Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.11.2016, Side 45
6.11. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 45
Margt undarlegt á sér stað ísjónvarpi. Og sumt af þvígetur verið erfitt að búa
sig undir. Eins og til dæmis að fimm
ára gamall drengur syngi hástöfum
og kunni hvert orð í eitís-smellinum
Don’t You Want Me með tölvupopp-
bandinu Human League. Og það ár-
ið 2016.
Þetta gerðist sumsé í breska
framhaldsþættinum Bannorðinu
(The A Word) sem Ríkissjónvarpið
sýnir um þessar mundir á mánu-
dagskvöldum. Téður drengur er for-
fallinn tónlistaraðdáandi, hlustar
daginn út og inn gegnum heiðblá
höfuðtól, og hefur af einhverjum
ástæðum sérstakar mætur á eitís-
músík. Það er sama hvaða lag ber á
góma, hann þekkir það, flytjandann,
höfundinn og útgáfuárið. Eins og að
drekka vatn. Julian Cope-smellurinn
World Shut Your Mouth frá 1986 er í
sérstöku uppáhaldi hjá honum.
Greinist með einhverfu
Skýr tilvísun í því en drengurinn,
Joe Hughes, er einhverfur og grein-
ist strax í fyrsta þættinum. Þrátt
fyrir augljósar vísbendingar hafa
foreldrar hans verið í afneitun og
greiningin reynist þeim því afar
þungbær. Álagið hefur ennfremur
áhrif á stórfjölskylduna; móðurafinn
er eins og grár köttur á heimilinu og
hefur allt aðra sýn á það hvernig
bregðast beri við. Eins móðurbróðir
Joes og eiginkona hans sem nýflutt
eru í smábæinn, sem er sögusvið
þáttanna, frá Lundúnum til að
byggja samband sitt upp að nýju eft-
ir hliðarspor spúsunnar. Það er
kaldhæðni örlaganna að einn fremsti
sérfræðingur þjóðarinnar á sviði
einhverfu er einmitt maðurinn sem
kona móðurbróðurins hélt við og ber
augljóslega ennþá tilfinningar til
enda þótt hún segist fyrir alla muni
vilja bjarga hjónabandinu.
Foreldrar Joes þrýsta á hana að
leita til ástmannsins fyrrverandi,
Joe til heilla, og verður hún við því
að fengnu samþykki bónda síns. Í
andlegri stærð sinni segir hann já en
meinar auðvitað nei. Engist svo all-
an daginn sem fundurinn fer fram.
Ekki bætir úr skák að eiginkonan
svarar ekki í símann. Ítrekað.
Skaut hálfan bekkinn
Á heimilinu er einnig unglings-
stúlka, systir Joes litla, sem hverfur
hreinlega fyrir augum foreldra sinna
þegar bróðir hennar greinist með
einhverfuna. Þau steinhætta að sjá
hana og heyra. „Það kom óður nem-
andi í skólann í dag og skaut hálfan
bekkinn til bana,“ segir hún í ergelsi
sínu í þeirri veiku von að ná eyrum
þeirra.
„Ljómandi, elskan mín,“ ljúka for-
eldrarnir sundur einum munni.
Í ósýnileikanum sér unglings-
stúlkan sér leik á borði og hyggst
færa kærasta sínum meydóminn á
silfurfati. Þá er hún allt í einu trufl-
uð; ekki af foreldrunum, heldur
kokkálaða frændanum. Kannski eins
gott enda voru farnar að renna á
hana tvær grímur.
„Var ég að trufla eitthvað?“ spyr
frændinn sposkur.
„Almáttugur, nei. Við vorum bara
að læra,“ segir stúlkan rjóð í vöng-
um. Sá þó ekki fyrir að andartaki
síðar myndi gúmmíverja magalenda
á gólfinu. Hafði í fátinu límst við bak
kærastans.
Óopnuð.
Joe litli Hughes kann best
við sig í eigin heimi. Og
þar er glás af eitís-músík.
BBC/Fifty Fathoms
EINHVERFA Í FORGRUNNI Í BANNORÐINU Á RÚV
Haltu kjafti, heimur!
