Morgunblaðið - 14.10.2016, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 2016
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Listamenn frá Jakútíu í Síberíu
kynntu menningu sína og listir í
tengslum við ráðstefnuna Hringborð
norðurslóða í Hörpu um liðna helgi.
Að henni lokinni gáfu þeir Jóhannesi
Viðari Bjarnasyni, eiganda og fram-
kvæmdastjóra Fjörukrárinnar í
Hafnarfirði, súlu sem þeir skáru út í
meðan á ráðstefnunni stóð og var
hún sett upp við Hlið, nýjan veit-
ingastað sem Jóhannes er að betr-
umbæta á Álftanesi.
Jóhannes hefur átt nokkur sam-
skipti við listafólk frá Jakútíu und-
anfarin ár. Hópur þaðan kom á vík-
ingahátíð hans og í kjölfarið var
honum boðið til Síberíu í fyrra. „Ég
hef mikinn áhuga á handverki og
þetta er mikið handverksfólk,“ segir
Jóhannes, sem stefnir á að fara aftur
til Jakútíu næsta sumar og þá með
hóp víkinga. „Listamennirnir vildu
gefa mér þessa súlu, sem merki um
frið, kærleika og vináttu, allt þetta
góða sem í manninum býr.“
Fyrsta súlan erlendis
Á Hlið eru nú átta herbergi og
veitingastaður fyrir 40 manns. Verið
er að nær tvöfalda stærð veitinga-
staðarins og verður hann tilbúinn
fyrir jólahlaðborð fljótlega auk þess
sem gert er ráð fyrir að herbergin
verði orðin 25 fyrir lok næsta árs.
Að sögn Jóhannesar eru svona út-
skornar súlur víða við heimili og sér-
staka staði í Jakútíu. „Þetta er
þeirra tákn og ég fékk fyrstu súluna
sem þeir reisa á erlendri grundu,“
segir hann. „Þau völdu Hlið, en þar
er fyrir friðarsúla frá Navahó-
indíána sem sótti víkingahátíð hjá
mér fyrir nokkrum árum. Það ríkir
því mikill friður yfir Hlið. Þetta
verður friðarstaður.“
Morgunblaðið/RAX
Hlið Jóhannes Viðar Bjarnason í íslenskri lopapeysu með listamönnunum frá Jakútíu við súluna á Álftanesi.
Friðarstaður á Álftanesi
Fékk útskorna súlu að gjöf frá listamönnum í Jakútíu
Súlan á Hlið er merki um frið, kærleika og vináttu
Bæjaryfirvöld í Hveragerði hafa
ákveðið að semja við ASK arkitekta
um gerð deiliskipulags á Eden-
lóðinni í miðbæ Hveragerðis.
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri,
sagði að á lóðinni ætti aðallega að
vera íbúðabyggð með 40-50 íbúðum.
Ekki verður lokað fyrir þann mögu-
leika að geta byggt hús fyrir verslun
og þjónustu við Austurmörk, þar
sem Eden stóð áður fyrr.
„Það er gríðarlega mikil ásókn í
íbúðarhúsnæði hér í Hveragerði,
sem er mjög jákvætt,“ sagði Aldís.
„Við horfum til þess að þarna verði
smærri íbúðir sem henta bæði þeim
sem eru að byrja að búa og þeim
sem eru að minnka við sig.“
Hún sagði að vanda þyrfti til
skipulagsins því Hveragerðisbær er
landlítið sveitarfélag. Ekki verða
byggð háhýsi á svæðinu. Að-
alskipulag Hveragerðisbæjar kveð-
ur á um að hús í sveitarfélaginu séu
almennt ekki meira en tveggja
hæða. Þó má leyfa allt að fjögurra
hæða hús henti það byggð sem fyrir
er.
Aldís sagði reiknað með að deili-
skipulagsvinnunni yrði lokið næsta
vor. Samkvæmt því verður hægt að
úthluta lóðunum næsta sumar.
