Morgunblaðið - 09.06.2016, Blaðsíða 46
EM Í FÓTBOLTA KARLA46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 2016
BAKSVIÐ
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Á sama tíma og keppendur eru í loka-
undirbúningi fyrir Evrópumót karla í
knattspyrnu í Frakklandi eru
öryggissveitir þar í landi sérstaklega
á varðbergi fyrir hugsanlegum
hryðjuverkum. Er óttast að vopnaðir
hópar íslamista láti til skarar skríða
gegn þeim fjölmörgu sem í hyggju
hafa að sækja Frakkland heim á með-
an mótið stendur yfir.
Meðal þess sem franska ríkis-
stjórnin hefur látið gera þegar kemur
að öryggisráðstöfunum á Evrópu-
mótinu er sérstakt snjallsímaforrit,
en það á að vara notendur þess við
hvers kyns öryggisógnum. Að sögn
talsmanns innanríkisráðuneytis
Frakklands er hægt að nálgast forrit
þetta án endurgjalds og á tveimur
tungumálum, þ.e. ensku og frönsku.
„Hugsanleg skotmörk á EM 2016
eru íþróttaleikvangar, svæði stuðn-
ingsmanna, staðir sem sýna frá
mótinu, samgöngukerfi og sam-
göngustöðvar,“ hefur fréttaveita AFP
eftir innanríkisráðuneytinu.
Stjórnvöld í Bretlandi hafa einnig
gefið út viðvörun vegna hugsanlegra
hryðjuverka, en í tilkynningu frá
þeim segir meðal annars að uppi sé
„mjög mikil ógn vegna hryðjuverka“
allan þann tíma sem Evrópumótið
stendur yfir. Þá hafa stjórnvöld
vestanhafs einnig varað bandaríska
ríkisborgara við ferðalögum til Evr-
ópu vegna hættu á hryðjuverkum í
sumar, einkum á umræddu móti.
Þótt bandarísk stjórnvöld hafi
margsinnis áður gefið út sams konar
viðvaranir fyrir hin og þessi svæði í
heiminum er þetta einungis í þriðja
skipti sem það er gert fyrir Evrópu á
20 ára tímabili.
Evrópubúar verið í afneitun
Breska ríkisútvarpið (BBC) greinir
frá því að Shamila Chaudhary, fyrr-
verandi ráðgjafi ríkisstjórnar Bar-
acks Obama Bandaríkjaforseta, segir
það venju samkvæmt að stjórnvöld í
Bandaríkjunum gefi út ferðaviðvar-
anir fyrir þá staði þar sem hryðjuverk
eru „normið“ en það segir hún eiga
við um Evrópu nú.
„Ég tel að Evrópubúar hafi verið í
afneitun þegar kemur að hryðjuverk-
um innanlands,“ segir Chaudhary í
samtali við BBC.
Richard Barrett, fyrrverandi yfir-
maður þeirrar deildar bresku leyni-
þjónustunnar MI6 sem berst gegn
hryðjuverkum, dregur hins vegar
nokkuð úr ógninni. Segir hann ferða-
viðvörun ráðamanna í Washington
DC ekki þýða að öruggt sé að víga-
menn geri hryðjuverkaárás.
„Þeir eru að tala um alla Evrópu,“
hefur BBC eftir Barrett, en óljósar
upplýsingar eru sagðar fylgja viðvör-
un Bandaríkjamanna.
Fjölskyldan kemur ekki með
Þýski landsliðsmaðurinn Jerome
Boateng segir í samtali við AFP að
eiginkona hans og tvö börn þeirra
muni ekki fylgja honum til Frakk-
lands vegna hættu á hryðjuverkum.
„Hver og einn verður að ákveða
sjálfur hvernig hann tekst á við þetta.
Ég hef þegar tekið ákvörðun,“ segir
hann við fréttamann þýska frétta-
blaðsins SportBild og heldur áfram:
„Fjölskylda mín og börn munu ekki
mæta á leikvanginn. Áhættan er ein-
faldlega of mikil.“
Nýverið var greint frá því að ungur
karlmaður með ríkisfang í Frakklandi
hefði verið handtekinn í Úkraínu. Í
fórum hans fannst mikið magn vopna,
s.s. skotvopn og sprengiefni, og er
hann sagður hafa ætlað sér að fremja
voðaverk á Evrópumótinu.
Fram kom í yfirlýsingu frá stjórn-
völdum í Úkraínu að maðurinn, sem
er 25 ára gamall, hefði ætlað að ráðast
á moskur og sýnagógur í Frakklandi.
