Morgunblaðið - 14.10.2016, Síða 6

Morgunblaðið - 14.10.2016, Síða 6
Mikil endurnýjun verður á Alþingi eftir næstu þingkosningar, 29. október. Í það minnsta 23 af 63 þingmönnum hverfa af þingi og enn aðrir eru ekki í öruggum sæt- um. Þessir þingmenn, sem setið hafa lengur en eitt kjörtímabil á Alþingi, hverfa af þingi: Ásmundur Einar Daðason, tók sæti á þingi 2009, Einar K. Guðfinnsson 1991, Guðmundur Steingrímsson 2009, Höskuldur Þórhallsson 2007, Illugi Gunnarsson 2007, Katrín Júl- íusdóttir 2003, Kristján L. Möller 1999, Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir 2009, Ragnheiður Elín Árnadóttir 2007, Ragnheiður Ríkharðsdóttir 2007, Róbert Marshall 2009, Vig- dís Hauksdóttir 2009 og Ögmund- ur Jónasson 1995. Þá hættir á þingi Jóhanna María Sigmunds- dóttir, en hún er yngst allra sem kjörnir hafa verið alþingismenn. Hún var 21 árs og 303 daga gömul þegar hún var kjörin árið 2013. Samkvæmt stjórnarskránni halda þingmennirnir umboði sínu til kjördags. Breyting var gerð árið 1991 til að tryggja að Ísland yrði aldrei þingmannslaust. Margir hætta nú á þingi MIKIL ENDURNÝJUN FRAMUNDAN 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 2016 HP snúðar alltaf góðir Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Alþingi Íslendinga, 145. löggjaf- arþinginu, var slitið í gær. Nýtt þing mun svo koma saman fljótlega eftir alþingiskosningarnar hinn 29. októ- ber næstkomandi. Fram kom í ræðu Einars K. Guð- finnssonar, forseta Alþingis, við þingfrestun í gær, að nýliðið þing væri á margan hátt óvenjulegt og jafnvel einstakt. Það hófst 8. sept- ember 2015 og lauk í gær, 13. októ- ber 2016. „Þetta er lengsta þingið talið í þingfundadögum. Þeir hafa verið 147. Það þing sem kemst næst þessu þingi í fjölda þingfundadaga er 116. þing sem hófst 17. ágúst 1992 og lauk 9. maí 1993, en þá voru þing- fundadagar 131,“ sagði Einar. Alls hlutu l07 lagafrumvörp sam- þykki og aldrei fyrr hafa verið sam- þykktar fleiri þingsályktanir en nú, alls 72 ályktanir. „Það er því ljóst að þetta hefur verið langt, starfsamt og annasamt þing,“ sagði Einar. Einar K. Guðfinnsson fjallaði um þinghaldið í ræðu sinni og sagði m.a. að í samanburði við nágrannaþing okkar tækju umræður hér í þingsaln- um stærri hluta af þingstörfunum en þar tíðkast. „Í þeim þingum sem standa okkur nærri er skipulagður rammi um umræður í þingsal og um leið tryggður nægilegur og góður tími fyrir þær umræður. En þar gild- ir líka það fyrirkomulag að forseta þingsins er ætlað meira vald til að skipuleggja umræðurnar og setja um þær tímaramma. Ég er þeirrar skoð- unar að minni háttar breytingar á fyrirkomulagi umræðu muni litlu skipta um ásýnd Alþingis. Eina leiðin er að fara þá leið sem önnur þing hafa farið og koma hér á meira skipulagi. Að mínu mati er slíkt mikilvægur lið- ur í að skapa traust til Alþingis,“ sagði Einar. Þingmenn koma og fara Hann gerði breytingar á skipan Alþingis einnig að umtalsefni. „Það sem er hins vegar óvenjulegt núna er að miklar breytingar í skipan þingsins hafa orðið í þrennum kosn- ingum í röð: 2007, en þá voru 38% þingmanna ný, og 42% í hvorum kosningum fyrir sig, 2009 og 2013. Í þessum þrennum kosningum var því að meðaltali 41% þeirra þingmanna sem tóku sæti á Alþingi nýir þing- menn. Á ekki lengri tíma en frá 2007 hafa því 126 einstaklingar tekið fast sæti á Alþingi. Margir hafa haft hér stutta viðdvöl. Af þeim 63 þing- mönnum sem kjörnir voru til Al- þingis 2003, fyrir 13 árum, sitja nú aðeins 11 enn á Alþingi og fjórir þeirra verða ekki í framboði í haust. 