Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.11.2016, Side 38
LESBÓK Söngsveitin Fílharmónía syngur í Háteigskirkju á morgun, sunnudag,kl. 17. Flutt verða kórverk eftir m.a. Trond Kverno og William Byrd,
sem kórinn mun flytja í kórakeppni í Póllandi næsta sumar.
Fílharmónían í Háteigskirkju
38 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.11. 2016
H
ér í húsinu er góður
andi og gott að
skapa, enda bjó
þjóðskáld Dana
hérna um tíma,“
segir Hrafnkell Birgisson vöruhönn-
uður þegar hann tekur á móti blaða-
manni á vinnustofu sinni skammt frá
Konunglega leikhúsinu í hjarta
Kaupmannahafnar. Á framhlið húss-
ins við hliðina á lógói stúdíósins
BerliNORD, sem Hrafnkell á og
rekur, er skjöldur með nafni H.C.
Andersen sem bjó í húsinu að
Tordenskjoldsgade seint á nítjándu
öld. Þegar blaðamann ber að garði
eru aðeins nokkrir dagar í opnun
sýningar í menningarhúsinu á Norð-
urbryggju þar sem Hrafnkell frum-
sýnir í Danmörku nýja lampalínu frá
BerliNORD sem nefnist Tools You
Light sem hann hannaði í samvinnu
við Sebastian Summa og Pop Corn
Design.
Spurður hvers vegna hönnun hafi
orðið fyrir valinu á sínum tíma segir
Hrafnkell að listrænt nám hafi kitlað
hann frá unga aldri. „Samt munaði
sáralitlu að ég hefði orðið veður-
fræðingur, því ég var búinn að skrá
mig í jarðeðlisfræði við Háskóla Ís-
lands, enda hafði ég alltaf haft mik-
inn áhuga á veðurfræði,“ segir
Hrafnkell sem daðraði einnig við
drauminn um að verða leikari eða
flugumferðarstjóri. „Móðir mín var
myndmenntakennari minn þegar ég
var barn og það blundaði í mér list-
ræn hneigð sem varð öðru yfirsterk-
ari,“ segir Hrafnkell sem fór í teikni-
tíma eftir menntaskóla og dreif sig
að lokum í fornám í Myndlista- og
handíðaskóla Íslands áður en leiðin
lá til Þýskalands í fimm ára nám við
Listaháskólann í Saarbrücken. „Ég
sótti um í fjórum þýskum skólum og
komst alls staðar inn, en það gerði
útslagið um val mitt að Form, virt-
asta hönnunarblaðið í Þýskalandi,
gerði úttekt á hönnunarnáminu í
landinu og fjallaði lofsamlega um
skólann í Saarbrücken. Ég valdi
hann líka vegna þess hversu mikil
nálægð var þar milli myndlistar og
hönnunar.“
Kennslan veitir innblástur
Samhliða störfum sínum sem vöru-
hönnuður á Íslandi, í Danmörku og
Þýskalandi sl. 15 ár hefur Hrafnkell
sinnt kennslu við Listaháskóla
Íslands, Danmarks Designskole,
Myndlistaskólann í Reykjavík, Bau-
haus Universität í Weimar, Kunst-
hochschule Kassel og CCA í San
Francisco. „Ég hef alltaf sótt í að
kenna vegna þess að ég fæ svo mikið
út úr því að vinna með fólki sem drif-
ið er áfram af áhuga og er enn að
mótast,“ segir Hrafnkell og bætir
við að yngra fólk hafi oft opinn huga
sem sé gefandi.
„Það veitir mér mikinn innblástur
að vinna með yngra fólki,“ segir
Hrafnkell og rifjar upp að þegar
hann 2004 setti af stað verkefnið Vík
Prjónsdóttur hafi hann valið saman
hönnuði sem hann hafði að hluta til
kynnst í kennslu, en í hópnum voru
Brynhildur Pálsdóttir, Guðfinna
Mjöll Magnúsdóttir, Þuríður Rós
Sigurþórsdóttir og Egill Kalevi
Karlsson.
