Morgunblaðið - 09.06.2016, Síða 14
14 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 2016
Fyrir konur
á öllum aldri
Margir litir • Stærðir S-XXXXL
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Velúrgallar
Verið velkomin
TAX FREEaf öllum snyrtivörum út júní
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Ef enginn flytur hingað meðbörn verður eitt barn eftirá skólaaldri í vetur, en þaðer dóttir mín, þá munum
við flytja til Reykjavíkur og sækja
skóla þar. Ef skólastjóri með börn
sækir um stöðuna sem er laus þá
verður skóli áfram. Það er ósk okkar
allra að þessi frábæra menntastofnun
haldi velli,“ segir Elín Agla Briem,
íbúi í Árneshreppi á Ströndum og
þjóðmenningarbóndi.
Staða skólastjóra og kennara við
Finnbogastaðaskóla í Árneshreppi
hefur verið auglýst. Í auglýsingunni
er tekið fram að vegna smæðar sam-
félagsins er fólk með börn hvatt til að
sækja um en íbúð fylgir stöðu skóla-
stjóra. Elín Agla bendir á að staða
kaupfélagsstjóra sé einnig laus og
húsnæði fylgir því líka. Í fyrsta skipti
í áraraðir er einnig jörð til sölu í Ár-
neshreppi. Hún bendir á að það sé því
tilvalið fyrir barnafjölskyldu að
kaupa jörð og stunda búskap í sveit-
inni.
Gjöfull tími
Árneshreppur á Ströndum er fá-
mennt sveitarfélag. Um 40 íbúar eru
þar yfir vetrartímann, að sögn Elínar
Öglu en þeim fjölgar töluvert á sumr-
in. Flogið er á Gjögur tvisvar í viku
en yfir vetrartímann getur verið
ófært landleiðina þegar vegirnir eru
ekki mokaðir.
Elín Agla hafði enga tengingu í
Árneshreppinn áður en hún kom
þangað í fyrsta skipti árið 2007 til að
gifta sig. Sama ár rak hún nefið í aug-
lýsingu frá hreppnum þar sem spurt
var um galdrakunnáttu en um var að
ræða lausa stöðu skólastjóra við
Finnbogastaðaskóla. Úr varð að Elín
sótti um. Hún var eini umsækjandinn
á þeim tíma og fékk starfið þrátt fyrir
að vera ekki með formlega kennara-
menntun. „Þetta var gjöfulasti og
dýrmætasti tími sem ég hef lifað,“
segir Elín Agla sem starfaði sem
skólastjóri við Finnbogastaðaskóla í
þrjú ár.
Samfélagið heillar mest
„Það er samfélagið sem heldur
mér hér. Það er eitthvað sem lifir hér
sem er hollt fyrir fullorðna og börn og
er mjög dýrmætt. Þegar ég kom
hingað fyrst féll ég í stafi yfir sam-
félaginu en náttúran er líka stór-
brotin og einstök og það spillir ekki
fyrir,“ segir Elín Agla. Hún segir ein-
stakt að búa á Ströndunum í alla staði
en samfélagið sem er fámennt en
samheldið vegi þyngst í ákvörðun
hennar um að búa þar. Hún segir alla
í sveitinni tilbúna að leggja sitt af
mörkum til samfélagsins og hjálpa
hver öðrum.
Þrátt fyrir að sveitarfélagið sé á
meðal þeirra afskekktustu á landinu,
sérstaklega yfir vetrartímann, segist
Elín Agla aldrei finna fyrir einmana-
leika. „Það er fátt betra yfir vetrar-
tímann en að fara í Krossneslaug,
horfa á stjörnurnar og norðurljósin.
Þetta er fallegasta laug á landinu,
einstök náttúruperla sem margir vilja
komast í tæri við yfir sumartímann.“
Elínu er margt til lista lagt og
nýverið bætti hún nýjum starfstitli
við en hún starfar sem löndunarstjóri
við Norðurfjarðarhöfn. Hún lauk ný-
verið tilskildum prófum til þess og
keyrir lyftara og tekur á móti silfri
hafsins af rúmlega 20 smábátum.