Undirbúa
íbúðalóðir í
Hveragerði
40-50 minni íbúðir
á Eden-lóðinni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hveragerði Ásókn í íbúðarhúsnæði
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Raufarhólshelli verður lokað í næstu
viku vegna fyrirhugaðra fram-
kvæmda í hellinum og við hann.
Áformað er að byggja þjónustuhús
við hellinn, lýsa hann upp að hluta og
leggja göngustíga og göngupalla til
að auðvelda ferð um hellinn og forða
honum frá frekari skemmdum en
orðnar eru. Raufarhóll ehf. stendur
að framkvæmdunum.
„Við höfum hafið undirbúning og
vorum að fá framkvæmdaleyfi til að
stækka og laga bílaplanið. Við von-
umst til að ná því fyrir veturinn,“
sagði Hallgrímur Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Raufarhóls ehf. Rauf-
arhólshellir hefur verið munaðarlaus
að mestu til þessa, að sögn Hall-
gríms. Hann sagði að undanfarið
hefðu þeir verið með hóp fólks við að
hreinsa til á svæðinu. Hreins-
unarstarfinu er ekki lokið.
„Við ætlum að setja lýsingu í hell-
inn og leggja palla og stíga 400-500
metra inn,“ sagði Hallgrímur. Hell-
irinn er 1.360 metra langur, 10-30
metra breiður og allt að tíu metra
hár. Botninn er víða grýttur og erf-
iður yfirferðar. Stígunum og pöll-
unum er ætlað að auðvelda fólki að
komast þar um. Framkvæmdirnar
eru afturkræfar og er vonast til að
framkvæmdaleyfi fáist fljótlega.
„Líklega heimsækja yfir 20.000
manns Raufarhólshelli á hverju ári.
Mikið er fjallað um hellinn í ferða-
handbókum og á netinu. Umgengnin
hefur verið slæm, engin salerni á
staðnum og ekki nein aðstaða. Þarna
hefur safnast upp klósettpappír, öl-
dósir og sígarettustubbar. Landeig-
endur stóðu frammi fyrir því að þurfa
annað hvort að loka hellinum eða
byggja þarna upp aðstöðu til að verja
hellinn,“ sagði Hallgrímur. „Við hjá
Raufarhól ehf. náðum samkomulagi
við landeigendur og ætlum að gera
þetta vel. Við viljum byggja upp að-
stöðu til að geta tekið við hópum og
leyft fólki að njóta hellisins. Hann er
stórkostlega fallegur. Hellirinn er
rétt fyrir utan Reykjavík og er að-
gengilegur. Hellirinn hentar mjög vel
sem viðkomustaður fyrir ferða-
menn.“
Þegar búið verður að ganga frá
pöllum og lýsingu á næsta ári og öll
leyfi liggja fyrir verður boðið upp á
stuttar og langar skoðunarferðir með
leiðsögn í hellinum. Hallgrímur gerði
ráð fyrir að gjaldtaka fyrir að skoða
hellinn hæfist á næsta ári.
The Lava Tunnel (thelavat-
unnel.is), hefur boðið upp á skipu-
lagðar ferðir með leiðsögumanni inn í
botn Raufarhólshellis.
Skipulagsvinna stendur yfir
Raufarhólshellir er vinsæll við-
komustaður ferðamanna. Hellirinn
er í Þrengslum og um tvo km norðan
við gatnamót Þrengslavegar og Hlíð-
arendavegar. Hellirinn sveigir undir
þjóðveginn til suðvesturs og upp í
rennslisstefnuna. Hellisopið er stórt
og aðgengi inn í hellinn er gott.
Sveitarfélagið Ölfus hefur birt
skipulagslýsingu vegna fyrirliggjandi
erindis um að breyta aðalskipulagi
yfir svæðið við Raufarhólshelli.
Breyta þarf aðalskipulaginu vegna
þess að taka á inn stefnu um afþrey-
ingar- og ferðamannastaði. Svæðið er
nú skilgreint sem óbyggt svæði í að-
alskipulagi Ölfuss 2010-2022. Einnig
á að vinna deiliskipulag. Breytingin
nær yfir um sjö hektara. Skipulags-
lýsingin fer í lögboðið ferli.
