Morgunblaðið - 09.06.2016, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 2016
„Árituðum bréfum í dreifikerfinu
hefur fækkað um 51% á síðustu tíu
árum,“ segir Ingimundur Sigur-
pálsson, forstjóri Íslandspósts, að-
spurður hvers vegna þjónusta
póstsins á landsbyggðina hafi dreg-
ist svo mikið saman undanfarin ár.
Pósturinn ákvað nýlega að bera
póst á landsbyggðinni út þrjá daga í
viku aðra vikuna og tvo hina. Hafa
margir lýst yfir óánægju sinni með
nýja fyrirkomulagið. Ingimundur
segir mikinn sparnað falinn í því að
fækka póstdreifingardögum. Það
sé ástæðan fyrir því að póstur í
þéttbýli hafi til dæmis verið borinn
út annan hvern dag síðan 2012.
Ingimundur telur flesta hafa
skilning á því að ekki hafi verið
hægt að reka
póstþjónustu sem
ekki stendur
undir sér, enda-
laust. Þó hafi
borist ályktanir
frá sveitastjórn-
um þar sem nýja
fyrirkomulagið
er gagnrýnt.
Hann telur þá
gagnrýni þó
frekar beinast að ríkinu. „Víða í
Evrópu er dreifbýlisþjónustan
greidd niður. Norðmenn borga sex
milljarða á ári til að niðurgreiða
póstþjónustuna,“ segir Ingimund-
ur.
Gagnrýnt hefur verið að A-
póstur komist ekki lengur tím-
anlega til skila á landsbyggðinni.
Ingimundur segir A-póstþjónustu
Póstsins standast allar kröfur. „Við
mælum þetta oft á ári og skilum
niðurstöðum til Póst- og fjar-
skiptastofnunnar og erum alltaf yf-
ir þessum viðmiðum á landsvísu,“
segir Ingimundur. Annars á hann
von á því að dreifingardögum
fækki enn frekar í framtíðinni. Þró-
un í þá átt sé hafin á hinum Norður-
löndunum og skoðanakannanir
bendi til þess að fólk telji fullnægj-
andi að fá póst tvisvar til þrisvar í
viku. Hann á því von á að grunn-
krafan verði brátt svipuð hér og þá
verði hægt að spara mikið í kerfinu.
elvar@mbl.is
Póstþjónusta mun skerðast
Sendum bréfum fækkað um rúmlega helming Ekki forsendur
fyrir taprekstri Póstþjónusta mun líklega dragast meira saman
Ingimundur
Sigurpálsson
Umræða um heimagistingu og leigu-
íbúðir í skammtímaleigu fór fram í
borgarstjórn á þriðjudag. Þar kom
fram í bókun borgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins að fjöldi hótelrýma
myndi ekki mæta fjölda ferðamanna
næstu árin og enn yrði mikil eftir-
spurn ferðamanna eftir íbúðarhús-
næði í skammtímaleigu. Þá segir enn
fremur í bókuninni að á sama tíma sé
líklegt að húsnæðisvandinn í Reykja-
vík verði enn mjög alvarlegur. „Ný
lög gera heimagistingu auðveldari en
setja jafnframt þak á fjölda útleigu-
daga og leigutekjur.
Í Reykjavík eru íbúðir sem nýttar
eru í heimagistingu nú langflestar
leigðar út lengur en 90 daga og fyrir
hærri fjárhæðir en lögin geri ráð
fyrir. Nauðsynlegt er að borgar-
stjórn fylgist náið með hvort þróun
verður á þann hátt að íbúðarhúsnæði
verði í meira mæli notað í skamm-
tímaleigu en áður og hvort íbúðar-
húsnæði sem nú er nýtt í heimagist-
ingu verði breytt í íbúðargistingu í
meira mæli með frekari langtíma-
áhrifum á almennan leigumarkað. Þá
þarf að setja viðmið um hvenær fjöldi
íbúða í skammtimaleigu hafi nei-
kvæð áhrif á íbúaskilyrði einstakra
hverfa eða svæða.“ benedikt@mbl.is
Borgarstjórn verð-
ur að fylgast með
Eftirspurn eftir skammtímaleigu
Samfélagssjóður Valitor veitti ný-
verið alls níu styrki sem námu átta
milljónum króna. Hlutverk sjóðsins
er að styðja við vandlega valin mál-
efni, sem bæta mannlíf og efla.
Stjórn sjóðsins afhenti styrkina, en
hana skipa Guðmundur Þorbjörns-
son, stjórnarformaður Valitor, Við-
ar Þorkelsson, forstjóri Valitor, og
Kristján Þór Harðarson, fram-
kvæmdastjóri alþjóðasviðs Valitor.
Sjóðurinn var stofnaður fyrir 24 ár-
um og hafa frá upphafi verið veittir
samtals 182 styrkir til einstaklinga
og samtaka, sem láta til sín taka á
sviði menningar-, mannúðar-, sam-
félags- og velferðarmála.
