Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.11.2016, Síða 17
6.11. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17
40+
FEMARELLE REJUVENATE
• Minnkar skapsveiflur
• Stuðlar að reglulegum svefni
• Eykur orku
• Eykur teygjanleika húðar
• Viðheldur eðlilegu hári
Selma Björk er mjög
ánægð með áhrifin
af Femarelle
50+
FEMARELLE RECHARGE
• Slær hratt á einkenni
(hitakóf og nætursviti minnka)
• Stuðlar að reglulegum svefni
• Eykur orku
• Eykur kynhvöt
• Hefur engin áhrif á vef
í brjóstum eða legi
Femarelle skiptir
Valgerði miklu
máli
60+
FEMARELLE UNSTOPPABLE
• Inniheldur kalsíum og D3-víta-
mín sem eru nauðsynleg til að
styrkja bein að innan
• Stuðlar að heilbrigðri
slímhúð legganga
• Eykur liðleika
• Stuðlar að reglulegum svefni
• Eykur orku sem stuðlar að
andlegu jafnvægi
Eva Ólöf er
hressari þegar hún
notar Femarelle
Lífið ætti ekki að taka stakkaskiptum
við það að eldast - vertu með okkur Elskaðu.Lifðu.Njóttu. vörulínan
manneskju sem í þessu tilfelli var manneskja á
svipuðu reiki og Ingi Þór. Óhjákvæmilegt sé
að hugsa um það og móta sér skoðanir. Ingi
Þór segist sjálfur hafa leitt hugann að því að
skrá sig sem líffæragjafa áður en hann veiktist
og segist aldrei hafa haft neinar efasemdir um
hvort hann myndi vilja þiggja hjarta úr ann-
arri manneskju. „Mér finnst bara alveg ótrú-
legt að þetta sé hægt og að það sé búið að finna
leið framhjá svona veikindum,“ segir hann.
Raunveruleikinn sé sá að fólk falli frá öllum
stundum og sé hægt að nýta líffæri þess til að
bjarga fólki í lífshættu hljóti það að teljast já-
kvætt. Guðrún hefur jafnvel sterkari skoðun á
málinu; „Í rauninni ætti það að vera bundið í
lög að fólk væri skráð sem líffæragjafar nema
það tæki annað fram, því fólk gleymir að skrá
sig en það gerist varla ef það hefur sterkar
skoðanir á því að vilja ekki gefa líffæri.“
Hjartað sem hélt áfram að stækka
Þegar gamla hjartað var fjarlægt úr líkama
Inga Þórs var hægt að rannsaka það frekar. Í
ljós kom meðfæddur hjartagalli sem gerði það
að verkum að hjartað hélt áfram að stækka
eftir að það náði fullum þroska. Engin tenging
fannst við gallann sem frændi Ásgeirs og Inga
Þórs hafði verið með. Hægt var að gefa hjarta-
lokurnar til manneskju sem þurfti á að halda
og þau segja það hafa verið góða tilfinningu.
Það var stórt skref að vera kominn með nýtt
hjarta sem sló vel og eðlilega en Ingi Þór var
enn mjög orkulítill og veikburða. Fólk jafnar
sig yfirleitt hratt eftir aðgerð og engin höfnun
á hjartanu var sýnileg en þrátt fyrir það brást
líkami Inga Þórs ekki rétt við. Kristján hjarta-
læknir ákvað því að hreinsa öll mótefni úr
blóðinu og setja ný í staðinn. Eftir það tók Ingi
Þór vel við sér og braggaðist hratt. Þetta var
fimm daga ferli sem hjálpaði mikið og 28. októ-
ber kom Ingi Þór aftur heim til Íslands, 177
dögum eftir að hafa fyrst farið á heilsugæsluna
í Kópavogi með föður sínum. Reynsla á borð
við þessa bætir mörgum árum við þroska ungs
manns eins og Inga Þórs og hann segist sjá
eitt og annað í öðru ljósi enda var þetta mikill
prófsteinn á persónuleg tengsl og vinskap.
„Maður sér hvern maður getur litið á og sagt:
þetta er einhver sem mér þykir vænt um,“
segir Ingi Þór og foreldrar hans taka undir
þau orð. Guðrún segir þau enn vera að jafna
sig á álaginu og streitunni sem fylgdi veikind-
unum. „Við sáum líka hverjir voru vinir í raun
og hverjir ekki, merkilegast þykir manni
hvernig sumt fólk hefur tilhneigingu til að
draga sig í hlé frá þeim sem veikjast og jafnvel
aðstandendum þeirra,“ segir Ásgeir. „Þetta er
í einhverjum tilfellum gert vegna tillitssemi og
jafnvel ótta en mér finnst þetta óheppilegt, því
ég hef séð í gegnum tíðina að þetta eykur á
vanda þeirra sem eiga um sárt að binda því af-
leiðingarnar eru að fólk einangrast og vanlíðan
þess eykst.“
Loksins er þó hægt að horfa fram á veginn
en Ingi Þór stefnir á að hefja nám í bifvéla-
virkjun á nýju ári. Stóri lærdómurinn sem þau
draga af reynslunni er mikilvægi þess að taka
mark á eigin sannfæringu og að fylgja hjart-
anu.
Morgunblaðið/Golli
’Reynsla á borð við þessabætir mörgum árum viðþroska ungs manns eins ogInga Þórs og hann segist sjá
eitt og annað í öðru ljósi enda
var þetta mikill prófsteinn á
persónuleg tengsl og vinskap.
„Maður sér hvern maður get-
ur litið á og sagt: þetta er ein-
hver sem mér þykir vænt um.“