Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.11.2016, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.11.2016, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.11. 2016 Kratar í kreppu Í ár eru hundrað ár liðin frá stofn-un Alþýðuflokksins og bauð þessifyrsti jafnaðarmannaflokkur á Íslandi í fyrsta skipti fram í alþing- iskosningunum 1916. Fékk þá 5,95% atkvæða sem er sjónarmun meira en Samfylkingin, arftaki Alþýðuflokks- ins, hlaut í kosningunum um liðna helgi, eða 5,7%. Það er næstversta útkoma þessara tveggja flokka í sög- unni; aðeins gekk verr í þingkosning- unum 1919, þegar Alþýðuflokkurinn fékk einungis 4,47% atkvæða og kom ekki manni að í fyrsta og eina skiptið. Auk Alþýðuflokksins stóðu þrír stjórnmálaflokkar að stofnun Sam- fylkingarinnar um aldamótin; Al- þýðubandalagið, Kvennalistinn og Þjóðvaki en síðastnefndi flokkurinn hafði orðið til árið 1994 þegar Jó- hanna Sigurðardóttir klauf sig út úr Alþýðuflokknum. Hann sameinaðist raunar þingflokki Alþýðuflokksins tveimur árum síðar. Alþýðu- bandalagið var arftaki Sósíal- istaflokksins, lengst til vinstri á hinu pólitíska rófi. Kvennalistinn bauð fyrst fram 1983 en tilgangur þess framboðs var öðru fremur að auka veg kvenna í íslenskum stjórnmálum. Yfirlýst markmið með stofnun Samfylkingarinnar var að sameina vinstrimenn á Íslandi og búa til breiðfylkingu sem gæti mögulega orðið stærri en Sjálfstæðisflokkurinn sem strax varð yfirlýstur höfuðand- stæðingur flokksins. Í fyrstu alþingiskosningunum, 1999, vantaði nokkuð upp á að það markmið næðist. Samfylkingin hlaut þó 26,8% atkvæða á móti 40,7% Sjálf- stæðisflokksins. Hinn nýi flokkur fékk 17 menn kjörna sem var meira en Alþýðuflokkurinn hafði nokkru sinni fengið. Langbesti árangur hans var 14 þingmenn árið 1978 undir for- ystu Benedikts Gröndals. Frá stofn- un lýðveldisins bjó Alþýðuflokkurinn iðulega að 5 til 10 þingmönnum. Í síð- ustu kosningunum sem hann bauð fram, 1995, fékk hann 7 menn kjörna. Rauf 30% múrinn Ekki má gleyma því að Samfylkingin klofnaði strax í upphafi þegar hluti gamla Alþýðubandalagsins stofnaði Vinstrihreyfinguna – grænt fram- boð. Sá flokkur fékk ríflega 9% at- kvæða 1999 og er nú orðinn mun stærri en Samfylkingin, með 15,9% fylgi í kosningunum fyrir viku og 10 menn kjörna. 7 fleiri en Samfylk- ingin. Í alþingiskosningunum 2003 saum- aði Samfylkingin duglega að Sjálf- stæðisflokknum, hlaut 31% en höf- uðandstæðingurinn 33,7%. Í þeim kosningum fengu jafnaðarmenn í fyrsta sinn 20 menn kjörna á þing. 2007 dró aftur í sundur með flokk- unum, Samfylkingin fékk 26,8% at- kvæða á móti 36,6% Sjálfstæð- isflokksins. Eftir þær kosningar mynduðu þessir flokkar í fyrsta og eina skipti saman ríkisstjórn. Sitt sýndist hverjum um þann gjörning, bæði á vinstri- og hægrivængnum. Hálfu öðru ári síðar hrundu við- skiptabankarnir einn af öðrum með tilheyrandi hremmingum fyrir þing og þjóð. Ríkisstjórnin féll og boðað var til kosninga tveimur árum áður en kjörtímabilinu átti að ljúka. Ekki varð Samfylkingunni sérlega meint af setu sinni í „hrunstjórninni“ svokölluðu; alltént rættist draumur hennar í kosningunum 2009 – hún varð stærsti stjórnmálaflokkur á Ís- landi. Hlaut 