Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.11.2016, Blaðsíða 33
6.11. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
„Rússland er afar mikilvægt í
málefnum norðurslóða, ekki
síst þegar kemur að sam-
göngum í lofti, á láði og legi,“
segir Egill. Þetta var í fyrsta
skipti sem hann sótti Rúss-
land heim, en fyrir hafði hann
þó siglt meðfram Rússlandi
um Norðausturleiðina svo-
kölluðu, um Norður-Íshafið
frá Kína til Íslands, með ís-
brjótnum Snædrekanum árið
2012.
„Hugmyndin með ferðinni
var að fá betri tilfinningu fyrir
samgöngumátum á milli
Austur-Asíu og Norður-
Evrópu, um rússneskt yf-
irráðasvæði, sem á einvörð-
ungu eftir að aukast í tíðni og
umfangi næstu árin. Ekki síst
fyrir tilstilli „Belt and Road“
fjárfestingaráætlunar Kín-
verja, sem gerir ráð fyrir tí-
falt hærri upphæð til al-
þjóðlegra innviðafjárfestinga
en Marshalláætlunin á sínum
tíma, til að styrkja viðskipti
og samskipti Kína við um-
heiminn með tilheyrandi
áhrifum á efnahagsþróun á
norðurslóðum. Það getur því
reynst farsælt veganesti að
hafa góðan skilning á menn-
ingu, efnahagsmálum og
stjórnmálum þessara tveggja
stórvelda, og auknu tvíhliða
samstarfi þeirra, þegar mál-
efni norðurslóða eru krufin.“
Rússland
mikilvægt
dýpsta stöðuvatn í heimi og stærsta
ferskvatnsbólið. „Mér gafst ekki tími
til að fara að vatninu en í stað þess
skoðaði ég borgina sem er að mörgu
leyti með evrópskari brag en hinnar
tvær þrátt fyrir að vera land-
fræðilega lengst í austri. Ferðalagið
frá Novosibirsk til Irkutsk tók 36
klukkustundir og sturtuferðin í
Irkutsk stuttu eftir komuna á hótelið
var því sérstaklega kærkomin!“
Egill var alla leiðina í svefnvagni,
enda stysta ferð á milli staða um sól-
arhringur.
„Ég var alltaf í fjögurra manna
klefa ásamt heimamönnum innan
Rússlands en var í tveggja manna
klefa á fyrsta farrými frá Irkutsk til
Beijing í gegnum Mongólíu. Var að
vísu bara einn því enginn mætti í efri
kojuna!“ segir Egill.
Um borð í Mongólíulestinni voru
fyrst og fremst tveir hópar, annars
vegar pör eða einstaklingar á aldr-
inum 30-40 ára frá Vesturlöndum en
búsettir í Asíu, sumir með börn, ólíkt
rússnesku fjölskyldunum og farand-
vinnufólkinu sem höfðu verið klefa-
félagar Egils Þórs í Síberíuhraðlest-
inni. Þetta fólk virtist einfaldlega í
ævintýraleit. Hins vegar var um borð
fólk um það bil á eftirlaunaaldri sem
hafði átt þann draum lengi að fara
með lestinni.
„Það voru stutt stopp á þeirri leið
bæði í Mongólíu og Kína en eini
staðurinn þar sem ég fór út fyrir
lestarpallinn var Úlan Bator, höf-
uðborg Mongólíu, þar sem við
stoppuðum þó einungis í tæpa
klukkustund klukkan sex að
morgni.“
Í lestinni yfir Síberíu hafði Egill
undantekningarlaust verið sá eini
sem ekki talaði rússnesku, en hon-
um var þó ávallt vel tekið, segir
hann, „og það sem stendur einna
helst upp úr er einmitt vingjarnlegt
viðmót heimamanna sem var
ríkjandi í þessari 10.000 kílómetra
ferð,“ segir Egill Þór Níelsson.Frá ónefndri borg í Síberíu. Þar notast lögreglan við jeppa af gerðinni Lada.
Vistvænna prentumhverfi og hagkvæmni í rekstri
Með Prent+ fæst yfirsýn, aðhald í rekstri og fyrsta flokks þjónusta.
Prent+ er þjónusta fyrir fyrirtæki og stofnanir sem vilja hagræða
í rekstri prentumhverfis. Við aðstoðum þig við val á hagkvæmasta
prentbúnaði í samræmi við kröfur.
www.kjaran.is | sími 510 5520
’Lengsti hluti ferð-arinnar, frá Irktusktil Beijing, tók 51klukkustund með
fáeinum stoppum
Egill gluggar í eina þeirra sjö
bóka sem hann las á leiðinni.
VINNUR AÐ BÓK