„Fyrir þremur árum stýrði ég
stóru verkefni við Danmarks
Designskole í samvinnu við þýska
postulínsframleiðandann Rosenthal
þar sem nokkrar hugmyndir nem-
enda fóru í framleiðslu hjá fyrirtæk-
inu, sem er mjög óvanalegt – en er í
raun staðfesting á því hversu vel
verkefnið heppnaðist og hversu góð-
ur skólinn hér er,“ segir Hrafnkell
en bætir við að því miður eigi skólinn
mikið undir högg að sækja. „Það er
sorglegt að horfa upp á það sem er
hér í gangi. Stjórnendur skólans
hafa verið skikkaðir til að taka inn
30% færri nemendur og voru að
segja upp 40 starfsmönnum í vik-
unni. Þá á að leggja niður brautir og
áfanga á meistarastigi sem nýbúið er
að þróa. Þetta er mjög mikið
áhyggjuefni,“ segir Hrafnkell og
bendir á að margir Íslendingar hafi
sótt sér menntun við skólann.
Hönnunarnám berskjaldað
Þar sem Hrafnkell hefur búið og
starfað í þremur löndum liggur beint
við að spyrja hvort hann skynji mik-
inn mun á stöðu hönnunar milli
landa. „Já, það er heilmikill munur. Í
Þýskalandi hefur hönnunarnám ver-
ið sjálfstæðara, en samtímis í nánum
tengslum við myndlist og arkitektúr.
Hér í Danmörku sprettur hönnun
nær eingöngu úr handverkinu og
kannski sökum þessa er hönnunar-
námið berskjaldaðra fyrir niður-
skurði en aðrar listgreinar. Á sama
tíma eru Danir gríðarlega stoltir af
hönnun sinni, en það nær e.t.v. fyrst
og fremst til þekktu nafnanna eins
og Arne Jacobsen, Poul Henningsen
og Kay Bojesen. Sumir sjá ekki
mikilvægi þess að nýsköpun í hönn-
un fái að eiga sér stað á eigin for-
sendum eins og í myndlistinni. Hér
virðist í dag of lítil viðurkenning á
því að hönnunarmenntun skili sér
óbeint til samfélagsins. Það er of
mikið horft beint á hagrænu mæli-
stikurnar, sem er áhyggjuefni því ég
hélt að hönnunarnámið væri betur
varið í ljósi menningararfleifð-
arinnar.“
Vinnur með söguna
Spurður nánar um lampalínuna
Tools You Light segir Hrafnkell
lampana, sem framleiddir eru úr
kopar, messing og áli, upphaflega
hafa verið hannaða fyrir um áratug
sem bökunarform úr áli undir heit-
inu Tools You Bake. Formin voru og
eru framleidd á litlu málmverkstæði
í Berlín sem nefnist Hugo Bräuer
Metallwaren. „Ég hef í hönnun
minni alltaf haft áhuga á samfélags-
legri ábyrgð, þ.e. hvar og hvernig
varan er framleidd. Það gerir mig að
einhverju leyti að hugsjónamanni,“
segir Hrafnkell og bendir á að með
samstarfinu við Hugo Bräuer
Metallwaren, líkt og með samstarf-
inu við Víkurprjón á sínum tíma, hafi
hann viljað nýta eitthvað sem væri
til. „Það hefur verið leiðarstef í
minni hönnun að vinna með söguna
og að nýta það sem er til, hvort sem
það hafa verið bollar eða verkstæði
með ákveðna tæknimöguleika og
verkfæri,“ segir Hrafnkell og bendir
á að verkstæðið í Berlín hafi áður
framleitt m.a. mótorhlífar og hljól-
koppa.
„Bökunarformin spruttu upp úr
löngun til að nýta rykfallin verkfæri
uppi í hillu og svo verða lamparnir til
úr rykföllnum bökunarformum,“
segir Hrafnkell kíminn og segir ekk-
ert launungarmál að auðveldara sé
að markaðssetja lampa en bökunar-
form. „Þegar við Sebastian hönn-
uðum bökunarformin vorum við ekk-
ert að spá í það hvort þau væru
söluvænleg, við vorum meira að
horfa á listræna gildið og skilaboðin
sem myndu mögulega felast í hlutn-
um. Þannig urðu þessi form til. Við
höfum ákveðinn einfaldleika að leið-
„Ég hef í hönnun minni alltaf haft áhuga á samfélagslegri ábyrgð, þ.e. hvar og hvernig varan er framleidd. Það gerir mig að einhverju leyti að hugsjónamanni.“
Morgunblaðið/Einar Falur
„Spennandi tímar framundan“
Hrafnkell Birgisson vöruhönnuður hefur í hönnun sinni alltaf haft áhuga á samfélagslegri ábyrgð. Ljós í ýmsum formum eiga
hug hans allan um þessar mundir, en lampalínan Tools You Light er nú til sýnis á Norðurbryggju í Kaupmannahöfn.
Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is