„Þetta er mjög skemmtilegt en
krefjandi. Það er svo gaman að fá
tækifæri til að kynnast sjávarútveg-
inum sem er það dýrmætasta sem við
eigum. Svo er ekki verra að vera
hornsteinn kvótakerfisins. Þegar ég
tók prófið var lögð áhersla á að við
værum í mjög mikilvægu starfi. Við
sjáum um að vigta allt og skrá það
sem kemur upp úr sjónum,“ segir El-
ín Agla.
Í fyrradag tók hún á móti 15
þúsund kílóum af þorski. Við hlið
hennar starfar Gunnsteinn Gíslason,
fyrrverandi löndunarstjóri og oddviti
um áratugaskeið. Hún segist vera
einstaklega heppin að fá að starfa við
hlið Gunnsteins sem styðji hana vel í
starfinu. „Það er alltaf gaman að læra
eitthvað nýtt og það hefur þetta sam-
félag kennt mér. Ég vil hvetja alla til
að gefa þessu tækifæri og sækja um.
Það skiptir máli núna að styðja við
smærri byggðir í landinu því það er
fólk sem viðheldur því. Ég hlakka
einlæglega til að taka á móti nýju
fólki,“ segir Elín Agla.
Stýrði skóla og er
nú löndunarstjóri
Skólahald í Árneshreppi á Ströndum gæti lagst af ef fleiri börn flytja ekki í sveitarfé-
lagið en skólastjóri með börn er hvattur til að sækja um lausa stöðu við Finnboga-
staðaskóla. Elín Agla hafði aldrei stigið fæti í Árneshreppinn en féll fyrir honum ár-
ið 2007 þar sem hún hefur búið ásamt dóttur sinni og er löndunarstjóri í dag.
Ljósmynd/Davíð Már Bjarnason
Náttúruperla Krossneslaug er náttúruperla með útsýni langt út á haf.
Ljósmynd/Yrsa Roca Fannberg
Vinir Elín Agla Briem með tíkina Kátu í fanginu á góðri stund.
Ljósmynd/Hrafn Jökulsson
Löndunarstjóri „Að vinn’ á lyftara? Ekkert mál. Það er ekkert mál.“ Þetta
sungu Grýlurnar forðum og ætli Elín Agla söngli ekki með í vinnunni.
Flestir Reykvíkingar hafa efalítið
komið í helstu almenningsgarða
borgarinnar, jafnvel fengið sér ís
og sest þar á bekk á góðviðris-
dögum. Ekki er þó síður notalegt
að viðra sig að kvöldlagi. Í göngu-
för með Birni Unnari Valssyni, verk-
efnastjóra í Borgarbókasafni, verð-
ur hins vegar ekki til setunnar
boðið, en hann er í fararbroddi
bókmenntagöngu um þrjá helstu
almenningsgarða í miðborginni kl.
20 til 21.30 í kvöld, 9. júní.
Komið verður við í Víkurgarði,
sem oft er nefndur Fógetagarður.
Einnig verður gengið um fagran og
friðsælan Alþingisgarðinn, sem um-
kringdur er háum steinvegg og er
fyrir vikið fremur falinn og að
sama skapi fáfarinn, þótt hann hafi
verið opinn almenningi síðan 1950.
Víkurgarður og Alþingisgarðurinn
eru elstu almenningsgarðar í borg-
inni. Loks verður gengið um Einars-
garð, snotran, lítinn almennings-
garð sem liggur fyrir ofan gömlu
Hringbraut og fyrir neðan mót
Laufásvegar og Barónsstígs.
Einarsgarður á rætur sínar að rekja
til Gróðrarstöðvarinnar sem starf-
aði þar milli 1899 og 1931 og heitir
í höfuðið á Einari Helgasyni garð-
yrkjufræðingi. Í görðunum verður
lesið úr ljóðum og sögum sem
tengjast þessum grónu reitum.
Gangan hefst við Borgarbókasafnið
í Grófinni. Þátttaka er ókeypis og
allir velkomnir.
Bókmenntaganga um almenningsgarða í miðborginni
Morgunblaðið/Ómar
Falinn og fáfarinn Alþingisgarðinn hefur verið opinn almenningi síðan 1950.
Fyrir ofan garð og neðan