29,8% á móti 23,7% Sjálfstæðisflokksins. Öðru sinni fékk flokkurinn 20 þingmenn. Fyrsta meirihlutastjórnin til vinstri í sögu lýðveldisins varð til í framhaldinu með aðild Samfylking- arinnar og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs. Alþýðuflokkurinn hafði áður setið einn í tveimur minni- hlutastjórnum, 1958-59 og 1979-80. Samfylkingin fór illa út úr því stjórnarsamstarfi og hrapaði fylgi flokksins niður í 12,9% í næstu kosn- ingum, 2013, og missti hann heila ell- efu þingmenn. Ekki þarf að fjölyrða um annað hrun í kosningunum um daginn, en Samfylkingin hefur nú að- eins yfir þremur þingmönnum að ráða; þar af bara einum kjördæma- kjörnum, Loga Má Einarssyni, sem tók við formennsku í flokknum í vik- unni, en hann bauð sig fram í Norð- austurkjördæmi. Hinir tveir þing- menn Samfylkingarinnar eru uppbótarmenn. Það er ágæt vísbending um vanda Samfylking- arinnar nú að Alþýðuflokk- urinn var aðeins einu sinni undir 10% fylgi í alþing- iskosningum, fyrir utan tvö fyrstu skiptin. Það var 1974 þegar flokkurinn hlaut 9,1%. Þá var þingstyrkur flokksins líka minnstur á lýðveldistím- anum, fimm menn. Alþýðuflokkurinn náði tvívegis að rjúfa 20% múrinn; 1978, eins og fyrr er getið, og 1934, þegar hann hlaut 21,7% atkvæða. Slíkt fylgi er fjarlægur draumur nú. Fylgi Alþýðuflokks/Samfylkingar í Alþingiskosningum 1916 - 2016 35% 30% 25% 20% 10% 5% 0% * Sa m fy lk in g bý ðu r fy rs t fr am 19 99 . * 1 1 5 4 4 10 8 6 7 9 7 6 8 6 9 8 9 6 5 14 10 6 10 10 7 17 20 18 20 9 3 1916 1919 1923 1927 1931 1933 1934 1937 1942 1942 1946 1949 1953 1956 1959 1959 1963 1967 1971 1974 1978 1979 1983 1987 1991 1995 1999 2003 2007 2009 2013 2016 5,95% 4,47% 16,2% 19% 15,7% 19,2% 21,7% 18,8% 15,4% 14,1% 17,8% 16,5% 15,6% 18,3% 12,5% 15,2% 14,2% 15,7% 10,5% 9,1% 22% 17,4% 11,7% 15,2% 15,5% 26,8% 26,8% 29,8% 12,9% 31% 5,7% 11,4% Fjöldi þingmanna Fylgishrun Samfylkingarinnar í tvennum síðustu alþingiskosningum sætir miklum tíðindum. Flokkur sem vera átti breiðfylking vinstrimanna á Íslandi hefur farið úr 29,8% fylgi niður í 5,7% á einungis sjö árum. Hafði mest 20 þingmenn en hefur nú þrjá. Fjórir kratar hafa gegnt emb- ætti forsætisráðherra á Ís- landi. Fyrst var það Stefán Jó- hann Stefánsson, formaður Alþýðuflokksins, frá febrúar 1947 til nóvember 1949. Næst Emil Jónsson, formaður Al- þýðuflokksins, frá desember 1958 til nóvember 1959. Þá Benedikt Gröndal, formaður Alþýðuflokks- ins, frá október 1979 til febrúar 1980. Loks Jóhanna Sigurð- ardóttir, formaður Samfylking- arinnar, frá febr- úar 2009 til maí 2013. Stefán Jóhann Stefánsson. 4 forsætis- ráðherrar Jóhanna Sigurðar- dóttir „Sterk átakahefð hefur einkennt flokkana á vinstrivængnum. Ég hef einsett mér að útrýma henni og leggja áherslu á að iðka sam- ræðustjórnmál, þar sem menn ræða sig að niðurstöðu.“ Össur Skarphéðinsson í samtali við Morgunblaðið eftir að hann var kjörinn fyrsti formaður Samfylkingarinnar vorið 2000. INNLENT ORRI PÁLL ORMARSSON orri@mbl.is Benedikt Gröndal var forsætisráðherra í minnihlutastjórn Alþýðuflokksins um þriggja mánaða skeið 1979-80. Hann er hér ásamt Kristjáni Eldjárn forseta. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.