Morgunblaðið - 09.06.2016, Page 53
UMRÆÐAN 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 2016
Um ókomin ár
verða jarðgöng sunn-
an Arnarfjarðar, að
Dýrafjarðargöngum
meðtöldum, ein mikil-
vægustu samgöngu-
mannvirki fjórðungs-
ins sem rjúfa endan-
lega alla vetrarein-
angrun milli byggð-
anna á sunnanverðum
og norðanverðum
Vestfjörðum. Í at-
vinnu- og samgöngulegu tilliti
stytta þau vegalengdina milli Vest-
urbyggðar, Barðastrandar og
byggðanna norðan Hrafnseyrar-
heiðar sem fær fljótlega sitt fyrsta
og síðasta dánarvottorð. Í beinu
framhaldi af Dýrafjarðargöngum
eru það stutt göng undir Meðalnes-
fjall til að vegfarendur losni endan-
lega við slysahættuna í Mjólkárhlíð.
Um tvennt stendur valið til að
hægt sé að tryggja örugga veg-
tengingu byggðanna norðan Hrafn-
seyrarheiðar við sunnanverða Vest-
firði eftir að Austur- og
Vestur-Barðastrandarsýslur voru
settar undir sýslumannsembættið á
Ísafirði. Þarna sitja menn uppi með
ein verstu mistökin sem skaða sam-
göngumál fjórðungsins. Vegna
snjóþyngsla og mikils blindbyls á
Hrafnseyrarheiði lokast báðar leið-
irnar til Ísafjarðar þegar heima-
menn á svæðinu sunnan Dynjand-
isheiðar og í Vesturbyggð komast
hvergi vegna slysahættunnar á
Klettshálsi og á Ódrjúgs- og
Hjallahálsum sem Ögmundur Jón-
asson, fyrrverandi innanríkis-
ráðherra, vildi byggja upp í óþökk
heimamanna. Þvert á allar veður-
spár hefur of mikið fárviðri og
nærri 10 metra snjódýpt sýnt og
sannað að nýi vegurinn í Arnkötlu-
dal verður aldrei 100% öruggur og
hindrunarlaus heilsársvegur milli
Dalabyggðar og Strandabyggðar.
Þetta eru skýr skilaboð um að
ástandið í Arnkötludal er engu
betra en á Steingrímsfjarðarheiði
sem erfitt var að treysta þrjú síð-
ustu árin. Í nýrri samgönguáætlun
sem kom út í tíð Ögmundar Jón-
assonar, þáverandi yfirmanns sam-
göngumála, eru engar hugmyndir
til um að leysa þetta vandamál með
jarðgöngum til að dæmið klárist
endanlega. Með uppbyggðum vegi
á snjóþungu svæði um Arnkötludal
sem vonlaust er að treysta heldur
það áfram og stoppar hvergi Vest-
firðingum til mikillar hrellingar.
Samgöngunefnd fagnar því að
ákvörðun skuli nú liggja fyrir um
upphaf framkvæmda við gerð
Dýrafjarðarganga sem hefðu með
fullum þunga átt að hefjast einu ári
eftir að Fáskrúðsfjarðargöng voru
tekin í notkun. Það máttu fyrrver-
andi þingmenn Vestfirðinga aldrei
heyra þegar þeim þótti sjálfsagt að
reka hornin í samgöngumál fjórð-
ungsins áður en Alþingi var blekkt
til að samþykkja kjördæmabreyt-
inguna sem skaðaði alla lands-
byggðina. Þegar allt stefnir í að
framkvæmdir við Dýrafjarðargöng
geti hafist 2017 áréttar samgöngu-
nefnd að í þessu samhengi skuli nú
þegar hefjast undirbúningur að
rannsóknum og hönnun jarðganga
sem leysa endanlega af
hólmi núverandi veg á
illviðrasömu og snjó-
þungu svæði í 500 m
hæð á Dynjandisheiði.
