Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.11.2016, Blaðsíða 19
að nokkrum manni – nema ég yrði að öðrum
kosti drepin. Ég myndi líklega ljúga mér til
lífs. En hver gerði það ekki?“
– Hvernig stjórnmálamaður ertu?
„Ég er stjórnmálamaður sem leggur höf-
uðáherslu á að hljóma ekki eins og stjórn-
málamaður. Margir stjórnmálamenn tala í
frösum; eru róbót. Ég er fyrst og fremst Ís-
lendingur og er í stjórnmálum til að brúa
gjána milli stjórnvalda og almennings. Ég vil
draga menn til ábyrgðar fyrir spillingu; þoli til
dæmis ekki einkavinavæðinguna sem hefur
grasserað hér gegnum tíðina. Fólk situr á Al-
þingi í umboði þjóðarinnar og á ekki að sól-
unda fyrir sjálft sig. Þess vegna er skýrari
stefna um ábyrgð ráðherra og þingmanna eitt
af helstu baráttumálum Flokks fólksins. Það
er alveg makalaust að fólk komi saman í þús-
undavís á Austurvelli að vori til að mótmæla
spillingu á Alþingi en kjósi hana svo yfir sig
aftur að hausti. Við verðum að hafa meira
hugrekki en þetta!“
– Píratar hafa líka talað með þessum hætti
og fóru á tímabili með himinskautum í skoð-
anakönnunum. Ertu hissa á því að fylgi þeirra
hafi ekki reynst meira í kosningunum?
„Í raun ekki. Píratar færðu andstæðingum
sínum vopn á silfurfati á lokasprettinum. Þeir
voru að mælast jafnstórir og stærri en Sjálf-
stæðisflokkurinn en fóru illa að ráði sínu.“
– Var Píratabandalagið sumsé mistök?
„Það gefur auga leið.“
Burt með gömlu flokkana
– Hefðir þú viljað sjá það stjórnarmynstur að
loknum kosningum, hefðu flokkarnir fjórir
fengið meirihluta?
„Ég veit það ekki. Jú, það hefði alla vega
hugnast mér betur en Sjálfstæðisflokkurinn.
Ég vil ekki sjá hann í ríkisstjórn. Sjálfstæð-
isflokkurinn er bara stjórnmálaarmur útgerð-
arinnar í landinu og reynir ekki einu sinni að
fela það. Það sjá allir. Það er hneyksli að út-
gerðin skili ekki meiru í ríkissjóð. Nægur er
víst arðurinn.
Hitt er annað mál að flokkarnir fjórir sem
voru að stinga saman nefjum fyrir kosningar
hafa ekki sýnt að þeir séu vandanum vaxnir
heldur, alla vega ekki í borginni. Borgin er af-
skaplega illa rekin. Það liggur fyrir.“
– Þetta hljómar eins og þú viljir helst sópa
gamla fjórflokknum, jafnvel nýja sjöflokkn-
um, út af borðinu.
„Það er alveg rétt. Við þurfum á algjörri
uppstokkun að halda í íslenskum stjórn-
málum. Gamla flokkakerfið er úr sér gengið.“
– En nú eru flestir sammála um það að
þjóðarbúskapurinn gangi bara býsna vel um
þessar mundir, sérstaklega í ljósi þess sem á
undan er gengið.
„Það er ekki stjórnmálamönnum að þakka.
Bjarni Benediktsson var Ice Hot One og held-
ur eflaust að hann hafi dregið alla þessa ferða-
menn hingað. Ég leyfi mér að efast um það.
Ætli Eyjafjallajökull, Björk og litli dúddinn
sem dansaði á þaki flugvélarflaksins [Justin
Bieber] beri ekki meiri ábyrgð á því. Var það
kannski líka Bjarna Benediktssyni að þakka
að makríllinn tók allt í einu upp á því að synda
inn í lögsögu Íslands?“
Græðgisvæðingin algjör
– Eins miklar tekjur og það skapar þá hafa
sumir áhyggjur af þessari öru fjölgun ferða-
manna. Telja hæpið að við ráðum við þetta.
Hvað finnst þér?
„Mér sýnist allt stefna í að við verðum fljót
að losa okkur sjálf við ferðamennina.
