldmatur eða hádegis-
matur í heimi er grilluð samloka. Skinka
og ostur stendur alltaf fyrir sínu en örlítil
tilbreyting getur gert gæfumuninn.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
2 þykkar brauðsneiðar
½ epli
nokkrar sneiðar af dalabrie eða
öðrum góðum hvítmygluosti
nokkur blöð fersk basilíka
1-2 sneiðar af góðri skinku
2-3 msk. rjómaostur
Smyrjið brauðsneiðarnar
með rjómaostinum. Stráið
nokkrum basilíkulaufum yfir.
Leggið skinkuna ofan á, þá þunnt
sneiddar eplaskífur og loks frem-
ur þunnt skornar sneiðar af dala-
brie. Lokið samlokunni og setjið
líka dalabrieost ofan á ef vill. Þá
þarf samlokan hins vegar að bak-
ast inni í ofni í nokkrar mínútur,
við 190 °C. Ef dalabrie er ekki
settur ofan á lokaða samlokuna
getur hún farið í samlokugrillið
eða á pönnu þar sem hún er
steikt upp úr smjöri.
Epli og
dalabrie
2 brauðsneiðar að eigin vali
2-3 vænar sneiðar maríbó- eða cheddar-
ostur
ferskar kryddjurtir að eigin vali, til dæmis
oreganó
beikon, helst lúxusbeikon
hot sauce eftir smekk (má sleppa)
Forsteikið beikonið vel, hægt er að
baka það líka inni í ofni á bökunarpapp-
ír. Leggið maríbó- eða cheddarost-
sneiðar ofan á brauðsneiðarnar, hafið þær
eins þykkar og þið getið. Stráið vel af fersk-
um kryddjurtum yfir, gott er að nota ítalsk-
ar kryddjurtir svo sem ferskt óreganó. Þeir
sem kunna vel að meta sterkt bragð mega
setja hot sauce eftir smekk. Passar vel með
cheddarostinum og beikoninu. Þessa sam-
loku má grilla í samlokugrilli en ennþá
betra er að steikja hana upp úr blöndu af
smjöri og ólífuolíu, þar til osturinn er bráð-
inn.
Beikonsamlokan
2 brauðsneiðar að eigin vali
4 sneiðar af góðri skinku að eigin
vali
2-3 msk. rjómaostur
2-3 súrar gúrkur
4-5 sneiðar ostur sem grillast vel
smávegis svartur pipar
Smyrjið brauðsneiðarnar vel
með rjómaosti. Leggið 2
skinkusneiðar ofan á aðra
brauðsneiðina, þá ostsneiðar,
setjið aftur skinkusneiðar og
leggið loks niðursneiddar súrar
gúrkur ofan á. Setjið svo aftur
ost og piprið lítillega með
svörtum pipar. Þessa samloku
er líka gott að steikja upp úr
smjöri á pönnu á hvorri hlið
þar til osturinn er bráðinn.
Samlokan með
súru gúrkunum
Getty Images/iStockphoto
Pestó, pera og
kjúklingur
2 brauðsneiðar að eigin vali
2 msk. grænt pestó
2-3 sneiðar ostur að eigin vali sem grillast
vel
¼ grilluð kjúklingabringa
grænt kál
¼ pera, þunnt skorin
Smyrjið brauðsneiðarnar með grænu
pestói, leggið vænar ostsneiðar ofan á
og þunnar sneiðar af kjúklingabringu,
sem búið er að fullelda og grilla áður,
þar yfir. Gott er að setja ferskt og
stökkt grænt kál yfir og svo nokkrar
þunnar sneiðar af peru sem gefur ferskt
bragð á móti. Grillið í nokkrar mínútur,
eða þar til osturinn er bráðinn.
2 brauðsneiðar að eigin vali
¼ avókadó
parmesanostur eftir smekk
¼ tómatur
2 tsk. franskt sinnep
2-3 sneiðar gouda eða annar ostur sem grillast vel
Avókadó, parmesanostur og franskt sinnep er
dásamleg blanda. Skerið avókadó í þunnar sneiðar sem
og tómatinn. Smyrjið brauðsneiðarnar þunnt með
frönsku sinnepi. Flysjið niður parmesanost og dreifið yf-
ir eftir smekk. Leggið avókadóið og tómatinn ofan á og
leggið svo vænar sneiðar af goudaosti yfir. Grillið í
nokkrar mínútur, eða þar til osturinn er bráðinn. Passar
vel að bera fram með fersku salati.
Avókadósamlokan
1 tortillapönnukaka
3-4 sneiðar ostur sem grillast vel
nokkrar sneiðar mangó
örlítil paprika, smátt skorin
rjómaostur
Það er líka gott að grilla tortillapönnukökur í
samlokugrilli. Smyrjið pönnukökuna þunnt með
rjómaosti, leggið ostsneiðar ofan á, ekki hafa
þær of þykkar, nokkrar sneiðar af mangó og
smátt skorna papriku ofan á. Leggið pönnukök-
una saman og grillið í nokkrar mínútur. Skerið
svo í bita og berið fram. Mjög gott með salati.
Mangógrill