Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.11.2016, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.11.2016, Blaðsíða 39
6.11. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39 arljósi þar sem notandinn getur val- ið saman ólík form til að setja saman sinn eigin lampa,“ segir Hrafnkell. Í ljósi þess hversu mörg verka hans eru unnin í samvinnu við aðra hönn- uði liggur beint við að forvitnast hvort hann sæki meðvitað í slíka samvinnu. „Já, mér finnst ég alltaf fá miklu meira út úr samtalinu og sam- vinnunni. Langflest verkefna minna hafa orðið til í samtali við aðra, enda sjá augu betur en auga. Ég gæti ekki lokað mig af einn inni á vinnustofu og fengið frábærar hugmyndir, því mín reynsla er að góðar hugmyndir þróast í samtali við aðra.“ Framsýn ljósahönnun Að sögn Hrafnkels hafa móttökurn- ar við lömpunum verið mjög góðar, en Tools You Light lamparnir voru frumsýndir á hönnunarsýningunni Maison & Objet í París í september, eru nú sýndir á Norðurbryggju og verða kynntir á fleiri viðburðum á næsta ári. „Pantanirnar streyma inn,“ segir Hrafnkell, en dreifingar- aðili hans erlendis er Pop Corn, sem er stærsti dreifingaraðili á samtíma- hönnun í Frakklandi. „Sama fyrir- tæki sér líka um dreifingu Háboll- anna minna sem ég hannaði meðan ég var enn í námi og mörkuðu ákveð- in þáttaskil á mínum ferli, enda hafa þeir selst í tugum þúsunda eintaka.“ Óhætt er að segja að Hrafnkell sé með hugann allan við ljós, því næst á dagskrá hjá honum er að fullþróa umhverfisvænan sólarlampa sem nefnist Sólskin, en til þess hlaut hann nýverið styrk úr Hönnunar- sjóði. „Sólskin hannaði ég í samstarfi við Aðalstein Stefánsson og Sesselju heitna Guðmundsdóttur fyrir um tólf árum,“ segir Hrafnkell og rifjar upp að lampinn hafi á sínum tíma hlotið hönnunarviðurkenningu í Þýskalandi. „Hugmyndin er að lampinn standi úti í glugga yfir daginn svo hægt sé að hlaða sólarrafhlöðurnar sem í honum eru. Lampinn er eins og mjólkurbrúsi í laginu þar sem hand- fangið virkar sem kveikjari/ slökkvari. Við vorum mjög framsýn þegar við hönnuðum lampann, en á þeim tíma voru sólarrafhlöður ekki orðnar nógu öflugar, en síðan hefur tækninni fleygt fram þannig að nú sjáum við loks fram á að geta sett hann í framleiðslu strax á næsta ári. Við erum komin í samband við spennandi framleiðanda og marga dreifingaraðila sem bíða eftir lamp- anum, þannig að það eru spennandi tímar framundan.“ ’Bökunarforminspruttu upp úr lönguntil að nýta rykfallin verk-færi uppi í hillu og svo verða lamparnir til úr ryk- föllnum bökunarformum. Hin einstaka finnska pönk- hljómsveit Pertti kurikan nimi- päivät kemur fram á 40 ára afmæl- istónleikum Þroskahjálpar í Iðnó á sunnudag klukkan 17. Hljómsveitin er dáð í heimalandinu og sló í gegn víðar við þátttökuna í Eurovision. Taxi Driver í leikstjórn Martin Scorsese verður sýnd á Svörtum sunnudegi í Bíó Paradís annað kvöld, sunnudag, kl. 20. Þar leikur Robert De Niro uppgjafa hermann í New York sem keyrir leigubíl á nótt- unni en veltir á daginn vöngum yfir því hvernig heimur versn- andi fer. Hildur Bjarnadóttir myndlist- armaður ræðir við Jóhannes Dags- son, heimspeking og myndlist- armann, og Gunnar J. Árnason listheimspeking um sýningu sína Vistkerfi lita í vestursal Kjarvals- staða í dag, laugardag, kl. 13. Þýski leikhúsfræðingurinn og rit- höfundurinn Oswald Georg Bauer fjallar í Kaldalóni Hörpu á morgun, sunnudag, kl. 14 um Richard Wagner og dvöl hans í Feneyjum síðustu mánuði ævi sinnar. Erindið er á ensku og er aðgangur ókeypis. Aðalheiður Valgeirsdóttir býður upp á sýningarstjóraspjall um Tímalög – Karl Kvaran og Erla Þórarinsdóttir í Listasafni Árnesinga á morgun, sunnudag, kl. 15. Sýningunni lýkur 13. nóvember og er opin fim. til sun. kl. 12-18. Aðgangur er ókeypis. MÆLT MEÐ Við tökum að okkur að skipuleggja smáar sem stórar veislur. Lauga-ás rekur farandeldhús í hæsta gæðaflokki og getur komið hvert sem er á landinu og sett upp gæða veislu. Er veisla framundan hjá þér? Hafðu samband við okkur og við gerum þér tilboð. )553 1620 Afmæli Árshátíð Gifting Ferming Hvataferðir Kvikmyndir Íþróttafélög Jöklahlaðborð Starfsdagar Tónleikar Veisluþjónusta Lauga-ás Laugarásvegi 1, 104 Reykjavík laugaas@laugaas.is • laugaas.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.