Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2016, Page 51

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.04.2016, Page 51
17.4. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51 Á náttborðinu hjá mér er The Story of My Teeth eftir skáldkonu frá Mexíkó, Valeria Luiselli, sem er stórfurðuleg saga af spunameistara og tönnunum hans. Eitt af því sem er merkilegt við hana er að þýðandinn fékk leyfi til að bæta við bókina, þannig að ég sé það fyrir mér að þegar þessi bók kemur út á fleiri tungumálum taki hún frekari breytingum. Svo er ég með bók sem heitir á ensku Norwegian Wood, en er norsk bók, heitir Hel ved og er eftir Lars Mytting. Hún segir frá því hvernig maður ræktar skóg og heggur við og hvernig á að raða hon- um. Þessi bók sló alger- lega í gegn í Bretlandi, það hafa selst af henni 100.000 eintök. Svo er ég með kvæðasafn Snorra Hjartarsonar sem kemur bráðum út aft- ur í nýrri útgáfu. Það er alltaf gaman að glugga í hann. Svo er ég með nýja bók eftir Rögnu Sig- urðardóttur, Vinkonur, sem er al- veg nýkomin út og hún er næst. Önnur ný bók á náttborðinu hjá mér er Taktu til í lífi þínu! Þetta er bók sem er gott að blaða í því þetta tekur sinn tíma. Nú mun ég taka til í lífi mínu, fylgja öllum ráðum bók- arinnar og svo fæ ég höfundinn heim til mín til að taka heimilið út. Stella Soffía Jóhannesdóttir Rögnu Sigurðardóttur langaði að skrifa sögu um bernskuvináttu eða unglingavináttu vegna þess að þá erum við svo viðkvæm. Morgunblaðið/Árni Sæberg BÓKSALA 6.-12.APRÍL Listinn er tekinn saman af Eymundsson. 1 JárnblóðLiza Marklund 2 Hælið Sankta PsykoJohan Theorin 3 Kryddjurtarækt fyrirbyrjendur Auður Rafnsdóttir 4 Independent PeopleHalldór Laxness 5 Aðeins ein nóttSimona Ahrnstedt 6 Saga tónlistarinnarÁrni Heimir Ingólfsson 7 Kuggur 14 Hoppað í ParísSigrún Eldjárn 8 Hugskot - skamm-, fram-og víðsýni Friðbjörg Ingimarsdóttir/ Gunnar Hersveinn 9 Meira blóðJo Nesbø 10 Kuggur 15 Rassaköst í RómSigrún Eldjárn 1 JárnblóðLiza Marklund 2 Hælið Sankta PsykoJohan Theorin 3 Aðeins ein nóttSimona Ahrnstedt 4 Meira blóðJo Nesbø 5 MerktEmelie Schepp 6 KólibrímorðinRoslund & Hellström 7 Saga af nýju ættarnafniElena Ferrante 8 Í hita leiksinsViveca Sten 9 Framúrskarandi vinkonaElena Ferrante 10 Níunda sporiðIngvi Þór Kormáksson Allar bækur Íslenskar kiljur MIG LANGAR AÐ LESA Hér til hliðar er sagt frá stuttlista alþjóðlegu Booker-verðlaunanna, en sá sem hlýtur þau hreppir um 800.000 krónur. Í vikunni var líka kynntur stuttlisti annarra alþjóð- legra bókmenntaverðlauna, Impac- verðlaunanna, og þar er heldur meira fé í boði – sigurvegarinn fær um 18 milljónir króna. Á stuttlistanum eru bækurnar Outlaws eftir spænska rithöfundinn Javier Cercas, Academy Street eft- ir írsku skáldkonuna Mary Costello, The End of Days eftir þýsku skáld- konuna Jenny Erpenbeck, A Brief History of Seven Killings eftir hinn jamaíkanska Marlon James, Diary of the Fall eftir Brasilíumanninn Michel Laub, Our Lady of the Nile eftir rúandíska höfundinn Schol- astique Mukasonga og síðan bækur fjögurra bandarískra höfunda; Your Fathers, Where Are They? And the Prophets, Do They Live Forever? eftir Dave Eggers, Dept. of Speculation eftir Jenny Offill, Lila eftir Marilynne Robinson og Family Life eftir Akhil Sharma. Þýski rithöfundurinn Jenny Erpenbeck hefur tvívegis lesið upp hér á landi. Ljósmynd/Lesekreis Metfé í boði IMPAC-VERÐLAUNIN Heyrðu umskiptin Fáðu heyrnartæki til reynslu Það er næstum því sama hvernig heyrnarskerðingu þú ert með og hvernig lifi þú lifir, því ReSound heyrnartækin eru vel til þess fallin að hjálpa þér við að skilja talmál, hafa framúrskarandi hljómgæði og snjalla þráðlausa tengingu. Apple, Apple merkið, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki Apple Inc, skráð í BNA og öðrum löndum. App Store er þjónustumerki Apple Inc. Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is Heyrnartæki eruniðurgreidd afSjúkratryggingum Íslands

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.