Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.11.2016, Page 35
eins og sýndist. Hvað í ósköpunum gæti haggað hinni
glæstu mynd, spyr hinn. „Óvæntir atburðir, lambið
mitt, óvæntir atburðir.“ (Events, my dear boy,
events.) Ekki leið á löngu þar til kvennamál varnar-
málaráðherra, sem ófust inn á skrifstofu hermálafull-
trúa sovéska sendiráðsins, og síðan óvænt veikindi
forsætisráðherrans áttu þátt í að velta honum úr
sessi.
Eins og fyrr sagði tilkynnti Comey, forstjóri FBI,
á blaðamannafundinum að rannsóknum á máli Clin-
ton væri lokið. Blaðamenn sögðu þá að þótt Hillary
væri ekki gallalaus frambjóðandi og með óþægilega
pinkla í farteski sínu væri hún óneitanlega mjög
heppinn frambjóðandi. Heppin með forstjóra í FBI
og ekki síður heppin með mótframbjóðanda. Þetta
tvennt virtist hafa blúndulagt braut hennar til sig-
urs.
Tveggja metra maður
kveður sér aftur hljóðs
En þá urðu atburðir sem komu litlu drengjunum í
opna skjöldu. Og stóri strákurinn (Comey er tveir
metrar og þrír sentímetrar á hæð) lét til sín taka á
ný. Hann sendi bréf í þingið til að láta þá þar vita af
því að FBI hefði opnað glæparannsókn á Hillary
Clinton á ný. Forsetaframbjóðandinn var á ný kom-
inn með stöðu sakbornings.
Bréfið var aðeins þrjár málsgreinar. Þurrt og
óljóst eins og embættismönnum þykir fínast. En við-
brögðin urðu hvorki þurr né óljós. Sprengjugnýr.
Í bréfinu sagði þó ekkert um það hvaða upplýs-
ingar hefðu borist forstjóra FBI frá skrifstofu hans í
New York, þar sem mál meints barnaníðings,
Weiner, eiginmanns Huma Abedin, voru til rann-
sóknar. En Huma Abedin er nánasti aðstoðarmaður
Hillary Clinton, bæði í ráðuneytinu og eftir að fram-
boð til forseta hófst.
Það var meira að segja sagt í bréfinu að Comey
gæti ekkert fullyrt á þessu stigi um umfang né
hugsanlega þýðingu upplýsinganna!
Fáeinum dögum áður en þetta bréf var sent á milli
húsa í Washington birtist skoðanakönnun, gerð fyrir
Sjónvarpsstöðina ABC og dagblaðið Washington
Post, um fylgi forsetaframbjóðenda á landsvísu.
Hillary Clinton hefði nú 12% meira fylgi en Donald
Trump. Aldrei áður í þessari lotu hafði munurinn
verið svo afgerandi og nú hálfum mánuði fyrir kosn-
ingar. Næsta könnun, eftir bréf Comey, sýndi að
Trump væri með 1% fleiri atkvæði en keppinaut-
urinn. Nú, fjórum dögum fyrir kosningar, kom þriðja
könnun sömu aðila og er Hillary aftur komin með 3%
meirihluta. Þetta eru ótrúlegar sveiflur í fylgi á ör-
skömmum tíma. Aðrar kannanir sýna enn minni
mun.
Spennan eykst
Kannanir um fylgi á landsvísu segja ekki alla sögu.
Til dæmis má nefna að Hillary Clinton hefur yfir-
burðafylgi í stórríkjum eins og Kaliforníu og New
York. Það skiptir öllu að fá fleiri atkvæði en and-
stæðingurinn. Dugi 48% atkvæðanna til sigurs er lít-
ið upp úr því að fá 65%. Sá frambjóðandi sem mest
fylgi fær í ríki fær alla kjörmenn þess og þeir kjósa
forsetann.
Þess vegna horfa menn nú mest til þeirra ríkja þar
sem mjótt er á munum.
Einnig þar hafði Hillary Clinton góða stöðu fyrir
2-3 vikum. En það hefur breyst. Kannanir benda til
að Trump hafi unnið á síðustu daga. Það gerir mat á
könnunum erfiðara að stór hluti kjósenda hefur þeg-
ar kosið utan kjörstaða eða með póstkosningum.
Hafi staða Hillary verið sterkari þegar kosið var,
sem er líklegra, mun það halda þótt andrúmsloftið sé
að breytast núna. Sennilega er óhætt að segja að
fyrirvarinn sem sleginn var í Reykjavíkurbréfi hafi
vaknað til lífs. Það er ekki lengur útséð um það að
Hillary Clinton vinni kosningarnar. Þó má enn full-
yrða að hún sé líklegri til þess, en það er ekki úti-
lokað að Trump merji sigur.
Í augnablikinu er byrinn með honum. Hún hefur
tapað fylgi síðustu daga. Spurningin er þessi: Hefur
tapið náð botni eða er áfram hreyfing í sömu átt? Sé
hið síðara raunin aukast líkurnar á sigri Trump.
Á Íslandi var Sjálfstæðisflokkurinn með rétt rúm-
lega 20% í marktækum könnunum rúmlega viku fyr-
ir kosningar og jafnvel nær þeim.
En þá ákvað Birgitta kapteinn að hefja stjórnar-
myndunarviðræður. Vinstri græn, Samfylking og
Björt framtíð (sem þá var ekki gengin í Viðreisn)
ákváðu að mæta. Það var einbeittur vilji þeirra að
sýna ekki minna dómgreindarleysi en Birgitta.
Og úrslitin gjörbreyttust.
„Eitthvað óvænt, lambið mitt, eitthvað óvænt.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
6.11. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35