Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2016, Side 30
Í Grindavík er margt fleira en fiskvinnsluren þar má nú finna kaffihúsið Hjá Höllusem slegið hefur í gegn hjá bæjarbúum
og gestum, bæði innlendum og erlendum.
Þar er boðið upp á fjölbreyttan matseðil þar
sem áherslan er á hollustu.
Draumurinn um kaffihús
Halla María Svansdóttir hefur alltaf haft
áhuga á mat og matargerð og hóf að gera
tilraunir í eldhúsinu heima fyrir fjórum ár-
um. „Ég sendi út tíu matarpoka til fólks sem
ég valdi og síðan hefur boltinn rúllað. Þetta
átti fyrst bara að vera hér innanbæjar en
hefur nú teygt sig til Keflavíkur,“ segir
Halla sem er nú með níu manns í fullri
vinnu. „Það var alltaf draumurinn að vera
með lítið kaffihús,“ segir hún en dreymdi
aldrei um að reka það fyrirtæki sem Hjá
Höllu er orðið í dag.
Mikill mataráhugi alla tíð
Halla segir að mataráhuginn hafi alltaf verið
til staðar. „Amma var mikið í eldhúsinu og
mamma, og allir voru alltaf ofan í pottunum.
Við förum mikið út að borða og mitt helsta
lesefni eru uppskriftir. Mér hefur fundist
vanta gott kaffihús í Grindavík. En svo fór
þetta líka út í fyrirtækjaþjónustu og við
sendum út 150-200 matarskammta fyrir há-
degi á hverjum virkum degi,“ segir Halla en
kaffihúsið er nú opið frá 8-17 á virkum dög-
um. Halla er nýbyrjuð að hafa opið um helg-
ar. Kaffihúsið gengur vel og hyggst Halla
reyna að hafa opið á kvöldin í framtíðinni.
Bæði bæjarbúar og erlendir ferðamenn
sækja kaffihúsið og segir Halla ferðamenn
duglega að setja inn hrós á Tripadvisor.
Hollusta í fyrirrúmi
Halla segir að súpurnar hennar séu vinsæl-
astar og gefur lesendum uppskrift að fiski-
súpunni sem er sérlega gómsæt. Brauðið
hennar Höllu fer vel með súpunni en það er
bakað daglega. Að auki er boðið upp á hvers
kyns rétti; samlokur, vefjur, salöt, kjúkling
og búst drykki svo eitthvað sé nefnt. Bæði
er hægt að borða á staðnum og taka með sér
heim eða í vinnuna. Halla vinnur allan mat
frá grunni og kaupir ferskar afurðir. „Við
kaupum lífrænt og vistvænt eins og hægt er
og leggjum áherslu á hollustu,“ segir Halla.
Það er nóg að gera hjá Höllu og starfs-
fólkinu hennar en unnið er frá sex á morgn-
ana. „Við byrjum hér fimm manns klukkan
sex á morgnana og ég kem aldrei heim fyrr
en sex á daginn. Aldrei.“
Hollara
hjá Höllu
’ Amma var mikið í eldhúsinuog mamma, og allir vorualltaf ofan í pottunum. Við för-um mikið út að borða og mitt
helsta lesefni er uppskriftir.
Grindvíkingurinn Halla María Svansdóttir
byrjaði smátt í eldhúsinu heima hjá sér fyrir
fjórum árum. Nú rekur hún fyrirtæki sem
fæðir hátt í tvö hundruð manns á dag. Ný-
lega opnaði hún kaffihús sem dregur að sér
Grindvíkinga og aðra gesti en Halla leggur
áherslu á hollan og bragðgóðan mat.
Myndir og texti: Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Hjá Höllu
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.4. 2016
MATUR
600 g fínt spelt
12 g ger
1 msk himalaya salt
500 g vatn
3-4 msk fetaostur í olíu
Hrærið þar til allt er bland-
að vel saman og látið
standa í 1-2 tíma, setjið svo
í 24 cm kökuform. Bætið
þá 3-4 msk af fetaosti ofan
á með olíunni.
Setjið í ofn á 200°C blást-
ur í 40-45 mín. Gæti þurft
að lækka í 180°C síðustu 5-
10 mín því ofnar eru mis-
jafnir.
Brauð með fetaosti