Morgunblaðið - 09.06.2016, Síða 70
70 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JÚNÍ 2016
Þetta er búið að verabrjálæðislegagaman og algjört
ævintýri,“ segir Draupnir
Rúnar Draupnisson sem
réð sig sem flugþjón í
fjögurra mánaða heims-
reisu með þungarokks-
hljómsveitinni Iron Mai-
den. Í tónleikaferðinni er
farið til 50 borga í tæp-
lega 30 löndum í öllum
heimsálfum fyrir utan
Suðurheimskautslandið.
„Það eru góð stopp í
borgunum sem við ferð-
umst til og það var ástæð-
an fyrir því að ég réð mig
í þessa ferð. Ég hef haft
tíma til að kynnast landi
og þjóð enda er eitt af að-
aláhugamálum mínum að
ferðast. Mér tókst að
komast til landa sem voru
á topp tíu listanum yfir
þau sem mig langaði til
að heimsækja eins og
Japan, Nýja-Sjáland,
Ástralía og Kosta Ríka.“ Draupnir er ferðasjúkur að eigin sögn og
hátt í 100 landa hefur hann ferðast til bæði í leik og starfi, en Draupn-
ir hefur einnig starfað sem fararstjóri, og er kennari að mennt og
með MA-gráðu í blaðamennsku.
Tónleikaferðin hófst 14. febrúar og er einungis vika eftir af þessari
4 mánaða heimsferð . „Þótt ferðin sé búin að vera ógleymanlegt ævin-
týri með frábærum hópi þá hlakka ég til að komast í íslenska sumarið
og hitta vini og vandamenn. Ég stefni á að fara út á land áður en ég
hef aftur störf sem flugþjónn hjá Icelandair.“
Draupnir er staddur í Amsterdam en flýgur til Parísar í dag. Hann
fagnar því fertugsafmæliskvöldinu í París. „Sjálfsagt verður farið út
að borða með áhöfninni í tilefni dagsins en stór hátíðarhöld bíða betri
tíma.“
Þungarokk hefur ekki verið talið til áhugasviða Draupnis; hann er
þekktari fyrir Eurovision-áhuga sinn, en hann sló m.a. í gegn í mynd-
bandinu við This Is My Life með Eurobandinu. „Eftir að hafa verið á
nokkrum tónleikum með Iron Maiden þá er ég orðinn meiri aðdáandi
en ég var. Ég er alæta á tónlist þótt mér líki betur við tónlist í léttari
kantinum.“
Í Japan Draupnir með aðgangspassann sem
gildir á alla tónleika Iron Maiden í túrnum.
Í heimsreisu með
Iron Maiden
Draupnir Rúnar Draupnisson er fertugur
T
ómas fæddist í „Stein-
inum“ á Norðfirði á
Hvítasunnudag 9.6. 1946
og ólst þar upp: „Það má
segja að ég hafi verið „í
Steininum“ í 17 ár, en húsið þar sem
við bjuggum heitir Steinninn og
stendur í miðbænum, rétt við gömlu
höfnina í Neskaupstað. Ég var nánast
alinn upp í fjörunni og á bryggjunni
og byrjaði til sjós 12 ára að aldri.“
Tómas var í Barnaskóla Norð-
fjarðar og Gagnfræðaskólanum þar,
stundaði síðan nám við Iðnskóla
Norðfjarðar og lauk þaðan sveins-
prófi í rafvirkjun 1966. Hann öðlaðist
meistararéttindi 1969. Þá stundaði
hann námskeið í brunavörnum og
fleiru er viðkemur slökkviliðs-
störfum.
Tómas var á samningi hjá verk-
stæðinu Straumi, en meistari hans
var Guðmundur Friðriksson. Tómas
starfaði hjá Kristjáni Lundberg raf-
virkjameistara í Neskaupstað á ár-
unum 1966-73, var síðan starfsmaður
hjá RARIK, Rafmagnsveitum ríkis-
ins, 1973-76. Þá hóf hann sjálfstæðan
Tómas R. Zoëga, rafvirkjameistari á Norðfirði – 70 ára
Ljósmynd/Jóhann Zoëga
Heima er best Tómas og Sigurborg, eða Tommi og Tobba, eins og þau eru kölluð á Norðfirði, heima á verönd.
Lá brotinn og fastur í
jökulsprungu tvo tíma
Ljósmynd/Jóhann Zoëga
Jól á Dalatanga Tómas vitavörður og Sigurborg með Hrefnu um jólin 1967.
Monika Helgadóttir, Hekla Sigurgeirsdóttir og Yrsa Sigurgeirsdóttir héldu
tombólu í miðbæ Reykjavíkur og seldu dót sem þær voru hættar að nota. Þær
söfnuðu 3.350 kr. og gáfu Rauða krossinn.
Hlutavelta
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isÍshella 10 • 221 Hafnarfjörður • Sími 569 2100
Nánari upplýsingar á hedinn.is
Á vefsíðu Héðins er fljótlegt að fylla út
helstu upplýsingar til að fá tilboð
í iðnaðarhurðir og bílskúrshurðir.
Mynd: Slökkvistöðin Skógarhlíð.
Fáðu tilboð
í hurðina