Meðal þeirra sem hlutu styrk að
þessu sinni eru Herdís Stefáns-
dóttir, til að stunda meistaranám í
kvikmyndatónsmíðum við New
York University, Kammermúsík-
klúbburinn, vegna 60 ára afmælis
klúbbsins, vökudeild Landspítalans,
til að kaupa hugbúnað sem sam-
hæfir næringarblöndur við blóð-
prufur og einnig til kaupa á hús-
gögnum í foreldraherbergin til að
bæta aðbúnað foreldra og nýbura.
Þá fékk Geðhjálp styrk til að fram-
leiða myndband vegna verkefnisins
,,Útmeð’a“ sem hvetur ungt fólk til
að tjá sig um andlega líðan til að
draga úr hættu á sjálfsskaða og
sjálfsvígum, svo fátt eitt sé nefnt.
benedikt@mbl.is
Glaðbeitt Styrkþegar úr samfélagssjóði og fulltrúar þeirra ásamt stjórn-
endum Valitor að lokinni athöfn þar sem styrkirnir voru afhentir.
Styrkir veittir
til góðra verka
Úthlutað úr Samfélagssjóði Valitor
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Marco Antonio Evaristti, sem hefur
verið kærður af landeiganda að
Geysissvæðinu fyrir að hafa sett
rauðan lit í hverinn Strokk, heldur
því fram að liturinn hafi verið skað-
laus. Þá hafi hann rannsakað mögu-
lega skaðsemi hans áður en hann
framdi gjörninginn. Þetta kom fram
við aðalmeðferð málsins í Héraðs-
dómi Suðurlands í gær.
Er Evaristti var spurður af sak-
sóknara hvernig hann gæti útskýrt
þann verknað sem hann er ákærður
fyrir, sagðist Marco, en það er lista-
mannsnafn Evaristti, hafa fram-
kvæmt listaverk í ýmsum löndum.
„Ég geri það vegna þess að ég tel
það nauðsynlegan þátt í umleitan
minni við að annast náttúruna,“
sagði Marco.
„Þetta lítur fallega út og ég not-
aðist við skaðlausa ávaxtaliti. Ég
gerði þetta á grundvelli skýrslu
rannsóknarstofnunar í Danmörku
þar sem fram kemur að þetta efni sé
skaðlaust og eyðist innan nokkurra
klukkutíma. Landslagið er notað
sem nokkurs konar málarastrigi, til
að framkvæma listaverkið,“ sagði
hann. Einnig kom fram að hann hefði
sett fimm lítra af litnum í hverinn og
að hann teldi að hann hefði ekki
raskað umhverfi hversins og honum
sjálfum með einhverjum hætti.
Fram kom í málflutningi saksókn-
ara að ljóst væri að talsverð spjöll
hefðu orðið á hvernum þegar litnum
var hellt í hverinn. Liturinn hefði
varað í nær viku og þannig haft slæm
áhrif á upplifun þeirra sem svæðið
heimsóttu á þeim tíma. Þá sagði sak-
sóknari að lokum að ákæruvaldið
teldi hæfilega refsingu vera 200 þús-
und króna sekt.
Verjandi Marco sagði engan
ágreining vera um málavöxtu, held-
ur aðeins hvort verknaðurinn væri
refsinæmur því að 37. grein náttúru-
verndarlaga fæli ekki í sér nægilega
skýra refsiheimild.
Segist hafa sett skað-
lausan lit í Strokk
Notaði ávaxtaliti til að lita Strokk Áhrifa gætti í viku
Upplifun Verjandi Marco sagði gjörninginn vera „eins og að krota í sand á
strönd“, sem myndi mást skömmu síðar. Enginn sá Strokk gjósa rauðu.
Strokkur málaður
» Marco Antonio Evaristti er
ákærður fyrir að hafa sett
rauðan lit í hverinn Strokk.
» Geysir og hverasvæðið sem
við hann er kennt eru ekki frið-
lýst.
» Ákæruvaldið telur hæfilega
refsingu vera 200 þúsund
króna sekt.
Bíldshöfði 12 · 110 Rvk · 5771515 · skorri.is
Er vagninn rafmagnslaus
Frístunda rafgeymar í miklu úrvali
?
Stjórn Lands-
sambands kúa-
bænda hefur
gengið frá ráðn-
ingu Margrétar
Gísladóttur sem
framkvæmda-
stjóra LK frá og
með næstu mán-
aðamótum. Þá
mun Baldur
Helgi Benjamíns-
son láta af störfum eftir 10 ár hjá
LK. Margrét er menntaður al-
mannatengill og markþjálfi og hef-
ur reynslu af stjórnun og ráðgjöf á
sviði upplýsinga- og kynningar-
mála. Hún hefur undanfarið starf-
að sem ráðgjafi hjá KOM ráðgjöf
og rak áður eigið ráðgjafarfyrir-
tæki, Taktík ehf. Árin 2013-2015
starfaði hún sem aðstoðarmaður
utanríkisráðherra og sem sér-
stakur ráðgjafi ráðherra í
forsætisráðuneytinu.
Nýr framkvæmda-
stjóri kúabænda
Margrét
Gísladóttir