Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.11.2016, Page 25
vín. „Og ég er með vín sem ég kom með í inn-
rituðum farangri til Íslands sem ég ætla að
leyfa þeim að smakka hér í kvöld,“ segir hann.
Allt skráð í fundargerðarbókina
Hvað taliði um í þessum karlaklúbbi?
„Nú ertu komin á hálan ís,“ segir einn úr
hópnum og þeir skellihlæja. „Þetta er leyni-
félag. Við förum ekki að uppljóstra neinu!“
segir Páll. „Nei, nei, við erum kannski ekki
með nein stórkostleg leyndarmál en við ræð-
um ýmis mál.“
Þeir útskýra að klúbburinn fari eftir lögum
og reglum og hafi einkunnarorð.
„Einkunnarorð klúbbsins eru samvinna, ein-
ing og vinátta, og það höfum við haft að leið-
arljósi. Við eigum til okkar eigin reglur og lög,
höldum aðalfund, og skrifum alltaf í fund-
argerðarbókina það sem kemur fram á fund-
inum, “ segja þeir félagar. „Þetta er fundur
númer 306!“
’Þetta er leynifélag. Við förumekki að uppljóstra neinu! Nei,nei, við erum kannski ekki meðnein stórkostleg leyndarmál en
við ræðum ýmis mál.
Björn Ingi Knútsson, Sigurður Garðarsson,
Örn Stefán Jónsson, Páll Hilmar Ketilsson,
Valur Ketilsson, Karl Jónsson, Guðmundur
Már Kristinsson, Ólafur Gunnarsson,
Guðlaugur Helgi Guðlaugsson og Gylfi
Kristinsson eru tíu af þeim fimmtán sem
hafa hist reglulega í þrjátíu ár.
Það var glatt á hjalla við
matarborðið og bauð Björn
Ingi upp á vín sem hann kom
sjálfur með frá Ástralíu.
6.11. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25
Fyrir 4-6
1 kg hreindýrahakk
1 pk Tuc-kex með beikonbragði
1 ½ smátt saxaður rauðlaukur
10 stk. einiber, mulin
1 msk. smátt saxað ferskt rósmarín
2 tsk. mulinn svartur pipar
1 tsk. salt
2 stk. egg
SÓSA
½ l mjólk
1 peli rjómi
1½ villisveppaostur
1 pakki kastaníusveppir
smá smjör til steikingar
1 grænmetisteningur
pipar
Myljið kexið og blandið saman öllum
hráefnunum. Hnoðið hakkið vel saman og
mótið í bollur. Steikið á pönnu upp úr
smjöri. Setjið bollurnar í eldfast mót og í
ofn í ca 15 mín. á 180 gráður.
Búið til sósuna á meðan. Setjið mjólk
og rjóma út á sömu pönnu og bollurnar
voru steiktar á. Rífið einn og hálfan vill-
isveppaost og hrærið vel saman við. Á sér
pönnu, steikið í smjöri einn pakka nið-
ursneidda kastaníusveppi. Bætið svepp-
unum út í sósuna. Myljið út í einn græn-
metistening og örlítið af svörtum pipar.
Þegar bollurnar hafa verið í ofni í 15
mínútur á að setja sósuna yfir og aftur inn
í ofn í aðrar 15-20 mín. á 180 gráðum.
Hreindýrabollur
með sveppasósu