Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.11.2016, Page 28
’
Bólgur hafa haft
lélegt orðspor og við
leitumst við að
drepa þær strax niður
með kælingu. En bólgur
eru náttúrulegt kerfi
líkamans til að græða vefi.
Kæling og hiti eru á meðal algengusturáða sem fólk notar til að létta á þrá-látum sársauka en þrátt fyrir að notk-
un þeirra sé algeng ríkir ákveðin óvissa um
hvernig eigi að beita þessum ráðum, segir
Haraldur Magnússon osteópati. Sunnudags-
blað Morgunblaðsins leitaði til hans um hve-
nær eigi að nota hita og hvænær að kæla. Í
starfi sínu sem osteópati er Haraldur vanur
að fást við margskonar stoðkerfisvandamál.
Algengt hefur verið að nota kælingu þegar
um bráðameiðsl er að ræða en Haraldur segir
að nú sé verið að draga úr þeirri notkun.
„Bólgur hafa haft lélegt orðspor og við leit-
umst við að drepa þær strax niður með kæl-
ingu. En bólgur eru náttúrulegt kerfi lík-
amans til að græða vefi. Ef þú lemur þig í
þumalinn með hamri bólgnar hann upp.
Bólguferlið er þannig að það kemur aukið
blóðflæði á staðinn og gegnumdreypið gegn-
um æðarnar eykst til þess að hleypa hvítum
blóðkornum á staðinn til að þau geti farið að
græða þennan skemmda vef. Það er verið að
draga mikið til baka að það eigi að kæla við
bráðameiðslum,“ segir hann en kæling virkar
þó verkjastillandi á þessum fyrstu mínútum.
Ekki kæla í upphafi meiðsla
Haraldur vísar til rannsóknar sem gerð var á
nagdýrum og skoðaði marða vöðva og bata-
ferli. „Þá kemur í ljós að enduruppbyggingin
var alls ekki jafn góð þegar kælt var. Þetta
upphaflega græðiferli var truflað. Í dag mæli
ég ekki með kælingu í upphafi, sérstaklega
ekki fyrir íþróttafólk því þú vilt að það grói
sem best, að vefirnir verði nógu sterkir til að
takast á við framtíðarálagið. Þetta er stór
breyting,“ segir hann og útskýrir nánar:
„Kælingin er sársaukadeyfandi og virkar vel
á þann hátt en með þeim kostnaði að endur-
uppbygging vefsins skerðist. Þetta sýna rann-
sóknir.“
Hingað til hefur helsta ráðið við meiðslum
verið HVÍL, hvíld, vafningur, ís og lyfta.
„Þetta hefur verið hefðbundið ráð ef þú snýrð
þig á ökkla. Þetta hefur alltaf verið sagt en
það voru bara ekki neinar rannsóknir sem
studdu við kælingarhlutann,“ segir Haraldur
en þetta þýðir þó ekki að aldrei eigi að nota
kælingu.
„Það á endilega að nota kælingu. Bólga í
þessum bráðameiðslum er góð fyrir líkam-
ann en það er þessi króníska bólga sem
allt bendir til að sé skaðleg fyrir okkur.
Kæling getur vel nýst einhverjum sem
er með króníska bólgu og lendir í
endurteknum meiðslum,“ segir Har-
aldur og leggur mikla áherslu á að
það sé ekki viðeigandi að kæla fyr-
ir æfingar.
Aðgát í útihlaupi
á veturna
Kæling fyrir æfingu getur gert
vöðva, sinar og liðbönd stíf
sem eykur hættuna á sliti þar
sem teygjanleiki þessara
vefja minnkar við kælingu og
þeir séu þannig ekki eins vel í stakk búnir
fyrir átökin, segir hann. Þetta hefur í för með
sér að fólk þurfi að gæta sín betur t.d. í úti-
hlaupi á veturna, passa sig að kólna ekki nið-
ur og vera rétt búið.
Verkjar fólk jafnvel meira í köldu veðri?
„Já, sérstaklega þegar það er lægð yfir
landinu. Haustið er erfitt fyrir marga gigt-
arsjúklinga. Það virðist vera að það verði
þrýstingsmunur inni í liðpokanum, sem veld-
ur verkjum,“ segir hann.
Hitapokar henta vel fyrir krónískar vöðva-
bólgur, segir Haraldur. Hitinn slakar á vöðv-
um og eykur blóðflæði sem skolar út úrgangs-
efnum og sér vefjunum
fyrir fersku blóði.
Dæmi um þetta eru
herðavöðvabólg-
ur, segir hann.
Einnig er
viðeigandi í
flestum til-
vikum að nota hitapoka fyrir átök en sjaldn-
ast á að nota hita eftir átök þar sem oft er um
bólguferli að ræða.
Víxlmeðferð virkar vel
Síðan er til svokölluð víxlmeðferð þar sem
meðferðin er hiti og kuldi til skiptis.
„Kæling dregur saman æðarnar á meðan
hiti er æðaútvíkkandi. Þegar þú kælir dragast
æðarnar saman og blóðflæðið minnkar og síð-
an kemur hitinn og opnar. Þetta er öflug að-
ferð og mikið notuð í náttúrulækningum. Hún
virkar vel sérstaklega þar sem það er mikil
stöðnun á blóðflæði,“ segir Haraldur en þessi
aðferð er áhrifarík fyrir til dæmis slæmar
vöðvaharðsperrur.
„Kæling getur vel nýst einhverjum sem er með króníska bólgu og lendir í endurteknum meiðslum,“ segir Haraldur.
Getty Images/iStockphoto
Hvort á að kæla eða hita?
Víxlmeðferð með hita og
kulda til skiptis er áhrifarík
við harðsperrum á meðan
gott er að hita vöðvabólgur.
Kælingu á hinsvegar
að nota eftir æfingu.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Eftir slys til að verkjastilla eða
eftir æfingar/átök sem tengjast
krónískum meiðslum.
Kæling notast til að verkjastilla og
vinna á bólgum staðbundið, t.d.
tognunum, bakverkjum og höfuðverk.
Hvenær á að kæla?
Leggið kælipoka á svæði. Passið að
ofkæla ekki, notið jafnvel viskastykki á
milli kælipoka og húðar.
Aðferð
Ekki lengur en 20 mínútur.
Hve lengi?
Notist fyrir átök sem tengjast
krónískum meiðslum og við
vöðvabólgu, gigt og stífleika.
Hvenær á að hita?
Leggið hitapoka á svæði.
Varist að hafa hann of heitan.
Aðferð
Ekki lengur en 20 mínútur.
Hve lengi?
HEILSA Haft er eftir Hippókratesi að ganga sé besta lyf mannsins. Það er umað gera að hafa þetta í huga um helgina, reima á sig gönguskóna og
halda af stað út í náttúruna eða nánasta umhverfi.
Ganga er besta lyfið
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.11. 2016