Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2016, Blaðsíða 39
17.4. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
Skrúfvélar • Múrfestingar • Byggingafrauð
HAGI ehf Stórhöfða 37 110 Reykjavík • S: 414-3700 • hagi@hagi.is
Hágæða vinnuföt í miklu úrvali
Dunderdon
Öryggisvörur Tæki og múrfestingar
Vinnuskór • Heyrnahlífar • Öndunargrímur
Vinnuvettlingar • Eyrnatappar Gleraugu
Lasermælar • Höggborvélar • Skurðar-/Slípivélar
Demantsbor-/skurðarvélar • Batterísvélar
Skot-/Gasbyssur • Brunaþéttiefni
Hjálmar • Fallvarnarbúnaður
Á Huffington Post má finna ráð frá
fjölskylduþerapista um hvernig á
að fá börn til að taka til eftir sig og
ganga betur um heimilið.
Settu nýjar umgengnisreglur.
Hægt er að beita refsingum. Til
dæmis er hægt að fjarlægja dót í
einhvern tíma ef börn ganga ekki
frá dótinu eftir að hafa verið beðin
um það. Mundu bara að fylgja eftir
refsingunni. Það þýðir ekki að hóta
neinu ef það eru engar afleiðingar.
Reyndu að gera tiltektina
skemmtilega. Í staðinn fyrir að
segja barni að taka til, gerðu úr því
leik. Spurðu hversu marga kubba
er hægt að tína upp á þremur mín-
útum fremur en að segja barninu
að tína þá upp.
Settu gott fordæmi með því að
taka til með bros á vör. Ef börnin
sjá að þú ert í góðu skapi við tiltekt
virðist þetta ekki eins leiðinlegt
fyrir þau.
Ekki spyrja barnið hvort það vilji
taka til. Ef barnið fær það val mun
það líklega segja nei.
Skiptu verkinu niður í viðráðan-
leg verkefni svo það sé ekki barninu
ofviða. Í staðinn fyrir að segja því
að taka til í herberginu, segðu því
að ganga frá fötunum fyrst. Svo
dótinu og koll af kolli.
Settu á hressa tónlist við tiltekt-
ina og það mun reynast barninu
skemmtilegra.
AÐ GERA TILTEKT SKEMMTILEGA
Góð ráð fyrir yngri börn
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Feður eða aðrir aðstandendur
sem viðstaddir eru fæðingu geta
upplifað mikla vanlíðan ef fæðing-
in hefur verið erfið. Óvæntar
uppákomur í fæðingunni geta haft
langvarandi áhrif á andlega heilsu
og hafa sumir feður jafnvel greinst
með áfallastreituröskun.
Til eru úrræði fyrir konur með
fæðingarþunglyndi en minna er til
fyrir karlmenn sem upplifa vanlíð-
an. Nokkrir karlmenn í Bandaríkj-
unum hafa tekið sig saman og
stofnað samtökin „Fathers Reach-
ing Out“ sem hefur það að mark-
miði að auka almenna vitneskju
um fæðingarþunglyndi karlmanna
og hvetja til frekari rannsókna og
úrræða á þessu sviði. Fjallað er
um málið á heilsanokkar.is en þar
er fólki í vanlíðan eftir fæðingu
barns bent á að hafa samband við
heimilislækni, ljósmóður eða
Ljáðu mér eyra, sem er ljós-
mæðrastýrð viðtalsmeðferð fyrir
konur með fæðingarþunglyndi.
FÆÐINGARÞUNGLYNDI
Morgunblaðið/Ásdís
Pabbar í
vanlíðan
Landlæknir gaf nýlega út skýrslu
um viðhorf almennings til holda-
fars. Skýrslan byggist á fjölþjóð-
legri rannsókn sem unnin var í
samvinnu við Yale-háskóla og
benda niðurstöðurnar til þess að
neikvæð viðhorf ríki enn hér á
landi gagnvart feitu fólki. Fordóm-
arnir hafa mjög slæm áhrif á líðan
og félagslega stöðu fólks í yfir-
þyngd. Það veldur því að líkurnar
á því að fólk taki upp heilbrigðari
lífsstíl minnki, og það stuðlar þá
um leið að auknum heilsufars-
vanda hjá þessum hópi.
FÓLK Í YFIRÞYNGD
Getty Images/iStockphoto
Fitufor-
dómar