Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2016, Blaðsíða 37
Gómsæt
ferðalög
Norcia á sér
langa matar-
gerðarsögu
og er þekkt
fyrir pulsu-
gerð, osta-
gerð og
svartar
trufflur. Sex
daga ferð
kostar rúm-
lega 400 þúsund
með gistingu,
morgunmat, nokkrum
kvöldverðum, ferðum og
matreiðslunámskeiði.
Einnig er hægt er að fara í 17
daga ferð til Norður-Indlands og
læra um indverska matargerð og
sjá helstu perlur landsins í leið-
inni. Gist er á fínum hótelum og á
hverjum stað er nýtt matreiðslu-
námskeið en fimm mismunandi
námskeið eru í þessari ferð. Slík
Hvern dreymir ekki um aðlæra ítalska matargerð ísveitum Toscana-héraðs?
Kannski ekki alla, en fyrir áhuga-
fólk um matreiðslu er tilvalið að
víkka út sjóndeildarhringinn og
læra af þeim bestu.
Eldað um víða veröld
Að sameina ferðalög um framandi
lönd við matreiðlsu er draumur
margra. Mörg erlend fyrirtæki
bjóða upp á slíkar ferðir. Á síð-
unni theinternationalkitchen.com
er ýmislegt í boði en þeir bjóða
upp á ferðir til Frakklands, Portu-
gals, Ítalíu, Spánar, Grikklands og
Tyrklands í Evrópu en einn-
ig er boðið upp á ferð-
ir til Asíu, Afríku
og Suður-
Ameríku. All-
ir ættu að
geta fundið
matarferð
við hæfi.
Fyrir fólk
sem pantar
hjá þessu
fyrirtæki er
innifalið í
verðinu ferða-
lög og matreiðslu-
námskeið en á hverju
námskeiði eru aldrei fleiri
en tólf manns.
Ítalía eða Indland?
Dæmi um það sem er í boði er
ferð til Umbria-héraðs á Ítalíu.
Þar er gist í bæ sem heitir Norcia.
Bærinn er innan virkisveggja frá
14. öld og handan við hornið er
Monti Sibillini þjóðgarðurinn.
ferð kostar í kringum 700
þúsund en flug er ekki
innifalið.
Bragðmiklir
möguleikar
Mörg önnur fyrirtæki
bjóða upp á mat-
reiðsluferðir sem kitla
bragðlaukana hjá áhuga-
kokkum. Eitt þeirra sér-
hæfir sig í ferðum til Ítalíu
og má skoða hvað er í boði á
cooking-vacations.com. Aðrir bjóða
upp á allan heiminn eins og gour-
metontour.com. Þar er m.a. hægt
að fara í sjö daga til Marrakech í
Marakkó og læra allt um þessa
aldagömlu og framandi matargerð.
Möguleikarnir eru endalausir.
Fyrir ástríðukokka er þetta ný
leið til að upplifa heiminn, ekki
bara með augum og eyrum, heldur
líka í gegnum bragðlaukana.
Á Indlandi er rík
hefð fyrir matar-
gerð og margt að
smakka.
Að búa til paellu á Spáni, ravíóli á Ítalíu eða Tan-
doori kjúkling á Indlandi er sérstök upplifun.
Hægt er að sameina ástríðu fyrir matargerð og
ferðalög um framandi slóðir með því að fara á
matreiðslunámskeið utan landsteinanna.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Víða um heim er
hægt að njóta þess að
borða framandi mat.
Fyrir ástríðukokka er
tilvalið að fara í mat-
reiðsluferðir erlendis.
17.4. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
Opið 09-23 | Laugavegi 12 | 101 Rvk. | Sími 551 5979 | lebistro.is
Er bylting á
matseðlinum?
Prófaðu frönsku
réttina okkar...
Öndin
er ómótstæðileg
Sigríður Björk Þormar
Unnur Vala
Guðbjartsdóttir
Íris Stefánsdóttir
Elsa Inga Konráðsdóttir
Tómas Kristjánsson
Hanna D. Bizouerne
Kristjana Magnúsdóttir
Elín Anna Baldvinsdóttir Gunnar Örn IngólfssonSoffía Elín Sigurðardóttir
Margrét Ingvarsdóttir
Lísa Kristín
Gunnarsdóttir
Þann 1. apríl opnuðum við nýja sálfræðistofu á Lynghálsinum þar sem saman er
komin breið þekking á sálmeinafræði barna, ungmenna og fullorðinna.
Þar fer fram þverfagleg samvinna og ráðgjöf sálfræðinga, hjúkrunarfræðinga,
félagsráðgjafa, fjölskyldumeðferðarfræðinga og lækna sem styttir allar boðleiðir
og flýtir fyrir þjónustu við okkar skjólstæðinga.
Við bjóðum ykkur velkomin til okkar á Lynghálsinn.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni.
Lyngháls 9, 5. hæð | 110 Reykjavík | Sími 511 0700
Netfang: sal@salfraedingarnir.is | www.salfraedingarnir.is |
Ný sálfræðistofa