Morgunblaðið - 14.10.2016, Page 1
F Ö S T U D A G U R 1 4. O K T Ó B E R 2 0 1 6
Stofnað 1913 241. tölublað 104. árgangur
ÁSTANDIÐ ER
MIKLU VERRA EN
FRÉTTIR SÝNA FYRIR MÖMMU OKKAR
ÞETTA ER MIKIL
HVATNING OG
STERK BYRJUN
BLEIKI DAGURINN 10 BARNABÓKAVERÐLAUNIN 39AÐSTOÐA PALESTÍNUMENN 14
Morgunblaðið/Ófeigur
Búið í bili Alþingi var slitið í gær og var
létt yfir þingmönnum þegar þeir kvöddu.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir,
þingmaður Vinstri grænna, er
ræðudrottning 145. löggjafarþings-
ins. Bjarkey er fyrsta konan sem
talað hefur lengst allra þingmanna
á sama löggjafarþinginu.
Alþingi var slitið í gær en nýtt
þing kemur saman fljótlega eftir
kosningar hinn 29. október næst-
komandi. „Þetta er lengsta þingið
talið í þingfundadögum. Þeir hafa
verið 147,“ sagði Einar K. Guð-
finnsson, forseti Alþingis, í ræðu
sinni við slit þingsins í gær. Hann
hafði einnig á orði að miklar breyt-
ingar hefðu orðið á skipan þingsins
í þrennum kosningum í röð, þ.e.
2007, 2009 og 2013, en þá voru að
meðaltali 41% þeirra þingmanna
sem tóku sæti á Alþingi nýir þing-
menn.
Fyrsta konan sem
talað hefur lengst á
Alþingi Íslendinga
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Vinstri græn og Píratar mælast með
nánast jafnt fylgi, 17,7% og 17,5%, að
því er fram kemur í könnun Fé-
lagsvísindastofnunar sem unnin var
fyrir Morgunblaðið dagana 6.-12.
október sl. en munurinn er innan
skekkjumarka.
Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi
og mælist nú með um 21% samanbor-
ið við 26% í síðustu könnun sem birt
var þann 6. október síðastliðinn.
Björt framtíð er hástökkvari vik-
unnar og mælist hún með 7,7% fylgi.
Fylgi Pírata minnkar um 2,3 pró-
sentustig og fylgi Vinstri grænna
eykst um 1,2 prósentustig frá síðustu
könnun en um þriggja prósenta mun-
ur er nú á fylgi Sjálfstæðisflokks og
Vinstri grænna. Munurinn er ekki
marktækur, en einnig mælist lítil
hreyfing á fylgi annarra flokka en
Bjartrar framtíðar, Sjálfstæðis-
flokks, Pírata og Vinstri grænna.
Hreyfing á fylgi flokkanna
Björt framtíð fær fjóra menn
kjörna, samkvæmt könnuninni. Pí-
ratar tapa þremur mönnum og Sjálf-
stæðisflokkur tveimur. Samfylkingin
bætir við sig einum manni frá síðustu
könnun Félagsvísindastofnunar.
Nokkrir fulltrúar þeirra flokka sem
næðu mönnum inn á þing samkvæmt
könnuninni líta til þeirra tveggja
vikna sem eru til kosninga og segja
fylgið enn á miklu flökti.
Lýðfræðileg dreifing fylgisins er
mjög ólík eftir flokkum og athygli
vekur að flestir þeirra sem telja mjög
líklegt að þeir mæti á kjörstað segjast
styðja Sjálfstæðisflokk en flestir
þeirra sem segja ekki mjög líklegt að
þeir kjósi segjast styðja Pírata.
Úrtak könnunarinnar var 2050
manns og var svarhlutfall nú 59,5%
en hafði verið 57% í síðustu könnun.