Göng sem grafin yrðu
undir heiðina úr botni
Vatnsdals og Dynjand-
isvogi yrðu að öllum
líkindum 10-11 km
löng. Spurningin er
hvort hagkvæmara sé
að leysa þetta vanda-
mál með styttri göng-
um inn í Geirþjófsfjörð
sem grafin yrðu úr Trostansfirði og
Dynjandisvogi, þá mætti líka skoða
möguleika á þriðju göngunum úr
Smjördal sem kæmu út í Trostans-
firði. Við framkvæmd Dýrafjarðar-
ganga verður að samræma þessi
verkefni þannig að full notkun
verði af þessum samgöngu-
mannvirkjum sem tengja byggð-
irnar norðan Hrafnseyrarheiðar við
sunnanverða Vestfirði. Lagt var til
í samgöngunefnd að árið 2008 yrði
upphaf samhangandi verkefna á
Vestfjörðum. Þetta sama ár hafði
efnahagskreppan mikil áhrif um
allan heim þegar þessi áform urðu
aldrei að veruleika. Eftir standa
stór verkefni sem þola enga bið til
að endanleg markmið náist. Til
þess verður Alþingi að samþykkja
nýja samgönguáætlun sem gagnast
Vestfirðingum enn betur en sú
fyrri. Samgönguáætlun, sem sam-
þykkt var í tíð fráfarandi rík-
isstjórnar, skaðar hagsmuni
landsbyggðarinnar, hana skal Al-
þingi ógilda. Sitt rétta andlit sýndi
Steingrímur J. þegar hann notaði
misheppnaða fjármögnun Vaðla-
heiðarganga til að reka hornin í
Austfirðinga og Vestfirðinga. Þann-
ig vottaði jarðfræðingurinn úr Þist-
ilfirði þeim sína dýpstu fyrirlitn-
ingu þegar Alþingi samþykkti
tillögu Arnbjargar Sveinsdóttur um
undirbúning að rannsóknum og
hönnun jarðganga milli Egilsstaða
og Seyðisfjarðar. Flýtum útboði
Dýrafjarðarganga. Skoðum mögu-
leika á stuttum göngum undir Með-
alnesfjall.
Samþykkjum strax tillögu Ólínu
Þorvarðardóttur.
Göng sunnan
Arnarfjarðar
Eftir Guðmund
Karl Jónsson
Guðmundur Karl
Jónsson
» Samgöngunefnd
fagnar því að
ákvörðun skuli nú liggja
fyrir um upphaf fram-
kvæmda við gerð Dýra-
fjarðarganga.
Höfundur er farandverkamaður.
Það sem við blasir, nú þegar vænt-
anlega verður kosið til þings í haust,
er að ríkisstjórninni hefur tekist vel
upp í efnahagsmálum. Krónan hefur
styrkst frá því sem var og nú fáum
við fleiri evrur fyrir krónurnar okk-
ar.
Verðbólga er mjög lág og unnið
hefur verið að lausn aflands-
krónuvandans. Atvinnuleysi er mjög
lítið og kaupmáttur fólks hefur
sjaldan verið meiri. Það sem helst
má gagnrýna ríkisstjórnina fyrir er
að þeir sem fá tekjur sínar frá
Tryggingastofnun mættu búa við
betri kjör. Gangi ríkisstjórninni að
leysa úr því máli geta ríkisstjórn-
arflokkarnir reiknað með góðum
kosninganiðurstöðum í haust.
Sigurður Guðjón
Haraldsson.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Kæra ríkisstjórn
Fundur Bréfritari er ánægður með árangur ríkisstjórnar í efnahagsmálum.
—með morgunkaffinu
Verslun Tunguhálsi 10 | Sími 415 4000 | www.kemi.is | kemi@kemi.is
Lyktareyðandi
niðurbrotsefni
fyrir safntanka
ferðaklósetta
Sími 571 2000 | hreinirgardar.is
Garðsláttur
Láttu okkur sjá um
sláttinn í sumar