Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.11.2016, Qupperneq 15
6.11. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
Það var mikill léttir að
losna við utanáliggj-
andi hjartavélina sem
var hávær og þung.
22. júní, þegar Ingi Þór snýr aftur á
hjartadeild Sahlgrenska sjúkrahússins
eftir að hafa verið tengdur við Berlin He-
art-vélina, mætir þangað ungur maður að
nafni Markus sem er kynntur fyrir fjöl-
skyldunni sem læknanemi og hún spurð
hvort hann megi fylgjast með ferlinu hjá
Inga Þór. Manninn segja þau hafa verið
skemmtilegan og hafa borið með sér létt-
leika og lífsgleði inn á sjúkrastofuna, svo
það var auðsótt að leyfa honum að fylgj-
ast með. Ágætis vinátta myndaðist á milli
Markusar og Inga Þórs og eyddu þeir
ófáum stundum við leik í X-box tölvu sem
bróðir Inga Þórs hafði fært honum á spít-
alann.
Eftir að hafa umgengist fjölskylduna og
Inga Þór um skeið óskaði læknaneminn
eftir leyfi fyrir því að fylgjast sérstaklega
með hjartaskiptum Inga Þórs og fjalla um
þau á ráðstefnu síðar á árinu. Það myndi
krefjast þess að hann fengi að mynda og
fá aðgang að öllum upplýsingum sem
tengdust framvindunni í meðhöndlun Inga
Þórs, það þótti sjálfsagt þar sem öll fjöl-
skyldan var hæstánægð með nærveru
Markusar.
Fylgdi Inga Þór fyrstu
skrefin í ferlinu
Þegar kallið kom um að hjarta sem hent-
aði Inga Þór hefði borist sjúkrahúsinu,
bar það brátt að og þau Ásgeir og Guðrún
voru stödd í Frakklandi í stuttri vinnu-
tengdri ferð. Það var því Markus sem
fylgdi Inga Þór inn í ferlið og undirbún-
inginn fyrir aðgerðina ásamt móðurömmu
Inga Þórs og Gunnari bróður hans.
Skömmu eftir aðgerðina stóru fór einn
hjúkrunarfræðingurinn að veita því athygli
að Markus bað alltaf um að fá að sjá
sjúkramöppu Inga Þórs þar sem allar upp-
lýsingar um hann voru skráðar handvirkt
jafnóðum og þær voru mældar og hann
gaf henni þær skýringar að honum þætti
það betra. Þetta þótti hjúkrunarfræð-
ingnum grunsamlegt þar sem upplýsing-
arnar eru líka skráðar í tölvukerfið þar
sem mun betra er að lesa úr þeim. Við
frekari könnun hennar kom í ljós að
læknaneminn Markus átti í raun ekkert
erindi inn á spítalann og var hvergi skráð-
ur í læknanám.
Plataði færustu hjartaskurð-
lækna heims upp úr skónum
„Hann hafði náð að svindla sér þarna inn
og var með skilríki, hann var með pappíra,
bréf og vitneskju. Hann var nógu klár til
að plata nokkra af bestu hjartaskurðlækn-
um í heimi til að fá að vera viðstaddur 18
klukkustunda hjartaskiptiaðgerð,“ segir
Guðrún forviða og bætir við að þrátt fyrir
vinalega framkomu Markusar og að hon-
um og Inga Þór hafi orðið vel til vina
hefði hún viljað sleppa við þessa furðu-
legu atburðarás sem hefur haft talsverðar
afleiðingar. „Sjúkrahúsið kærði sjálft sig
til lögreglu því sænskar reglur gera ráð
fyrir því. Upp úr því hófst lögreglurann-
sókn og síðan er búið að breyta öryggis-
reglum á sjúkrahúsum í allri Skandinavíu
vegna þessa. Út af okkar manni!“ segir
Ásgeir í tón sem gefur til kynna vantrú á
því hvernig hlutirnir æxluðust.
Sérstaklega hafi þetta verið óþægilegt
fyrstu dagana eftir aðgerðina þar sem þau
vissu ekki hvað Markusi hefði gengið til
og hvernig hann ætlaði sér að nýta upp-
lýsingarnar sem hann hafði sankað að sér.
Líffærastuldur er áhættuþáttur sem er
tekinn mjög alvarlega á slíkum stofnunum
og gerir það enn ótrúlegra að hægt hafi
verið að komast framhjá öllum örygg-
isráðstöfunum og inn í aðgerð af þessari
stærðargráðu. Ásgeir stóð því því vörð
um son sinn í nokkra daga eftir aðgerðina
stóru.
Ingi Þór segist þó hafa átt í litlum erf-
iðleikum með að fyrirgefa Markusi sem er
búinn að skila öllum gögnum og ljós-
myndum sem hann tók af ferlinu og biðja
fjölskylduna afsökunar. Þegar málið var
rannsakað kom í ljós að hann hafði átt
móður sem starfaði á spítalanum en var í
veikindaleyfi og hann hafði upphaflega
komist inn á spítalann með aðgangskorti
hennar.
LÆKNANEMI VILLTI Á SÉR HEIMILDIR
Boðflenna á sjúkrahúsinu
Á göngum Sahlgrenska sjúkrahúsinu í Gautaborg. Boðflennan Markus sést fyrir miðri mynd.
Vel er fylgst með
bata Inga Þórs og
þarf hann að mæta
reglulega á sjúkra-
h́úsið til rannsókna.