Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.11.2016, Blaðsíða 32
FERÐALÖG Pestana-keðjan opnaði nýlega tvö hótel, kennd viðfótboltastjörnuna Cristiano Ronaldo, á Madeira og íLissabon. Hvarvetna er eitthvað sem minnir á hetjuna
og án efa prýðilegt fyrir aðdáendur hans að gista þar.
Viltu gista hjá Ronaldo?
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.11. 2016
Marga dreymir um að farameð Síberíuhraðlestinnifrá Moskvu alla leið aust-
ur að Vladivostok við Japanshaf. Eg-
ill Þór Níelsson tók sér far með þess-
ari goðsagnakenndu lest á dögunum,
fór reyndar ekki alla leið til nefndrar
borgar heldur skipti um fararskjóta í
Irkutsk og fór þaðan með Mongólíu-
hraðlestinni suður til höfuðbogar
Kína, Beijing, og þaðan – með lest,
að sjálfsögðu – áfram heim til
Sjanghæ.
Ferðin var hluti af rannsóknar-
vinnu vegna bókar um efnahags-
þróun á norðurslóðum sem Egill
vinnur að ásamt Heiðari Guðjónssyni
hagfræðingi.
Hafði praktískt gildi
„Ég heyrði fyrst af Síberíuhraðlest-
inni í landafræðitíma í grunnskóla og
þótti forvitnilegt að þetta væri
lengsta lestarferð í heimi, en hafði þó
ekki neinar sérstakar hugmyndir um
að ég færi einhvern daginn með lest-
inni þvert yfir Evrasíu. Hugmyndin
kom upp þar sem ég starfa við Heim-
skautastofnun Kína í Sjanghæ og
ferðin hafði því praktísk gildi í að
komast frá stað a til b eftir þátttöku
á Hringborði norðurslóða, árvissri
ráðstefnu í Hörpu um málefni norð-
urslóða sem er sú stærsta sinnar teg-
undar á heimsvísu, og lagningu horn-
steins að byggingu kínversk-íslensku
norðurljósarannsóknastöðvarinnar í
Þingeyjarsveit,“ segir Egill við
Sunnudagsblað Morgunblaðsins um
ástæðu lestarferðarinnar.
Vert er að geta þess að þótt enn sé
oftast talað um Síberíuhraðlestina,
að minnsta kosti á Íslandi, fer lestin
ekki mjög hratt yfir á nútíma mæli-
kvarða. Á ensku nefnist hún Trans-
Siberian train og því líklega réttara
að tala einfaldlega um Síberíulestina.
En hvað sem því líður er ferðin
áhugaverð.
Eftir að hafa tryggt sér vegabréfs-
áritanir til Rússlands, Mongólíu og
Kína hófst ferðalagið á Keflavíkur-
flugvelli 13. október en lauk í
Sjanghæ að kvöldlagi 25. október.
Eftir um sólahringsferðalag frá
Keflavík var Moskva fyrsti áfanga-
staðurinn. „Moskva er afar tilkomu-
mikil borg sem vert er að sækja
heim,“ segir Egill.
Eftir tveggja sólahringa dvöl í höf-
uðborginni tók við fyrsti ferðalegg-
urinn með Síberíuhraðlestinni; 27
klukkustunda ferðalag til Yekater-
inburg. „Hún er fjórða stærsta borg
Rússlands og heitir í höfuðið á eigin-
konu Péturs mikla. Þó að viðveran í
Yekaterinburg hafi einungis verið 14
klukkustundir var kærkomið að
komast í heitt rennandi vatn og fjöl-
breyttara fæði,“ segir Egill en þar í
borg gisti hann á hóteli í fyrsta skipti
af þremur meðan á þessu langa
ferðalagi stóð.
Afar kærkomin sturta!
„Næsta lestarferð tók tæpan sólar-
hring, til Novosibirsk, sem er þriðja
stærsta borg Rússlands og stundum
kölluð höfuðborg Síberíu. Líkt og
víða í Rússlandi eru þar veigamiklir
minnisvarðar um leiðtoga Sovétríkj-
anna, svo sem í formi stórrar styttu
af Lenín í miðborginni, og sovéskur
byggingarstíll var í forgrunni á leið-
inni þó að einstaka nútímaleg hótel
og verslunarkeðjur slæðist með.“
Egill dvaldi eina nótt á hóteli í
Novosibirsk og síðasta næturdvölin
var í Irkutsk sem er um 70 km frá
hinu sögufræga Baikalvatni, sem er
Á brautarpallinum í Moskvu, rétt fyrir brottför með Síberíuhraðlestinni.
Vingjarnlegt viðmót
í Síberíuhraðlestinni
Egill Þór Níelsson starfar við Heimskautastofnun Kína í Sjanghæ. Eftir
ráðstefnuna Arctic Circle í Reykjavík tók hann Síberíuhraðlestina frá Moskvu
til Irkutsk og þaðan Mongólíulestina til Beijing með viðkomu í Úlan Bator,
höfuðborg Mongólíu. Frá Beijing tók Egill enn eina lestina á leiðarenda.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Egill Níelsson fyrir utan óperuhúsið í borginni Novosibirsk í Síberíu.
Lestarstöðin í Novosibirsk, sem er þriðja stærsta borg Rússlands og stundum nefnd höfuðborg Síberíu.
Sólin gengur til viðar í Síberíu á meðan lestin brunar áfram austur á bóginn.
Frá Irkutsk. Listaverk í Rússlandi endurspegla gjarnan bræðralag, segir Egill.
Fólk viðrar sig í stuttu stoppi á 27 klukkutíma leið frá Moskvu til Yekaterinburg.
MONGÓLÍA
SÍBERÍARÚSSLAND
KÍNA
KASAKSTAN
Leið Síberíuhraðlestarinnar
Úlan bator
Beijing
Sjanghæ
Moskva
Yekaterinburg
Novosibirsk Irkutsk
Moskva » Yekaterinburg
2026 (km 27 klukkutíma
ferð), stoppaði 14 klst í
Yekaterinburg og gisti
þar á hóteli.
Alls um 10.300 km
Það er örlítið lengra en bein loftleið
frá Reykjavík til syðsta hluta Brasilíu,
eða tæpir átta hringir kringum Ísland
á þjóðvegi 1.
Yekaterinburg » osibirskNov
1525 m (tæpur sólar-k
hringur á ferð í lestinni),
gisti eina nótt í Novosibirsk.
Irkutsk » Beijing
2469 km (51 klst)
með stuttu stoppi í
Úlan bator, höfuð-
borg Mongólíu.
Novosibirsk » Irkutsk
3325 km (36 klst),
gisti eina nótt í Irkutsk.
janghæS
1000 klst)
» Úlan bator
1113 km
batorÚlan ijingBe
1356