Orð og tunga - 01.06.2012, Blaðsíða 104
94
Orð og tunga
Kvaran og Hallgrímur J. Ámundason. Reykjavík: Stofnun Árna Magnús-
sonar í íslenskum fræðum. Rit 73. 2009. (xiv + 458 bls.) ISBN 978-9979-654-
09-4.
Úrfórum orðabókarmanns. Greinasafn Ásgeirs Blöndals Magnússonar gefið
út í aldarminningu hans 2. nóvember 2009. Ritnefnd: Ágústa Þorbergsdóttir,
Gunnlaugur Ingólfsson og Jónína Hafsteinsdóttir. Reykjavík: Stofnun Árna
Magnússonar í íslenskum fræðum. Rit 76. 2010. (xii + 283 bls.) ISBN 978-
9979-654-11-7.
Fjöruskeljar. Afmælisrit til heiðurs Jónínu Hafsteinsdóttur sjötugri 29. mars
2011. Ritnefnd: Guðrún Kvaran, Hallgrímur J. Ámundason og Svavar Sig-
mundsson. Reykjavík: Stofnun Áma Magnússonar i íslenskum fræðum. Rit
81. 2011. (xii + 256 bls.) ISBN 978-9979-654-18-6.
Þrjú greinasöfn um orðaforða, nafnfræði og málfræði hafa nýlega verið gefin
út í ritröð Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum í tilefni tíma-
móta hjá starfsmönnum stofnunarinnar eða forvera hennar. Þetta eru afmæl-
isrit til Svavars Sigmundssonar og Jónínu Hafsteinsdóttur og rit í aldarminn-
ingu Ásgeirs Blöndals Magnússonar (1909-1987).
í afmælisriti Jónínu, Fjöruskeljum, eru tuttugu og tvær greinar skrifaðar af
félögum hennar og samstarfsfólki sérstaklega fyrir þetta rit. Þær fjalla allar
á einn eða annan hátt um örnefni eða önnur staðarnöfn. Meðal höfunda eru
fræðimenn á svið náttúruvísinda jahit sem hug- og félagsvísinda og sjón-
arhornið er því talsvert fjölbreytilegt. Margar greinanna fjalla um einstök
örnefni eða örnefni á tilteknum svæðum til sjávar og sveita. Þar má nefna
grein Kjartans Olafssonar um Ræningjahól og grein Valgarðs Egilssonar
um Sólarfjall, grein Ævars Petersens um örnefni í Mánáreyjum, Hauks Jó-
hannessonar um ömefni í Kolbeinsvík og grein eftir Gunnlaug Ingólfsson
um heiti á húsum og öðrum kennileitum í Kleppsholtinu í Reykjavík um
miðbik 20. aldar. Aðrar greinar fjalla um tiltekna gerð eða flokka örnefna
svo sem grein Hrefnu Sigríðar Bjartmarsdóttur, Nykur í þjóðtrú og örnefnum.
Fleiri greinar koma inn á þjóðtrú í tengslum við örnefni, þ.á m. grein eftir
Bjama Harðarson, Síðar urðu þar reimleikar, um þjóðsögu tengda svonefndan
Stelpusteini í Biskupstungum. Einnig má nefna greinar sem snerta örnefni
sem vitnisburð um söguleg og menningarleg fyrirbæri, t.d. grein Birnu
Lárusdóttur, Þúfnabanar, kjarnorka og netabolir, og grein Bjama F. Einarssonar
um rostunga við ísland. Svavar Sigmundsson fjallar um aldur örnefna og
Ari Páll Kristinsson skrifar grein um rithátt ríkjaheita. í heild gefur ritið
fjölbreytta og áhugaverða innsýn í örnefnafræði og vitnar um það hvernig
hún snertir ólík fræðasvið.
Hin greinasöfnin tvö eiga það sammerkt að þar er birt úrval greina eftir
þá menn sjálfa sem ritin em tileinkuð og að greinamar hafa allar birst áður
í bókum eða tímaritum. Greinasafn Svavars er efnislega skylt afmælisriti
Jónínu þvi langflestar þeirra þrjátíu og Hmm greina sem þar eru prentaðar
fjalla um nafnfræði og örnefnafræði. Meðal viðfangsefna eru íslensk örnefni