Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.11.2016, Page 24
MATUR Lárpera á það til að vera óþroskuð og hörð og erfitt að bíða eftir aðhún verði tilbúin. Til að flýta fyrir, setjið lárperuna í álpappír og inn í
ofn í a.m.k. 10 mín. á 95°C. Látið svo kólna í ísskáp. Mjúk og klár!
Lárpera klár á 10 mínútum
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.11. 2016
B
jörn Ingi Knútsson hrærir fag-
mannlega í sósunni og húsið ilmar
af hreindýrabollum sem malla í
ofninum. Gestirnir eru á leiðinni
og allt að verða klárt fyrir fund
númer 306 hjá vinaklúbbnum Storminum.
Hittast tíu sinnum á ári
Þeir eru fimmtán talsins æskufélagar úr
Keflavík sem hafa hist reglulega, nánast mán-
aðarlega, í þrjátíu ár. Karlarnir í klúbbnum
eru fæddir á bilinu 1957 til 1966 en flestir eru
árgerð 1961 eða 1962. „Við hittumst alltaf
fyrsta miðvikudag í mánuði nema í júlí og
ágúst en þá er frí. Svo förum við alltaf saman
til útlanda á fimm ára fresti. Í ár fórum við í
ellefu daga siglingu um Karíbahafið og Suður-
Ameríku, með mökum,“ segir Björn Ingi. „Við
ákváðum að tryggja vinaböndin með þessum
klúbbi og það er alveg magnað að við höfum
náð að hittast einu sinni í mánuði í þrjátíu ár.“
Hreindýr sonarins komið í bollur
Á fundunum er alltaf borinn fram kvöldverður
en auðvitað eru þeir misgóðir kokkar að sögn
Björns Inga. „Við erum nokkrir í hópnum sem
höfum mikinn áhuga á mat og erum ansi lið-
tækir í eldhúsinu.“
Í matinn hjá Birni Inga er hreindýr sem
sonur hans skaut í fyrra. „Þetta eru hrein-
dýrabollur og ég blanda þær ekki með öðru
kjöti. Ég set í hakkið egg, rauðlauk, einiber og
rósmarín og síðan Tuc-kex,“ segir Björn og út-
skýrir að hann helli svo sósunni yfir bollurnar.
Björn Ingi er „gourmet“-kall
Það verður strax kátt á hjalla þegar vinirnir
birtast einn af öðrum inn úr myrkrinu og inn í
notalegu stofuna. Búið er að kveikja upp í arn-
inum og á Björn Ingi gengur um og kveikir á
kertum. Páll Ketilsson fréttamaður talar fal-
lega um vin sinn. „Hann hefur alltaf verið mik-
ill „gourmet“-kall, bæði í mat og víni. Það er
mjög gaman að borða hjá honum. Ég er með
þrjátíu ára reynslu í því,“ segir hann og brosir.
Kom með vín frá Ástralíu
Líflegar umræður ríkja í stofunni. Þeir félagar
fara strax að rifja upp gamla daga, enda af
nógu af taka. Flett er í fundargerðarbókinni
og sagðar sögur. Björn Ingi segist hafa lært
heilmikið í eldamennsku þegar hann var
messagutti fyrir mörgum áratugum.
Hann er einnig mikill vínáhugamaður og fer
gjarnan í ferðir til að kynna sér vín. „Ég ætla í
kvöld að segja þeim frá ferðinni sem ég fór í til
Ástralíu og Nýja-Sjálands,“ segir Björn Ingi
en þangað fór hann til að kynna sér þarlend
Í gegnum
súrt og sætt
í þrjátíu ár
Gamlir vinir úr Kefla-
vík hittast alltaf fyrsta
miðvikudag í mánuði,
borða saman og leysa
lífsins gátur. Það er
klúbburinn Stormur
sem fagnar nú þrjátíu
ára afmæli á árinu.
Björn Ingi Knútsson,
einn af matgæðingum
klúbbsins, bauð til
veglegrar veislu og
var hvergi sparað
Ásdís Ásgeirsdóttir
asdis@mbl.is
Karl, Sigurður, Guðmundur og Páll rýna í fundargerðarbókina góðu en í hana hafa þeir samvisku-
samlega skráð alla fundina 306. Stundum lesa þeir saman gamlar færslur og rifja upp góðar stundir.