Græðgisvæðingin er algjör. Það gengur ekki
að okra svona á gestum okkar; fjórðungur úr
flatköku kostar 800 krónur í sjoppu. Svona
lagað spyrst hratt út og fólk hættir að koma.
Það er heldur ekki boðlegt að senda ferða-
menn út í runna til að ganga örna sinna. Það
þolir enga bið að byggja upp þessa helstu
ferðamannastaði, eigi ekki illa að fara. Og
hver er framtíðarsýnin? Borgin er til dæmis
að verða eitt stórt hótel, rekið af Airbnb.“
– Að allt öðru í lokin. Einhverjir muna eftir
þér úr hæfileikakeppninni X Factor sem Stöð
2 sýndi fyrir fáeinum árum. Ertu ennþá að
syngja?
„Er ég ennþá að syngja? Elskan mín góða.
Þú hefðir átt að sjá mig taka Simply the Best
með Tinu Turner hérna á kosningaskrifstof-
unni um daginn. Það sem maður lætur ekki
hafa sig út í.“
Hún hlær.
„Að öllu gamni slepptu þá hef ég alltaf haft
gaman af því að syngja og er stundum fengin
til að rífa upp stemninguna í partíum.“
Matur, barnabörnin og póker
– Hvað annað gerir þú í frístundum þínum?
„Ég er rosalega heimakær og elska að vera
heima og elda góðan mat eða dúllast með
barnabörnin sem eru orðin þrjú. Ég hef líka
mjög gaman af því að spila póker enda þótt
það sé ekki fyrir öryrkja að spila upp á mikla
peninga. Í staðinn spilum við með þvotta-
klemmurnar mínar. Mér þykir spilið sjálft
mjög skemmtilegt.“
– Þú tókst þér frí frá námi til að sinna kosn-
ingabaráttunni. Muntu taka upp þráðinn?
„Já. Ég lauk BA-prófi í lögfræði frá Há-
skóla Íslands síðasta vor og mun byrja í
meistaranáminu eftir áramótin. Ég er loksins
búin að finna leið í þessu námi sem hentar
fötlun minni og held því ótrauð áfram. Laga-
námið er mjög praktískt og kemur mér tví-
mælalaust til góða í pólitíkinni.“
Það var og. Inga fylgir mér að góðum sið til
dyra svo ég fari ekki með vitið úr húsinu. Í
kveðjuskyni spyr hún: „Heyrðu, fyrst við er-
um að leita að skrifstofu fyrir flokkinn. Er
nokkuð laust þarna í Hádegismóum?“
Fylgisþróun Fólks flokksins haustið 2016
G
al
lu
p
30
.s
ep
t.
4%
3%
2%
1%
0%
Fé
la
gs
ví
s.
st
.
6.
ok
t.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
12
.o
kt
.
G
al
lu
p
13
.o
kt
.
M
M
R
14
.o
kt
.
Fé
la
gs
ví
s.
st
.
19
.o
kt
.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
19
.o
kt
.
Fé
la
gs
ví
s.
st
.
21
.o
kt
.
M
M
R
26
.o
kt
.
M
M
R
28
.o
kt
.
G
al
lu
p
28
.o
kt
.
Ko
sn
in
ga
r
29
.o
kt
.
0,9%
0,6%
3,3%
2,1%
1,2%
3,8%
3,5%
3,8%
3,4%
2,4%
3,4% 3,5%
6.11. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19
Með nýju Opn heyrnartækjunum verður auðveldara að taka þátt í samræðum í fjölmenni og
hljóðupplifun verður eðlilegri en nokkurn tímann fyrr. Opn heyrnartækin skanna hljóðumhverfið
100 sinnum á sekúndu til að aðgreina talmál frá hávaða og koma jafnvægi á hljóð í kringum þig.
Þannig getur þú staðsett, fylgt eftir og einbeitt þér að þeim hljóðum sem þú vilt heyra.
Prófaðu nýju Opn heyrnartækin í 7 daga
Heyrnartækni | Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Sími 568 6880
Hefðbundin heyrnartæki Nýju Opn heyrnartækin
Tímapantanir í síma 568 6880
www.heyrnartaekni.is