AFP greinir frá því að ráðamenn í
París hafi enn ekki viljað tjá sig opin-
berlega um handtökuna og að sak-
sóknurum sem sérhæfa sig í málum
er tengjast hryðjuverkum hafi heldur
ekki verið falið að sjá um málið. Þykir
þetta að sögn AFP til marks um að
stjórnvöld telji manninn ekki hafa
verið ógn við mótið.
Æfa viðbrögð við árásum
Franskar öryggissveitir hafa
undanfarnar vikur æft viðbrögð við
árás vígamanna á fjölmenna staði. Ein
slík æfing var gerð á íþróttaleik-
vanginum í Lyon, þar sem sjálfs-
vígssprengjuárásir voru settar á svið.
Breska blaðið The Guardian segir að
minnst 30 stórar æfingar hafi verið
haldnar af lögreglu á þeim stöðum þar
sem mótið fer fram. Auk viðbragða við
sjálfsvígssprengjumönnum hafa verið
æfð viðbrögð við sýkla- og efnavopna-
árásum og skot- og sprengjuárásum.
„Við gerum allt sem við getum til að
koma í veg fyrir árás hryðjuverka-
manna og búum okkur undir að takast
á við þær,“ segir Bernard Cazeneuve,
innanríkisráðherra Frakklands.
Alls munu um 90.000 manns skipa
öryggissveitir á Evrópumótinu. Af
þeim verða um 42.000 lögreglumenn,
30.000 sérsveitarmenn og um 10.000
hermenn í fullum herklæðum. Þá
verða einnig um 13.000 öryggisverðir
frá einkareknum öryggisfyrirtækjum
fengnir til að standa vörð.
Richard Walton, yfirmaður að-
gerða gegn hryðjuverkum hjá bresku
lögreglunni á Ólympíuleikunum í
Lundúnum 2012, segir að aldrei fyrr
hafi jafn mikil ógn beinst gegn nokkr-
um íþróttaviðburði og nú.
Varar hann við því að treysta um of
á þá aðferð að fylla allar götur og al-
menningsstaði af einkennisklæddum
öryggissveitum. Mun mikilvægara sé
að styrkja og auka upplýsingaöflun
og samhæfingu aðgerða.
Fleiri vandamál en hryðjuverk
Hugsanleg hryðjuverk eru ekki
það eina sem frönsk stjórnvöld þurfa
nú að glíma við, en þar í landi hafa
menn jafnframt þurft að takast á við
afleiðingar flóða og verkfalla fjöl-
margra starfsstétta. Í hópi þeirra
sem lagt hafa niður störf undanfarið
eru sorphirðumenn og er rusl því víða
farið að safnast upp með tilheyrandi
óþrifnaði.
AFP greinir frá því að vandamál
þetta sé meðal annars til staðar í
borginni Saint-Etienne, þar sem Ís-
land leikur fyrsta leik sinn.
Leikið í skugga ógnar
Við gerum allt sem við getum til að koma í veg fyrir árás, segir innanríkisráðherra Frakklands
Um 90.000 manns skipa öryggissveitir á Evrópumótinu Lögreglan haldið fjölmargar æfingar
var kostnaðurinn
af því að reisa eða
endurnýja 10
leikvanga
Áætlaður heildarfjöldi
áhorfenda á leikvöngunum
greiddur fyrir
útsendingarrétt
24 lið taka
þátt í mótinu en
ekki 16 eins og í
síðustu 5 mótum
6.500
sjálfboðaliðar
10
er fjöldi borga
þar sem leik-
irnir fara fram
(125.000 krónur)
er verðið á dýrasta
miðanum á úrslita-
leikinn á Stade
de France í París
230
lönd og landsvæði þar sem
leikirnir verða
sýndir í sjónvarpi
5 lönd taka þátt
í EM í fyrsta
skipti, þeirra á
meðal Ísland
Evrópumótið í tölum
Heimild: UEFA
1,7milljarðar €
2,5 milljónir
895 €
1 milljarður €
AFP
Við æfingar Sérsveitarmenn æfa viðbrögð við árás vígamanna á íþróttaleikvanginum í Lyon.
AFP
Hervernd Franskir hermenn standa þungvopnaðir vaktina í Nice í suðausturhluta landsins.
AFP
Óþrifnaður Verkfall sorphirðumanna setur sterkan svip á miðborg Parísar.