Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.11.2016, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.11. 2016
Kratar í kreppu
Í ár eru hundrað ár liðin frá stofn-un Alþýðuflokksins og bauð þessifyrsti jafnaðarmannaflokkur á
Íslandi í fyrsta skipti fram í alþing-
iskosningunum 1916. Fékk þá 5,95%
atkvæða sem er sjónarmun meira en
Samfylkingin, arftaki Alþýðuflokks-
ins, hlaut í kosningunum um liðna
helgi, eða 5,7%. Það er næstversta
útkoma þessara tveggja flokka í sög-
unni; aðeins gekk verr í þingkosning-
unum 1919, þegar Alþýðuflokkurinn
fékk einungis 4,47% atkvæða og kom
ekki manni að í fyrsta og eina skiptið.
Auk Alþýðuflokksins stóðu þrír
stjórnmálaflokkar að stofnun Sam-
fylkingarinnar um aldamótin; Al-
þýðubandalagið, Kvennalistinn og
Þjóðvaki en síðastnefndi flokkurinn
hafði orðið til árið 1994 þegar Jó-
hanna Sigurðardóttir klauf sig út úr
Alþýðuflokknum. Hann sameinaðist
raunar þingflokki Alþýðuflokksins
tveimur árum síðar. Alþýðu-
bandalagið var arftaki Sósíal-
istaflokksins, lengst til vinstri á hinu
pólitíska rófi. Kvennalistinn bauð
fyrst fram 1983 en tilgangur þess
framboðs var öðru fremur að auka
veg kvenna í íslenskum stjórnmálum.
Yfirlýst markmið með stofnun
Samfylkingarinnar var að sameina
vinstrimenn á Íslandi og búa til
breiðfylkingu sem gæti mögulega
orðið stærri en Sjálfstæðisflokkurinn
sem strax varð yfirlýstur höfuðand-
stæðingur flokksins.
Í fyrstu alþingiskosningunum,
1999, vantaði nokkuð upp á að það
markmið næðist. Samfylkingin hlaut
þó 26,8% atkvæða á móti 40,7% Sjálf-
stæðisflokksins. Hinn nýi flokkur
fékk 17 menn kjörna sem var meira
en Alþýðuflokkurinn hafði nokkru
sinni fengið. Langbesti árangur hans
var 14 þingmenn árið 1978 undir for-
ystu Benedikts Gröndals. Frá stofn-
un lýðveldisins bjó Alþýðuflokkurinn
iðulega að 5 til 10 þingmönnum. Í síð-
ustu kosningunum sem hann bauð
fram, 1995, fékk hann 7 menn kjörna.
Rauf 30% múrinn
Ekki má gleyma því að Samfylkingin
klofnaði strax í upphafi þegar hluti
gamla Alþýðubandalagsins stofnaði
Vinstrihreyfinguna – grænt fram-
boð. Sá flokkur fékk ríflega 9% at-
kvæða 1999 og er nú orðinn mun
stærri en Samfylkingin, með 15,9%
fylgi í kosningunum fyrir viku og 10
menn kjörna. 7 fleiri en Samfylk-
ingin.
Í alþingiskosningunum 2003 saum-
aði Samfylkingin duglega að Sjálf-
stæðisflokknum, hlaut 31% en höf-
uðandstæðingurinn 33,7%. Í þeim
kosningum fengu jafnaðarmenn í
fyrsta sinn 20 menn kjörna á þing.
2007 dró aftur í sundur með flokk-
unum, Samfylkingin fékk 26,8% at-
kvæða á móti 36,6% Sjálfstæð-
isflokksins. Eftir þær kosningar
mynduðu þessir flokkar í fyrsta og
eina skipti saman ríkisstjórn. Sitt
sýndist hverjum um þann gjörning,
bæði á vinstri- og hægrivængnum.
Hálfu öðru ári síðar hrundu við-
skiptabankarnir einn af öðrum með
tilheyrandi hremmingum fyrir þing
og þjóð. Ríkisstjórnin féll og boðað
var til kosninga tveimur árum áður
en kjörtímabilinu átti að ljúka.
Ekki varð Samfylkingunni sérlega
meint af setu sinni í „hrunstjórninni“
svokölluðu; alltént rættist draumur
hennar í kosningunum 2009 – hún
varð stærsti stjórnmálaflokkur á Ís-
landi. Hlaut 29,8% á móti 23,7%
Sjálfstæðisflokksins. Öðru sinni fékk
flokkurinn 20 þingmenn.
