Orð og tunga - 01.06.2012, Blaðsíða 103

Orð og tunga - 01.06.2012, Blaðsíða 103
Bókafregnir 93 á eftir notkunarleiðbeiningum (1 bls.) og efnisyfirliti kemur ensk-íslenskur orðalisti (u.þ.b. 60 bls.) með stuttum og einföldum orðabókagreinum. Þær eru flestar aðeins enskt uppflettiorð og íslenskt jafnheiti þess, stundum með skýringarmynd. I einstaka greinum eru þó gefin stutt notkunardæmi til frekari skýringar, t.d. þegar um fleiri en eina merkingu er að ræða og með orðum sem ekki hafa skýra merkingartilvísun heldur tákna e.k. vensl innan sehiingar. Beinar málfræðilegar upplýsingar eru aftur á móti litlar sem engar. Á eftir þessum hluta fylgja u.þ.b. 30 opnur þar sem orðaforði á tilteknum merkingarsviðum er sýndur myndrænt þannig að á hverri opnu er mynd eða myndir sem tengjast tilteknu sviði eða þema og eru orð (sem að jafnaði eru einnig þýdd í orðalistanum) tengd við viðeigandi myndhluta. Sem dæmi um þemu má nefna „Nature" (dýr, plöntur o.fl.), „The body" (líkamshlutar), „The Living Room" (húsgögn, húsbúnaður) og „Time" (árstíðir, vikudagar, veður o.fl.). Síðustu opnurnar í þessum hluta tengjast tilteknum orðflokkum - sögnum og forsetningum, andstæðum, ólíkum myndum sagnarinnar to be og algengu orðalagi („Common Phrases"). Síðasti hluti bókarinnar (rúmlega 50 síður) geymir svo íslensk-enskan orðalista sem speglar fyrsta hlutann. Islensk barnaorðabók er ný einmála orðabók yfir íslensku. Hún er greini- lega öðrum þræði ætluð til þess að þjálfa börn í notkun orðabóka og búa þau þannig undir að notfæra sér almennar orðabækur síðar. Orðabókagreinamar eru byggðar upp og settar fram eins og tíðkast í hefðbundnum orðabókum með upplýsingum um orðflokk og beygingu uppflettiorðanna, orðskýringu sem skipt er í merkingarliði þar sem við á og notkunardæmum þar sem orðin eru sýnd í samhengi. Skammstöfunum er aftur á móti stillt í hóf, t.d. eru beygingarmyndir sýndar í heilu lagi en ekki einungis með endingum. Skýringarnar eru heilar setningar og greinilega er leitast við að hafa þær einfaldar og ljósar. Mikið er af myndum í bókinni og þær virðast bæði gegna skreytingar- og skýringarhlutverki. Framan við orðabókarhlutann er ítarlegur inngangur (10 bls.) með leiðbeiningum um notkun bókarinnar þar sem bygging flettugreinanna og einstakir hlutar þeirra eru skýrðir ná- kvæmlega. Þar er jafnframt formáli um bókina og skammstafanaskrá. Aftan við orðabókarhlutann eru svokallaðar þemasíður á tíu opnum. Þær eru af ýmsu tagi, t.d. er ein opna helguð málsháttum, önnur orðtökum og sú þriðja andheitapörum og er hvert og eitt skýrt með mynd. Ein opna geymir heiti á árstíðum og mánaðaheiti, þ.á m. yfirlit yfir gömul íslensk mánaðaheiti, og önnur er lögð undir norræna goðafræði. Hlutverk orðabókarinnar sem kennslugagns fær stuðning af verkefnum fyrir mismunandi aldursflokka sem nálgast má á vefsíðu útgáfunnar (sjá http://www.forlagid.is/?p=583254). Þrjú afmælis og minningarrit Nefningar. Greinar eftir Svavar Sigmundsson gefnar út í tilefni af sjötugs- afmæli hans 7. september 2009. Ritnefnd: Ari Páll Kristinsson, Guðrún
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114

x

Orð og tunga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Orð og tunga
https://timarit.is/publication/1210

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.