Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.11.2016, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.11.2016, Blaðsíða 2
Hvað kemur til að Kronik er á leið- inni aftur í loftið? Mér fannst bara vanta slíkan þátt. Ég hef ver- ið búsettur erlendis síðastliðin 11 ár og hlust- aði þar mikið á BBC 1xtra, sem sérhæfir sig í svokallaðri „urban“-tónlist og fannst þess vegna vanta þátt hér heima sem sinnir þessari hiphop, grime, dancehall-tónlist eins og út- varpsþátturinn Kronik var að spila á sínum tíma. Síðan er svo mikil gróska í íslensku sen- unni að ég var eiginlega bara beðinn um að kýla þetta í gang. Hvað finnst þér um íslenska hiphop- menningu? Hún er frábær! Aldrei verið sterkari og gaman að sjá alla þessi íslensku listamenn vera að gera frá- bæra hluti. Hvaðan kemur nafnið á þættinum? Það er einfalt, uppáhaldsplatan mín á þeim tíma er þátturinn var settur í gang var The Chronic með Dr. Dre. Einnig þýðir nafnið eitthvað sem er langlíft og ávanabindandi og á vel við. Þátturinn var í loftinu í 15 ár, þar til ég flutti til útlanda. Er gott að vera kominn aftur heim? Það er fín tilbreyting, þar sem ég bjó úti svo lengi. En ég verð í rauninni bara með annan fótinn hérna heima, er að vinna nokkur verkefni í London en einnig hér heima, þannig að ég er ekki alveg fluttur. En ég kom nú aðallega til að geta verið meira með syni mínum, sem ég saknaði mikið þarna úti. Hvað er á döfinni? Þátturinn verður alla laugardaga frá klukkan 17-19 og hver veit nema einhverjir tónleikar séu í bígerð! Morgunblaðið/Árni Sæberg RÓBERT ARON MAGNÚSSON SITUR FYRIR SVÖRUM Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.11. 2016 Ritstjórn Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Þeir einstaklingar sem hafa menntað sig til kennara eiga langt ogstrangt háskólanám að baki og flestir hafa auk þess bætt við endur-menntun af ýmsu tagi. Að læra til kennara tekur nú fimm ár í háskóla, námið er almennt talið vandað og fólk með þessa góðu menntun á að lík- indum auðvelt með að fá störf við annað en kennslu. Útskrifaðir kennarar hafa aðra valkosti á vinnumarkaði en að næla sér í kennarastöðu í ein- hverjum af fjársveltum menntastofnunum sveitarfélaganna. Þess vegna verður að semja við kennara, semja vel og gera það strax. Við höfum einfald- lega ekki efni á því að missa hæft og vel menntað fólk út úr skólunum. Staðreyndir, sem ættu að vera vís- bendingar til viðsemjenda kennara um að í óefni stefnir, blasa við. Kennarastéttin er að eldast. Nýliðun í stéttinni er ekki næg til að halda í við brotthvarf kennara sem eru komnir á aldur. Kennarar sem eru búnir að kenna lengi og vilja minnka við sig eiga erfitt með það vegna þess að nýir fást ekki í staðinn. Að- sókn í kennaranám er of lítil. Þessi upptalning ætti í raun að duga og það er eiginlega óskiljanlegt að hún geri það ekki. Kennarar eru langþreyttir á aðgerðaleysi eins og uppsagnir undanfarið eru glöggt merki um. Þarf kannski ósköp einfaldlega að kosta meiru til? Eitt sinn sat ég á skólabekk og lærði smá í hagfræði. Þótt gráðan í hag- fræði hafi ekki litað starfsvalið nema að litlu leyti þá síaðist eitthvað smáveg- is inn úr fræðunum. Í hagfræðinni er mikið fjallað um hugtakið kostnað. Laun, hvort sem það eru laun kennara eða annarra, eru víst kostnaður fyrir þann sem greiðir. Sá sem greiðir laun þarf því, áður en stofnað er til kostn- aðar, að leggja einhvers konar mat á hvað hann má vera mikill. Séu taldar líkur á að mikil verðmæti skapist þá getur borgað sig að kosta miklu til. Séu ætluð verðmæti rýr þá er ástæða til að horfa í skildinginn. Stundum borgar sig að spara, en ekki alltaf. Erfitt er að leggja nákvæmt mat á verðmæti kennslu og virði þess að halda kennurum inni í skólunum í stað þess að missa þá í önnur störf. En ef til vill þurfa launagreiðendur kennara að hætta að telja aura og átta sig á að kennarar mega kosta fleiri krónur. Verðmætin sem skapast fyrir það fé sem varið er til kennslu og hærri launa kennara eru svo óskaplega mikil að kostnaðurinn skilar sér alltaf margfalt til baka. Kennarar í Ráðhúsi Reykjavíkur á föstudag. Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson Kennarar mega kosta Pistill Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is ’Ef til vill þurfa launa-greiðendur kennaraað hætta að telja aura ogátta sig á að kennarar mega bara alveg kosta fleiri krónur. Guðrún Gunnarsdóttir Það væri helst Katrín Jakobsdóttir. SPURNING DAGSINS Hver myndir þú vilja að yrði næsti forsætis- ráðherra? Gunnar Tryggvason Katrín Jakobsdóttir. Bára Dís Guðjónsdóttir Kata Jak, engin spurning! Jón Bjarni Baldursson Katrín Jakobsdóttir. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndina tók Ásdís Ásgeirsdóttir Athafnamaðurinn Róbert Aron Magnússon, iðulega þekktur sem Robbi Kronik eða Rampage, hefur starf- að sem plötusnúður, útvarpsmaður og umboðsmaður og átti þátt í uppgangi Hamborgarabúllunnar í Lond- on. Hann setti af stað útvarpsþáttinn Kronik árið 1993 sem ruddi veginn fyrir íslensku hiphopi. Eftir tíu ára hlé snýr þátturinn aftur á X-ið 9.77 og fer fyrsti þátturinn í loftið nú um helgina, laugardag kl. 17-19. Kýlir Kronik í gang á ný

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.