Á skjánum
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
SJÓNVARP Íþróttafréttamaðurinn Guðmundur Bene-
diktsson birtist í nýju hlutverki á Stöð 2 í vikunni; sem
matsveinn. Þátturinn, sem Guðmundur stýrir ásamt Evu
Laufeyju Hermannsdóttur á miðvikudögum, nefnist
Ísskápastríð og í hverjum þætti fá Eva og Guðmundur
til sín keppendur sem þau skipta með sér í lið. Keppnin
gengur svo út á það að í byrjun fá þau að velja einn ís-
skáp af nokkrum mögulegum og í hverjum ísskáp er
hráefni fyrir forrétt, aðalrétt og eftirrétt. Keppendur
og liðsstjórar þurfa svo að vinna innan ákveðins tíma-
ramma til að töfra fram þrjá girnilega rétti. Að lokum
fellur það í hlut dómaranna að velja sigurvegara kvölds-
ins. Dómarar eru áhugafólki um mat að góðu kunnir,
Siggi Hall og Hrefna Sætran. Röðin er tíu þættir.
Gummi Ben í eldhúsinu
Gumma Ben er
greinilega margt
til lista lagt.
Morgunblaðið/Eva Björk
MÁLMUR Bandaríska málmbandið Avenged
Sevenfold sendi á dögunum frá sér sína sjö-
undu hljóðversskífu og ber hún nafnið The
Stage. Um er að ræða konseptplötu sem
hverfist um gervigreind og sjálfstortímingu
samfélagsins. Hvorki meira né minna. Ellefu
lög eru á plötunni, þar á meðal lengsta lag
sveitarinnar frá upphafi, Exist, upp á tæpar
sextán mínútur. Nýr trymbill þreytir frum-
raun sína á plötunni, Brooks Wackerman, en
hann er sá þriðji sem starfar með Avenged
Sevenfold frá því upphaflegi trymbillinn,
Jimmy „The Rev“ Sullivan, sálaðist langt fyr-
ir aldur fram árið 2009.
Ný breiðskífa frá Avenged Sevenfold
M. Shadows, söngvari Avenged Sevenfold.
Hún var svo vinsæl á níunda áratugnum að ekki
kom annað til greina en að hún træði upp fyrst
kvenna í tónlistarsjónvarpinu MTV. Hver man ekki
eftir smellum eins og Hit Me with Your Best Shot,
Love Is a Battlefield, We Belong og Invincible?
Já, þú átt kollgátuna, lesandi góður! Við erum
að tala um Pat Benatar og enga aðra. Úr því við
erum að nudda okkur utan í eitís-músíkina hér á
síðunni blasir við að dusta rykið af henni. Hvað
varð eiginlega um Pat Benatar?
Patricia Mae Andrzejewski fæddist í New York á
því herrans ári 1953 og verður því 64 ára í janúar
næstkomandi. Faðir hennar var af pólskum ættum
en móðirin með þýskt, enskt og írskt blóð í æð-
um. Athyglisverð blanda.
Nafnið Benatar fékk hún hjá
æskuástinni sinni, Dennis Be-
natar, sem hún giftist nítján
ára gömul. Þau skildu sjö ár-
um síðar.
Benatar sagði upp starfi
sínu sem gjaldkeri í banka
átján ára að aldri og sneri sér
alfarið að söngnum eftir að
hafa séð Lizu Minelli á tón-
leikum. Það tók hana þó átta
ár að koma fyrstu breiðskíf-
unni í umferð, In the Heat of the Night, 1979. Ári
síðar kom hún lagi í fyrsta skipti inn á topp 10 í
Bandaríkjunum, fyrrnefndu Hit Me With Your Best
Shot. Eftir það var leiðin greið og
níundi áratugurinn samfelld sig-
urganga. Benatar hægði á sér eft-
ir það og síðasta breiðskífan, Go,
kom út 2003. Hún er þó enn að
túra og nærist á gömlu smell-
unum.
Benatar hefur alla tíð látið
réttindabaráttu kvenna sig varða.
Hún hefur verið gift eiginmanni
númer tvö í meira en þrjátíu ár,
gítarleikaranum Neil Giraldo, og
á með honum tvær dætur.
Nýleg mynd af Pat Benatar. Hún kemur enn fram.
HVAÐ VARÐ UM PAT BENATAR?
Fyrsta konan
á MTV
Pat Benatar á hátindi frægðar sinnar.
NORSKIR BRJÓSTDROPAR
RÓAR HÓSTA, DREGUR ÚR SÁRSAUKA Í HÁLSI
OG LOSAR UM Í ENNIS- OG KINNHOLUM.
DANSKIR BRJÓSTDROPAR
MÝKIR HÁLSINN OG STILLIR ÞRÁLÁTAN HÓSTA.
FÁST Í NÆSTA APÓTEKI
AUÐUNN JÓNSSON KRAFTLYFTINGAMAÐUR
DANSKIR FYRIR STERKA. NORSKIR FYRIR STERKARI!