50 þeirra þingmanna sem ég vísaði til hurfu af vettvangi í síðustu þrenn- um kosningum og tveir önduðust,“ sagði Einar í ræðu sinni. „Að gömlum og góðum sið vil ég að lokum óska utanbæjarmönnum góðrar heimferðar og ánægjulegrar heimkomu og árna ykkur öllum allra heilla,“ sagði Einar að lokum, en hann hverfur nú af þingi eftir 25 ára samfellda setu þar. Lengsta þinginu lauk í gær  Þingfundadagar voru alls 147  Einar K. Guðfinnsson forseti Alþingis segir að koma þurfi betra skipulagi á þinghaldið en verið hefur  126 einstaklingar tekið fast sæti á Alþingi frá árinu 2007 Morgunblaðið/Ófeigur Forseta þakkað Einar K. Guðfinnsson var kvaddur með virktum. Svandís Svavarsdóttir flutti þakkarræðu og þingflokksformenn færðu honum blómvönd. Létt á lokaspretti Að venju ríkti gleði í þingsalnum á síðasta fundi kjör- tímabilsins. Nú tekur við kosningabarátta hjá stjórnmálaflokkunum. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þing- maður Vinstri grænna, er ræðu- drottning 145. löggjafarþingsins. Bjarkey er fyrsta konan sem talað hefur lengst allra þingmanna á sama löggjafar- þinginu. Steingrímur J. Sigfússon, Vinsti grænum, var ræðukóngur tvö þing í röð á undan Bjarkeyju. Á undan Steingrími var Pétur heitinn Blöndal ræðu- kóngur fimm ár í röð. Á lista yfir þá 10 þingmenn sem töluðu mest eru sex þingmenn Vinstri grænna, tveir þingmenn Samfylkingar og einn Pírati. Aðeins einn stjórnarþingmaður komst á listann, Bjarni Benediktsson fjár- málaráðherra. Á lista yfir þá fimm þingmenn sem minnst töluðu er Þórunn Egils- dóttir, Framsóknarflokki. Fram- sókn á fjóra menn á listanum og Sjálfstæðisflokkurinn einn. Listarnir nú eru í samræmi við það sem tíðkast hefur í gegnum árin. Stjórnarandstæðingar tala mest og lengst en stjórnarþingmenn sjaldn- ar og minna. Bjarkey Olsen talaði samtals í 2.054 mínútur í ræðustól Alþingis samkvæmt ræðulista þingsins. Hún flutti 247 ræður og gerði 281 athuga- semd. Helgi Hrafn Gunnarsson, Pí- rati, náði 2. sæti, sjónarmun á undan Steingrími J. Sigfússyni. Helgi Hrafn var ekki á listanum í fyrra en þá náði félagi hans, Jón Þór Ólafs- son, 10. sætinu. Steinunn Þóra og Svandís eru nýjar á listanum. Össur hefur nokkra sérstöðu á listanum því hann gerði 440 athugasemdir en flutti aðeins 132 ræður. Fluttar voru 7.233 þingræður á nýafstöðnu þingi, samtals í 501.15 klukkustundir. Þingmenn gerðu 7.873 athugasemdir, alls í 202.53 klukkustundir. Meðallengd ræðu var 4,2 mínútur. sisi@mbl.is Bjarkey er ræðudrottning 1. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir 2.054 mín. (34 klst) 2. Helgi Hrafn Gunnarsson 1.767 mín. (29 klst) 3. Steingrímur J. Sigfússon 1.756 mín. (29 klst) 4. Össur Skarphéðinsson 1.699 mín. (28 klst) 5. Bjarni Benediktsson 1.552 mín. (26 klst) 6. Katrín Jakobsdóttir 1.527 mín. (25 klst) 7. Steinunn Þóra Árnadóttir 1.491 mín. (24 klst) 8. Lilja Rafney Magnúsdóttir 1.431 mín. (23 klst) 9. Svandís Svavarsdóttir 1.184 mín. (20 klst) 10. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir 1.103 mín. (18 klst) 1. Þórunn Egilsdóttir 99 mín. 2. Valgerður Gunnarsdóttir 128 mín. 3. Ásmundur Einar Daðason 148 mín. 4. Jóhanna María Sigmundsdóttir 158 mín. 5. Haraldur Einarsson 182 mín. Þingmenn sem töluðu lengst á Alþingi Þingmenn sem skemmst töluðu Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.