Morgunblaðið - 14.10.2016, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. OKTÓBER 2016
Laugavegi 7, 101 Reykjavík - Sími: 551-3033 Flo
ttir í fötu
m
Vönduðu þýsku
kjólfötin
komin aftur
Verð:
76.900,-
Frímúrarar – Oddfellowar
Vertu upplýstur!
blattafram.is
BREGSTU VIÐ,
EF ÞÚ SÉRÐ EÐA VEIST
AF OFBELDI, EÐA FINNST
ÞÉR ÞÆGILEGRA
AÐ LÍTA UNDAN?
Síðumúla 20, 108 Reykjavík • Sími 551 8258 • storkurinn.is
Opið:
Mán.-F
ös.
11-18
Lau. 11
-15
Námskeið í
prjóni og hekli
sjá nánar á storkurinn.is
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Tvær í
einni
Str. M-XXXL
Kr. 7.900
LISTHÚSINU
Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 2050 Opið 11-18, lau 11-16.
Hlý og falleg teppi
úr lífrænni bómull
Barnateppi úr lífrænni bómull
Bleikur dagur
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena undirfataverslun
15% afsl.
af völdum
bleikum vörum.
1000 kr.
af öllum seldum
brjóstahöldurum renna til
Krabbameinsfélagsins.
Léttar veitingar í boði, gerum það #fyrirmömmu
Hvaðviltu vita?
Þú getur slegist í hópinn með nokkrum frambjóðendum
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík á göngu um Elliðaár-
dalinn og rætt málefnin okkar fyrir komandi kosningar.
Elliðaárdalur
hjá BootCamp
Sunnudaginn
16. október kl. 14
Stofna á nýjan grunnskóla á höfuð-
borgarsvæðinu sem ætlaður er fötl-
uðum börnum. Morgunblaðið skýrði
frá undirbúningi skólans í janúar síð-
astliðnum en hann hefur nú fengið
nafnið Arnar-
skóli.
Sérstaða Arn-
arskóla mun fel-
ast í heildstæðri
og einstaklings-
bundinni þjón-
ustu allan ársins
hring. Ekki er
ljóst hvar skólinn
verður reistur en
búið er að leggja
inn umsóknir hjá
Garðabæ og Reykjavíkurborg.
Atli Freyr Magnússon atferlis-
fræðingur er einn þeirra sem að
skólanum standa. Að sögn Atla verð-
ur Arnarskóli sjálfseignarstofnun og
mun allur hagnaður fara í uppbygg-
ingu og rekstur á skólanum. Atli seg-
ir að vonir séu bundnar við að for-
eldrar muni ekki þurfa að greiða
meira fyrir nemendur í Arnarskóla
en í öðrum grunnskólum landsins.
Að sögn Atla mun Arnarskóla að
einhverju leyti svipa til Klettaskóla
en inntökuskilyrðin verða þó ekki al-
veg þau sömu. Hann segir Kletta-
skóla gera margt gott og að skólinn
henti ákveðnum börnum mjög vel.
Markhópur Arnarskóla verði börn
sem þurfa enn meiri stuðning og
mjög einstaklingsmiðaða þjónustu.
Arnarskóli muni hafa meiri sveigjan-
leika til að koma til móts við þarfir
þessara barna.
Samfelld dagskrá allan daginn
„Í Arnarskóla verður samfelld
dagskrá allan daginn allan ársins
hring. Þar fáum við þennan stöðug-
leika sem sum þessara barna þurfa
svo mikið á að halda. Þá verður auð-
veldara að miða nám og störf að
þörfum hvers og eins. Fyrir börn
sem eiga við svefnörðugleika að etja
væri til dæmis hægt að vinna meira
með bóklegu fögin seinni part dags.“
Stefnt er á að byrja með lítinn hóp
barna í ágúst 2017. „Við viljum byrja
smátt því svona starfsemi veltur svo
mikið á vel þjálfuðum starfsmanna-
hópi,“ segir Atli. „Það er auðveldara
að þjálfa upp lítinn hóp og svo
stækka smám saman.“
Bæjarráð Garðabæjar tók málið
upp í síðustu viku. Áslaug Hulda
Jónsdóttir, formaður bæjarráðs,
sagði í samtali við Morgunblaðið í gær
að búið væri að vísa málinu áfram til
fræðslusviðs og skólanefndar. Hún
segir að öllum sé ljóst að þörfin á slík-
um skóla sé mikil en að það sé margt
sem þurfi að skoða, meðal annars
varðandi húsnæðismál og stærð hóps-
ins sem myndi sækja skólann. Að
sögn Atla á hópurinn fund með
Reykjavíkurborg í næstu viku.
Skóli fyrir fötluð börn
á höfuðborgarsvæðinu
Umsóknir sendar til Garðabæjar og Reykjavíkurborgar
Morgunblaðið/Arnaldur
Flataskóli Möguleiki er á að Arnarskóli verði í Garðabæ en ósk þeirra sem
að skólanum standa er að hann deili húsnæði með almennum grunnskóla.
Atli Freyr
Magnússon