Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.11.2016, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.11. 2016
VETTVANGUR
Í nýliðinni kosningabaráttu voruumhverfismál til umræðu við ým-is tilefni. Allir frambjóðendur
lýstu yfir miklum stuðningi við nátt-
úruna og oft var nefnt að umhverf-
ismálin þyrftu að vera í forgangi
næstu ár. „Hvað ætlar flokkurinn að
gera í umhverfismálum?“ vorum við
frambjóðendur oft spurðir, svolítið
eins og það þurfi að gera eitthvað sem
hönd á festir ef menn ætla að standa
við það að vera umhverfissinnar. Það
var eitt og annað sem flokkarnir gátu
nefnt sem beinar aðgerðir í umhverf-
ismálum. Sumir lofuðu að leggja á
„græna“ skatta. Aðrir nefndu að
banna ætti olíuvinnslu, og telja þá
væntanlega það mikla ólukku ef hér
við land fyndist olía. Flestir ef ekki
allir voru sammála um að skoða vel
kosti þess og galla að gera hálendið
allt að þjóðgarði. Fleiri ágæt mál
voru rædd og ég fyrir mitt leyti lærði
sitthvað.
Mér hefur þótt svolítið skorta að
menn líti til þess sem vel er gert og
þess sem hefur virkað í umhverfis-
málum. Við höfum vissulega ágæt
dæmi um árangur í umhverfisvernd.
Sjávarútvegskerfið okkar hefur gert
okkur kleift að byggja upp og við-
halda fiskistofnum sem áður höfðu
hrunið vegna ofveiði. Þetta er trúlega
eitt mikilvægasta framlag okkar til
náttúruverndar á heimsvísu. Lax-
veiðiárnar okkar eru sömuleiðis dæmi
um að skýr nýtingarréttur stuðlar að
skynsamlegri umgengni.
Aukin hagsæld leiðir til aukins
áhuga á umhverfismálum. Með bætt-
um hag og auknum frítíma aukast
möguleikar manna til að njóta náttúr-
unnar hvort sem það er með veiði,
gönguferðum, fuglaskoðun, hjólreið-
um, jeppaferðum á fjöll og jökla, skóg-
rækt eða endurheimt votlendis. Já ég
tel endurheimt votlendis upp hér því
hún er ekki aðeins orðin áhugamál
fuglavina, en votlendi er mikilvæg-
asta athvarf margra fuglategunda,
heldur eru fleiri hagsmunir þar undir.
Votlendið er einnig mikilvægt fyrir
vatnasvæði áa og stöðuvatna og þar
með fyrir þá sem hafa tekjur af
stangveiði. Svo hafa rannsóknir leitt í
ljós að framræst land er stærsta upp-
spretta losunar gróðurhúsaloftteg-
unda hér á landi. Fyrirtæki og ein-
staklingar geta því kolefnisjafnað
starfsemi sína með endurheimt vot-
lendis og einhverjir eru þegar farnir
af stað með slík verkefni.
Flestir ef ekki allir eru sammála
um að æskilegt sé að bæta umhverfið
og vernda náttúruna en stundum
þarf einnig að bæta heiminn og lífs-
skilyrði mannsins með því að nýta
auðlindir náttúrunnar. Það er skil-
yrði að slík nýting sé ekki knúin
áfram af ríkisstyrkjum eða náttúran
undirverðlögð með öðrum hætti.
Skýr nýtingar- eða eignarréttur á
náttúruauðlindum dregur á hinn bóg-
inn úr líkum á því að skammtíma-
sjónarmið ráði för þegar ákvörðun er
tekin um nýtingu.
Hagsæld og umhverfisvernd
’Með bættum hag ogauknum frítímaaukast möguleikarmanna til að njóta nátt-
úrunnar hvort sem það er
með veiði, gönguferðum,
fuglaskoðun, hjólreiðum,
jeppaferðum á fjöll og
jökla, skógrækt eða
endurheimt votlendis.
Unnið er að endurheimt votlendis á vegum ráðuneyta. Lútandavatn í Villingaholtshreppi. Vatnið fékk nafnið vegna þess að landið lýtur í áttina að því.
Úr ólíkum
áttum
Sigríður Á. Andersen
saa@althingi.is
„Rakst fyrir tilviljun á bráð-
skemmtilega sýningu á Lækjartorgi.
Held að hún kallist „Tilbrigði við
hellulögn“. Væri gaman að sjá
meira frá þessum dularfulla lista-
manni,“ skrifaði
Bragi Valdimar
Skúlason á Face-
book og lét fylgja
með 15 ljósmyndir
af gangstétt-
arhellum en á
hverri mynd má
sjá brotnar hellur. Einni myndinni
lýsti hann svo:
„Hér stillir listamaðurinn upp
tveimur misdökkum hellum, brýtur
þær þær upp og setur við hlið æp-
andi hringforms úr köldum málmi.
Tvíhyggja nútímamannsins and-
spænis köldum veruleikanum gerist
ekki áleitnari.“
Um aðra ritaði hann: „Hér sjáum
við hvernig eyðileggingin brýst
áfram. Hvítu hellurnar eru eins og
brimgarður sem brotnar við svarta
strönd. Tyggjóin eru líka virkilega
skemmtilegt tötsj.“
Hann fékk mikil viðbrögð við
þessu myndasafni. Til dæmis skrif-
aði Heiða B. Heiðars: „Þessi sýning
er ansi víða í 101.
Lausar hellur, hrasandi túristar í
bland við heimafólk. Skemmtilegt.“
Lára Antonía spurði. „Eru þetta
ekki restar frá Íslandsmeist-
aramótinu í Tetris frá 1992??“ á
meðan tónlistarmaðurinn Samúel
Jón Sam-
úelsson skor-
aði á hann að
gefa út ljós-
myndabók fyrir
jólin.
Sjónvarpsmaðurinn Gísli Mar-
teinn Baldursson gekkst undir
aðgerð á hásin í vikunni og gat því
ekki stýrt sínum vikulega þætti á
RÚV. Hann skrifaði á fimmtudag á
Twitter: „Á morgun verður fyrsta
skiptið á sjónvarpsferlinum sem ég
missi af þætti. Myndirnar sýna
hvers vegna. @bergsteinn3 er mín
Vala Matt. #vikan,“ en myndirnar
voru frekar grafískar enda aðgerð-
in ekkert grín.
Bergsteinn
Sigurðsson, sem
sér um þáttinn í
fjarveru Gísla
skrifaði um þetta á
sama miðli: „Ég
kemst auðvitað
ekki með tærnar þar sem @gislim-
arteinn er með sundurslitna hæl-
ana en skal lofa að vanda mig.“
Stjórnmálamenn grínast eins og
aðrir en nýr þingmaður, Hanna
Katrín Frið-
riksson, skrifaði á
Facebook:
„Mér fannst
skrítið að sjá Ög-
mund Jónasson,
fyrrverandi þing-
mann, lýsa mér og félögum mínum í
Viðreisn sem frjálshyggjufólki. Svo
talaði hann um sjálfan sig sem
frjálslyndan miðjumann. Þá fattaði
ég að hann var að grínast.
#þaðmálíkagrínastípólitík.“
AF NETINU
N
ýbýlavegur8.-200
Kópavogur-S:527
1717
-
dom
usnova@
dom
usnova.is
-w
w
w
.dom
usnova.is
Frítt verðmat
Viltu vita hvað þú færð fyrir
fasteignina þína ?
Fasteignasala venjulega fólksins...
Ábyrgðarmaður Domusnova: Haukur Halldórsson, hdl., lgf.