Orð og tunga - 01.06.2012, Síða 45

Orð og tunga - 01.06.2012, Síða 45
Anna B. Nikulásdóttir: Tölvutækur merkingarbrunnur 35 rauninni tengd. I þessu ferli verða einnig möguleikar til einræðingar kannaðir, meðal annars með því að athuga hvort þau orð sem tengjast ákveðnu orði tilheyri mismunandi merkingarsviðum. Sem dæmi má nefna að orð sem tengjast orðinu olía tengjast líka ýmist orðum af merkingarsviðinu ,orka' (bensín, kol), ,matargerð' (panna, smjör), ,myndlist' (strigi, pensill) eða ,snyrting og vellíðan' (krem, nudd). Ut frá þessu væri hægt að skilgreina fjórar merkingar orðsins olía og aðskilja þær í gagnagrunninum. Til þess að meta gæði sjálfvirku greiningarinnar og hvort samþætt- ing niðurstaðna skilar árangri verður tilviljunarúrtak metið. Matið verður í höndum meistaranema sem mun fara yfir úrtak úr niður- stöðunum fyrir og eftir samþættingu. Ohjákvæmilegt er að í niðurstöðum sjálfvirkrar greiningar, eins og hér hefur verið lýst, leynist villur. Til þess að auðvelda vinnu við að fara yfir gagnagrunninn handvirkt verður þróað notendaviðmót með verkferlum til þess að bæta við, eyða út og leiðrétta vensl. Þess konar leiðrétting mun vitanlega taka töluverðan tíma en vonast er til að merkingarbrunnurinn nýtist frá upphafi þrátt fyrir að eitthvað verði um villur. Tilraunir með tengingar við máltæknihugbúnað munu leiða það í ljós. 8 Lokaorð Islenskur merkingarbrunnur er tölvutækt merkingarnet sem unnið er með sjálfvirkum aðferðum. Aðferðirnar byggjast á mynsturgreiningu og tölfræði og miða að því að greina merkingarupplýsingar orða úr stóru textasafni. Niðurstöðurnar sýna fjölbreytt merkingarvensl og flokkun orða eftir merkingarsviðum. Alls eru um 134 þúsund nafnorð, sagnorð og lýsingarorð í merkingarbrunninum og vel á aðra milljón vensla. Þessar tölur eru þó ekki endanlegar þar sem enn er unnið að síðasta hluta verkefnisins, sem felst í því að samþætta niðurstöður einstakra greiningaraðferða. Markmiðið er að kanna hvernig niðurstöður mis- munandi aðferða styrðja eða hrekja einstök vensl og meta þannig hvaða vensl eru líkleg til þess að vera rétt og hver síður. Einnig verða möguleikar einræðingar kannaðir. Þótt formgerð merkingarbrunnsins sé nokkuð önnur en formgerð Princeton WordNet, er stefnt að því að gera tilraun með að tengja hluta
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114

x

Orð og tunga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Orð og tunga
https://timarit.is/publication/1210

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.