Fram kemur í skipulagslýsingunni
að hellirinn og nærumhverfi hans séu
farin að láta á sjá vegna ágangs og
slæmrar umgengni. Því telji landeig-
endur mikilvægt að koma þar upp að-
stöðu og eftirliti til að tryggja að hell-
irinn og nærumhverfi hans verði ekki
fyrir frekari skemmdum.
Hugmyndin er að reisa í framtíð-
inni allt að 200 fermetra þjónustuhús
sem mun hýsa tæknirými, salerni,
aðstöðu fyrir búnað á borð við
hjálma, höfuðljós og mannbrodda,
miðasölu og aðstöðu fyrir starfsfólk.
Steinsholt ehf. veitir ráðgjöf við
breytingu á aðalskipulagi fyrir sveit-
arfélagið Ölfus og EFLA verk-
fræðistofa við gerð deiliskipulags fyr-
ir Raufarhól ehf.
Mikil uppbygging við Raufarhólshelli
Byggja á þjónustuhús við hellinn, lýsa hann upp að hluta og leggja göngustíga og göngupalla 400
til 500 metra inn til að auðvelda aðgengi Talið að yfir 20.000 manns komi í Raufarhólshelli á ári
Ljósmynd/Ragnar Th. Sigurðsson Arctic Images
Raufarhólshellir „Hellirinn hentar mjög vel sem viðkomustaður fyrir
ferðamenn,“ segir Hallgrímur Kristinsson framkvæmdastjóri.
Suðu
rstra
ndar
vegu
r
Þorlákshöfn
Raufarhólshellir Loftm
yndirehf.
Landspítalinn
var í gær dæmd-
ur í Hæstarétti
til að greiða fyrr-
verandi fram-
kvæmdastjóra
mannauðssviðs
og starfs-
mannastjóra
spítalans 67,5
m.kr. vegna
starfslokasamn-
ings sem fyrrverandi forstjóri spít-
alans hafði gert við hana en núver-
andi forstjóri og fjármálaráðu-
neytið töldu ekki lagaheimild vera
fyrir. Hæstiréttur sagði spítalanum
ekki hafa verið heimilt að rifta
samningum við konuna og hækkaði
greiðslu spítalans úr 26,5 m.kr.
Greiði 67,5 millj.
vegna starfsloka
Lok Spítalinn
dæmdur til greiðslu
Hæstiréttur hefur fellt niður mál
gegn Hannesi Smárasyni sem oft
hefur verið nefnt Sterling-málið.
Málið er fellt niður vegna gífurlegra
tafa hjá saksóknara. Hannes var
sýknaður í héraðsdómi.
Ellefu ár eru frá meintu broti og
sjö ár síðan rannsókn hófst en Hann-
es hafði verið ákærður fyrir fjár-
drátt, til vara umboðssvik, vegna
millifærslu upp á tæpa þrjá milljarða
af bankareikningi FL Group á eign-
arhaldsfélagið Fons árið 2005.
Sterling-mál gegn
Hannesi fellt niður
Tvö félög sem keyptu hlutabréf í
Landsbanka Íslands hf. á árunum
2006 og 2007 hafa stefnt Björgólfi
Thor Björgólfssyni til greiðslu
skaðabóta vegna tjóns sem félögin
urðu fyrir vegna kaupanna.
Félögin, Vogun hf. og Fiskveiða-
hlutafélagið Venus hf., höfðu áður
tekið þátt í hópmálsókn hluthafa
Landsbankans en því var vísað frá
dómi í maí. „Nú virðist ætlunin vera
að hluta þetta niður og reyna á nýj-
an leik. Það verður þá bara að hafa
sinn gang,“ sagði upplýsingafulltrúi
Björgólfs í samtali við mbl.is í gær.
Tvö félög stefna
Björgólfi Thor