Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.11.2016, Qupperneq 16
VIÐTAL
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.11. 2016
því að að hafa strítt starfsfólki á spítalanum
með því að stöðva flæðið í slöngunum og virkja
þannig viðvörunarmerki sem hann gerði líka í
þetta skiptið og þá hljómaði viðvörunarhljóðið
háværa loks og starfsfólk spítalans kom hon-
um til bjargar.
Ingi Þór man óljóst eftir atvikinu en Guðrún
segir þetta hafa verið erfitt að eiga við á sínum
tíma. „Þetta slapp nú betur en á horfðist, þetta
var samt eitt atvikið af nokkrum til viðbótar
við veikindin sem kom upp og maður þurfti að
glíma við,“ rifjar hún upp.
Hjartað kom fljótt
8. september mat læknateymið á Sahlgrenska
sjúkrahúsinu ástand Inga Þórs þannig að hann
væri tilbúin að fara í hjartaskiptaaðgerð og
var í kjölfarið settur á biðlista. Bið eftir hjarta
sem hentar líffæraþega getur tekið marga
mánuði en í þetta skiptið var biðin aðeins viku-
löng því kallið kom 15. september. Í slíkri
stöðu þarf að bregðast hratt við og Ingi Þór
fékk einungis nokkrar mínútur til að átta sig á
því að nú væri komið að stóru stundinni. Guð-
rún og Ásgeir voru stödd í Frakklandi, höfðu
farið í nokkurra daga kærkomið frí sem starfs-
fólk spítalans raunar hvatti þau til að fara í,
þegar þeim bárust boðin um að aðgerðin væri
að hefjast og fylgdust þau með henni að miklu
leyti í gegnum Facetime í símanum. Aðgerðin
sjálf tók 18 klukkustundir og Inga Þór var
haldið sofandi í þrjá sólarhringa í kjölfarið
með brjóstholið opið því nauðsynlegt er að
komast að líffærunum með hraði ef eitthvað
fer úrskeiðis.
Þarna sáu þau Guðrún og Ásgeir nýtt hjarta
slá í brjósti sonar síns sem þau segja hafa ver-
ið mikla upplifun. „Mjög hjartnæm stund,“
segja þau blátt áfram. Húmorinn á sínum stað,
en að öllu gríni slepptu segja þau sjónina hafa
verið átakanlega og það hafi verið þungbært
fyrir þá nánustu ættingja sem fylgdu þeim til
Svíþjóðar að sjá hvað lagt var á Inga Þór. „Á
sama tíma er maður samt agndofa af því að sjá
hvað læknavísindin geta gert,“ segir Ásgeir.
Ástæðuna fyrir því hversu stutt biðin eftir
nýju hjarta var, segir Ásgeir að hluta til hafa
verið tímasetninguna. „Í lok sumars eykst
tíðni slysa þegar fólk er að koma aftur úr sum-
arfríum sem eykur framboðið á líffærum sem
berast sjúkrahúsum til líffæragjafar.“
Líf með lánshjarta
Líffæragjöf er ekki einföld og hugsanirnar
sem henni tengjast eru margar og sumar
snerta þá grundvallarafstöðu sem fólk hefur til
tilverunnar. Fjölskyldan segir blendnar til-
finningar fylgja því að taka við hjarta úr
Ingi Þór og
heimilishund-
urinn Jasmín.
Á flugvellinum við heimkomuna eftir 177 daga sjúkrahúsvist. Guðrún Halldórsdóttir (föðursystir
Inga) Halldór Vilhjálmsson (föðurafi) Gunnhildur Ásgeirsdóttir (föðuramma) Gunnar Þór Ásgeirs-
son, Ragnar Þór Ásgeirsson, Ásgeir Halldórsson, Guðrún Brynjólfsdóttir og Ingi Þór Ásgeirsson.
Ingi Þór ásamt
Helga Einari
Harðarsyni,
frænda sínum,
sem hefur tvívegis
farið í hjarta-
skiptiaðgerð.
Gríðarstór örin á bringu
Inga Þórs sýna vel umfang
aðgerðarinnar.