Orð og tunga - 01.06.2012, Page 79

Orð og tunga - 01.06.2012, Page 79
Umsagnir um bækur 69 að óbeint í útgáfunni. I fyrsta lagi: Hvert er eiginlega aðalmarkmið útgáfunnar? og í öðru lagi: Við sögu hvaða „Glossary" er átt í inn- gangskaflanum? 3 Inngangur ritstjóra Inngangi Anthony Faulkes (s. vii-xlvi) er skipt í tvo kafla: annars veg- ar er rakinn aðdragandi Specimen lexici rnnici og tengsl ritsins við DG 55 og önnur samtímaverk hins vegar er gerð grein fyrir heimildum að dæmum og skýringum sem koma fyrir í orðabókinni og handritinu. 3.1 „The Glossary": Uppruni og saga Vitað er að danski vísindamaðurinn og fornfræðingurinn Ole Worm átti frumkvæðið að útgáfu orðabókarinnar SLR, sem eignuð er Magn- úsi Ólafssyni, presti í Laufási í Eyjafirði. Viðfangsefni orðabókarinnar og hlutverk Magnúsar kemur fram í titli orðabókarinnar: „Specimen lexici runici, obscuriorum qvarundam vocum, qvæ in priscis occur- runt Historiis & Poetis Danicis, enodationem exhibens. Collectum á Dn. Magno Olavio Pastore Laufasiensi in Islandia doctissimo." Skýrt er frá hvernig Worm fór þess á leit við séra Magnús 1635 að hann tæki saman lista yfir orðaforðann í fornum íslenskum kveðskap (Specimen 2010:viii). Þrátt fyrir áhuga og þekkingu í fornum fræðum var íslenskukunnáttu Ole Worms vægast sagt ábótavant. Telur Faulkes að Magnús hafi þegar verið byrjaður á verki af svipuðu tagi því þegar hann lést 1636 var orðalistinn langt kominn. Svo virðist sem fóstursonur hans og eftirmaður í Laufási, Jón Magnússon, hafi bætt í uppkast Magnúsar og sent Ole Worm, án þess þó að ljúka verkinu að fullu. Afrit Jóns og uppkast Magnúsar eru nú glötuð. Þar með hefst leitin að „The Glossary". Eins og Faulkes skýrir frá styðst SLR (1650) ekki eingöngu við verk prestanna. í háskóla- bókasafninu í Uppsölum er varðveitt handritið DG 55, „Glossarivm Priscæ Lingvæ Danicæ collectum a Magno Olai Jslando Pastore Lavfasiensi; anno M. DC. XXXVI". Handritið geymir afrit af verkum þeirra Magnúsar og Jóns. Gerð er grein fyrir uppruna þess og tengslum bæði við hin glötuðu handrit Laufásprestanna og við SLR eins og hún birtist 1650. DG 55 er ýtarlega lýst. Gætir viss misræmis í efni SLR og
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114

x

Orð og tunga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Orð og tunga
https://timarit.is/publication/1210

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.