Fyrsta meirihlutastjórnin til
vinstri í sögu lýðveldisins varð til í
framhaldinu með aðild Samfylking-
arinnar og Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs. Alþýðuflokkurinn
hafði áður setið einn í tveimur minni-
hlutastjórnum, 1958-59 og 1979-80.
Samfylkingin fór illa út úr því
stjórnarsamstarfi og hrapaði fylgi
flokksins niður í 12,9% í næstu kosn-
ingum, 2013, og missti hann heila ell-
efu þingmenn. Ekki þarf að fjölyrða
um annað hrun í kosningunum um
daginn, en Samfylkingin hefur nú að-
eins yfir þremur þingmönnum að
ráða; þar af bara einum kjördæma-
kjörnum, Loga Má Einarssyni, sem
tók við formennsku í flokknum í vik-
unni, en hann bauð sig fram í Norð-
austurkjördæmi. Hinir tveir þing-
menn Samfylkingarinnar eru
uppbótarmenn.
Það er ágæt vísbending
um vanda Samfylking-
arinnar nú að Alþýðuflokk-
urinn var aðeins einu sinni
undir 10% fylgi í alþing-
iskosningum, fyrir utan tvö
fyrstu skiptin. Það var 1974
þegar flokkurinn hlaut 9,1%.
Þá var þingstyrkur flokksins
líka minnstur á lýðveldistím-
anum, fimm menn.
Alþýðuflokkurinn náði tvívegis
að rjúfa 20% múrinn; 1978, eins
og fyrr er getið, og 1934, þegar
hann hlaut 21,7% atkvæða.
Slíkt fylgi er fjarlægur
draumur nú.
Fylgi Alþýðuflokks/Samfylkingar í Alþingiskosningum 1916 - 2016
35%
30%
25%
20%
10%
5%
0%
*
Sa
m
fy
lk
in
g
bý
ðu
r
fy
rs
t
fr
am
19
99
.
*
1 1 5 4 4 10 8 6 7 9 7 6 8 6 9 8 9 6 5 14 10 6 10 10 7 17 20 18 20 9 3
1916 1919 1923 1927 1931 1933 1934 1937 1942 1942 1946 1949 1953 1956 1959 1959 1963 1967 1971 1974 1978 1979 1983 1987 1991 1995 1999 2003 2007 2009 2013 2016
5,95%
4,47%
16,2%
19%
15,7%
19,2%
21,7%
18,8%
15,4%
14,1%
17,8%
16,5% 15,6%
18,3%
12,5%
15,2%
14,2%
15,7%
10,5%
9,1%
22%
17,4%
11,7%
15,2% 15,5%
26,8% 26,8%
29,8%
12,9%
31%
5,7%
11,4%
Fjöldi þingmanna
Fylgishrun Samfylkingarinnar í tvennum síðustu alþingiskosningum sætir miklum tíðindum. Flokkur sem vera átti breiðfylking
vinstrimanna á Íslandi hefur farið úr 29,8% fylgi niður í 5,7% á einungis sjö árum. Hafði mest 20 þingmenn en hefur nú þrjá.
Fjórir kratar hafa gegnt emb-
ætti forsætisráðherra á Ís-
landi. Fyrst var það Stefán Jó-
hann Stefánsson, formaður
Alþýðuflokksins, frá febrúar
1947 til nóvember 1949. Næst
Emil Jónsson, formaður Al-
þýðuflokksins, frá desember
1958 til nóvember 1959.
Þá Benedikt Gröndal,
formaður Alþýðuflokks-
ins, frá október 1979 til
febrúar 1980. Loks
Jóhanna Sigurð-
ardóttir, formaður
Samfylking-
arinnar, frá febr-
úar 2009 til maí
2013.
Stefán Jóhann Stefánsson.
4 forsætis-
ráðherrar
Jóhanna
Sigurðar-
dóttir
„Sterk átakahefð hefur einkennt flokkana á vinstrivængnum. Ég
hef einsett mér að útrýma henni og leggja áherslu á að iðka sam-
ræðustjórnmál, þar sem menn ræða sig að niðurstöðu.“
Össur Skarphéðinsson í samtali við Morgunblaðið eftir að hann
var kjörinn fyrsti formaður Samfylkingarinnar vorið 2000.
INNLENT
ORRI PÁLL ORMARSSON
orri@mbl.is
Benedikt Gröndal var forsætisráðherra í minnihlutastjórn Alþýðuflokksins um
þriggja mánaða skeið 1979-80. Hann er hér ásamt Kristjáni Eldjárn forseta.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon