Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2016, Page 36
FERÐALÖG Sólarvörn er mesta þarfaþing þegar ferðast er til heitralanda. Ráðlegt er að kaupa hana heima áður en farið er af
stað svo hægt sé að fara á ströndina strax á fyrsta degi.
Ekki gleyma vörninni
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.4. 2016
1 Seychelles-eyjar
www.seychelles.travel
Ljósbleikur sandur og túrkisblár sjór
einkenna strendur þessa fagra eyríkis
í Indlandshafi. Eyjarnar eru alls 115
talsins, flestar þeirra óbyggðar. Að-
eins um 92 þúsund manns búa á
Seychelles-eyjum. Þriðjungur þeirra
starfar við ferðaþjónustu. Eyjarnar
eru leiðandi í heiminum í sjálfbærri
ferðamennsku en leggja síður áherslu
á fjöldaferðamennsku.
AFP
Getty Images/iStockphoto
2 Maldíveyjar
www.visitmaldives.com
Ævintýrin eru alls staðar í þessum eyjaklasa og
möguleikarnir óþrjótandi enda eru þessar eyj-
ar í Indlandshafi yfir þúsund talsins. Þarna eru
fjögurra stjörnu hótel fyrir þá sem vilja láta
fara vel um sig en þeir sem kjósa annars konar
ferðir geta synt og kafað meðal litríkra fiska.
AFP
3 Bora Bora, Tahiti
www.tahiti-tourisme.com/islands/borabora
Bora Bora er ein af Kyrrahafseyjunum sem mynda frönsku Pólýnesíu. Hún
er aðeins 29 kílómetra löng og þar ríkin kyrrðin ein. Eyjan er stundum
uppnefnd rómantíska eyjan og ber víst nafn með rentu með allar sínar af-
viknu strendur og rólegheit.
AFP
4 The Hamptons, New York
www.hamptons.com
Það er engin tilviljun að Hamptons er vinsæll sumardvalarstaður. Strend-
urnar þar eru fagrar og þar er hægt að njóta svalans frá Atlantshafinu um
leið og sólin er sleikt.
AFP
5 Lanikai Beach, Hawaii
www.nationalgeographic.com/travel/united-states/hawaii-
guide
Pálmatré, hvítur sandur og endalaust sólskin gera þessa strönd á
Hawaii að draumastað. Lanikai er talin vera fallegasta ströndin á
eyjunni auk þess sem hún er sérlega skjólsæl.
AFP
6 Nantucket Island, Massachusetts
www.nantucket.net
Vinsælustu strendurnar á þessari eyju í Atlantshafi kallast Surfside
og Children’s. Hvort sem ætlunin er að byggja sandkastala eða
láta sólina sleikja kroppinn þá er nóg af sandi. Þá ku vera vel þess
virði að fara út til að fylgjast með sólinni setjast á Nantucket-eyju
sem liggur suður af Massachusetts-fylki í Bandaríkjunum.
AFP
bestu
strendur
veraldar
Hið virta tímarit National Geographic
gerir talsvert af því að gefa út topp tíu
lista yfir það besta í veröldinni að mati
sérfræðinga blaðsins. Einn þessara lista
er um tíu bestu strendur veraldar.
7 Fraser Island, Australia
www.seefraserisland.com
Eyjan er stærsta sandeyja heims og hefur að geyma dásamlegar
strendur. Regnskóg með þúsund ára gömlum trjám er að finna á
eyjunni sem er einstök og tiltölulega óspillt náttúruperla. Ferða-
menn sem hana sækja heim eru af öllum toga, allt frá bakpoka-
ferðalöngum upp í vel stæða ferðalanga sem velja sér lúxusgistingu.
Ljósmynd/Wikimedia Commons
8 St. Barth’s
www.st-barths.com
St. Barths er ein af mörgum eyjum í Karíbahafinu. Strendurnar þar
eru margar og auðvelt á að vera að finna afviknar strendur þar sem
hægt er að vera í friði. Sandurinn er hvítur og sjórinn glitrar. Eyjan
er vinsæl meðal ferðamanna með dýpri vasa en gengur og gerist og
má því gera ráð fyrir að verðið sé hátt í takt við það.
LJósmynd/Wikimedia Commons
9 Langkawi, Malaysia
www.langkawi.com.my
Nafnið Langkawi þýðir óskalandið og á vel við. Langkawi eru
eyjar sem liggja norðvestur af Malasíu. Strendurnar eru ægifagrar
og ekki uppfullar af fólki. Grænn skógur og tær sjór rammar inn
gulan sandinn.
10
10 Kauna’oa Bay, Hawaii
www.kaunaoa.com
Flóinn er á Kohala-strandlengunni á vesturhluta Hawaii. Strönd-
in laðar að enda er hún ein af fáum með hvítum sandi á þessum
hluta eyjarinnar. Sjórinn er tær og þarna er vinsælt að kanna
djúpin með því að snorkla.