VG og Píratar hnífjöfn
Vinstri græn mælast með 17,7% en Píratar 17,5% Sjálfstæðisflokkurinn tapar
miklu fylgi Björt framtíð tvöfaldar fylgi sitt og nýtur meiri stuðnings en Samfylking
MSviptingar í fylgistölum »4
21,5%
17,7%
17,5%
6,9%
3%
2,7%
11,4%
8,6%
7,7%
Fylgi
flokkanna
D
P
V
C
B
S
A
F E
Morgunblaðið/RAX
Hellir Raufarhólshellir er vinsæll
meðal náttúruunnenda víða að.
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Miklar framkvæmdir eru fram-
undan við Raufarhólshelli, en þar
stendur til að byggja þjónustuhús,
leggja göngustíga og göngupalla í
hellinum auk þess að lýsa hann upp
og forða frá skemmdum.
Undanfarið hefur hópur fólks
sinnt hreinsunarstarfi á svæðinu.
Hellirinn er vinsæll meðal ferða-
manna, en talið er að um 20 þúsund
manns komi í Raufarhólshelli á
hverju ári.
Að sögn Hallgríms Kristinssonar,
framkvæmdastjóra Raufarhóls ehf.,
stóðu landeigendur frammi fyrir því
að þurfa að loka hellinum vegna
ágangs og slæmrar umgengni eða
byggja upp aðstöðu til að verja hell-
inn. »2
Bæta aðstöðu í Raufarhólshelli
Lýsa hellinn upp og leggja stíga
Mjög mikið rennsli hefur verið í ám á höfuðborg-
arsvæðinu síðustu daga og fara Elliðaárnar þar
fremstar í fylkingu en þar er rennslið enn að
vaxa, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Ís-
lands. Gangandi vegfarendur þurfa því að hafa
sig alla við að vaða á milli þurrlendis í dalnum.
Vatnavextir í Elliðaánum hefta för vegfarenda
Morgunblaðið/RAX
Veðurstofan segir rennsli enn aukast í Elliðaánum
Tónlistarmað-
urinn Bob Dylan
hlaut Nób-
elsverðlaunin í
bókmenntum í
gær. Verðlaunin
hlaut hann fyrir
að hafa skapað
nýja ljóðræna
túlkun innan
bandarískrar
tónlistarhefðar.
Valið kom mörgum á óvart, en
veðbankar höfðu spáð því að jap-
anski rithöfundurinn Haruki Mura-
kami hlyti verðlaunin.
Fjölmargir hafa óskað Dylan til
hamingju með verðlaunin, þeirra á
meðal Barack Obama, Bandaríkja-
forseti. »22 og 40
Bob Dylan hlaut
Nóbelsverðlaunin
Bob Dylan,
nóbelsskáld
Hæstiréttur ógilti í gær ákvörðun
Orkustofnunar frá 5. desember 2013
um að veita Landsneti hf. leyfi til
þess að reisa og reka Suðurnesjalínu
2. Hæstiréttur sneri þannig við dómi
héraðsdóms.
Talið var að rík skylda hefði hvílt
á Orkustofnun til að upplýsa málið til
hlítar áður en ákvörðun var tekin
enda hefði stofnuninni mátt vera
ljóst í ljósi fagþekkingar sinnar, að
litið yrði til ákvörðunar hennar ef til
þess kæmi að leitað yrði heimildar til
eignarnáms, sem síðar varð raunin.
Leyfi fyrir Suður-
nesjalínu 2 ógilt
Jafnmörg tilfelli af sárasótt hafa
greinst það sem af er árinu 2016 og
allt árið 2015. Það staðfestir um-
talsverða aukningu á sjúkdómnum
á undanförnum þremur árum.
Þetta kemur fram í fréttabréfi sótt-
varnalæknis sem birt var í gær.
Í sumar greindust einnig virkir
berklar hér á landi í hælisleitanda
frá Afríku og Pólverja sem búsett-
ur var hér á landi. Þá barst sótt-
varnalækni tilkynning um að ís-
lenskt barn sem dvalist hafði á
barnaheimili í Englandi gæti hafa
smitast af berklum. laufey@mbl.is
Umtalsverð aukning
orðið á sjúkdómum