Orð og tunga - 01.06.2012, Blaðsíða 9
Formáli ritstjóra
Með þessu hefti af Orði og tungu verða ritstjóraskipti á tímaritinu.
Guðrún Kvaran, sem hefur ritstýrt því allt frá árinu 1997, lætur nú af
því starfi og Ásta Svavarsdóttir tekur við sem ritstjóri. Hún sat áður í rit-
nefnd, sem starfaði um nokkurra ára skeið við hlið ritstjóra (2005-2010),
en frá og með síðasta hefti var ákveðið að leggja ritnefndina af og að rit-
stjórinn tæki einn ábyrgð á útgáfu tímaritsins. Með þessu hefti gengur
aftur á móti öflug ráðgefandi ritnefnd til liðs við tímaritið en henni er
fyrst og fremst ætlað það hlutverk að vera bakhjarl þess og tengiliður við
fræðasamfélagið. Einkum var Ieitað til fræðimanna utan stofnunarinnar,
bæði innan lands og utan, og ritnefndina skipa nú sautján einstaklingar
við fjórtán rannsóknarstofnanir og háskóla í átta löndum.
Allt frá árinu 2005, þegar gerðar voru gagngerar breytingar á útgáfu
og búningi tímaritsins, hefur það verið fastur liður í útgáfu þess að efna
til málþings um tiltekið efni sem síðan hefur orðið þema í næsta hefti
á eftir. Á síðasta ári var 100 ára afmæli Háskóla Islands og af því tilefni
var boðað til fjölda málþinga á ýmsum sviðum auk annarra viðburða.
Hugvísindastofnun efndi til tvöfalds Hugvísindaþings í marsmánuði,
um svipað leyti og efnt hefur verið til málþings á vegum Orðs og tungu,
og var brugðið á það ráð að bjóða upp á málstofu innan þingsins að þessu
sinni. Hún var haldin í samvinnu við Máltæknisetur og var sameiginleg
yfirskrift hennar Stefiiumót: Á mörkum málfræði og tölvutækni. Síðari hluti
málstofunnar var helgaður fyrirhuguðu þema þessa heftis og nefndist
Net til nðfanga orð. Greining og lýsing á mcrkingu og merkingarvenslum. Þar
voru svonefnd orðanet í brennidepli, en um þessar mundir er unnið að
tveimur íslenskum verkefnum á því sviði, íslensku orðaneti og íslenskum
merkingarbrunni. Þrír fyrirlestrar voru haldnir um þetta efni. Matthew
Whelpton, dósent í ensku við Háskóla íslands, hélt inngangsfyrirlestur
þar sem hann fjallaði um orðanet sem gerð hafa verið fyrir ýmis tungu-
mál síðastliðna áratugi og gerði grein fyrir einkennum þeirra, hvað þau
ættu sameiginlegt og hvað skildi þau að. Anna Björk Nikulásdóttir,