Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.11.2016, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.11.2016, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.11. 2016 „Værum ekki að þessu væri bláa hjartað ekki svona stórt“ Meistaraflokkur kvenna íknattspyrnu hjá Framsendi í vikunni frá sér yfirlýsingu þar sem leikmenn lýsa undrun sinni á því að ekki hafi enn verið ráðinn þjálfari til að búa liðið undir þátttöku í 2. deild næsta sumar. Sá sem þjálfaði liðið á síð- ustu leiktíð hætti í lok ágúst en nú, þremur mánuðum síðar, hefur enginn verið ráðinn í hans stað. „Við erum einfaldlega búnar að fá nóg,“ segir Silja Runólfsdóttir, einn leikmanna meistaraflokks Fram. „Við vorum mjög spenntar að fá nýjan þjálfara en þegar við byrjuðum að æfa eftir hlé í októ- ber var ekkert að frétta af þeim málum. Við höfum þurft að stjórna æfingum sjálfar sem gengur auð- vitað ekki til lengdar.“ Silja segir flokkinn ekki hafa fengið nein viðbrögð við yfirlýs- ingunni frá stjórn knattspyrnu- deildar Fram. Það sé í takt við annað en ítrekað hafi verið ýtt á eftir stjórninni. „Við höfum alltaf fengið sama svarið: „Við erum al- veg að fara að funda og ræða þetta mál!“ Síðan gerist lítið. Fyrirliðinn okkar sendi tölvupóst fyrir nokkr- um vikum og benti á, að við vær- um byrjaðar að missa frá okkur leikmenn vegna þessarar biðar eftir nýjum þjálfara. Hún fékk þau svör að það ætti að funda um það vikuna á eftir. Ég ítrekaði þennan póst svo tveimur vikum seinna og fékk þá þau svör að málið yrði skoðað.“ Silja segir þær þó eiga traustan bakhjarl í Júlíusi Guðmundssyni, stjórnarmanni, sem alltaf hafi bar- ist með kjafti og klóm fyrir hags- munum meistaraflokks kvenna. Til þessa hafi það þó ekki dugað til. „Það er undarlegt að málefni heils flokks séu alfarið á könnu eins manns. Júlíus hefur gert allt sem hann getur og meira til en ein- hvers staðar virðist þetta stoppa.“ Silja segir góðan kjarna, átta til tíu leikmenn, vilja halda áfram í Fram og hefur þessi hópur hist tvisvar í viku undanfarið til að æfa í Egilshöllinni. Byrjað er að molna úr hópnum og Silja segir þær í mesta lagi geta beðið í eina til tvær vikur eftir skýru svari um framtíð meistaraflokks kvenna hjá Fram. „Er þetta af eða á? Það er allt sem við viljum fá að vita. Önn- ur lið eru farin að æfa af fullum krafti og við erum hreinlega að missa af lestinni.“ Silja segir að þrátt fyrir að flest- ar þeirra séu ekki Framarar í grunninn vilji þær að halda áfram að leika fyrir Fram. „Þess vegna höfum við verið svona þolinmóðar. Við værum ekki að þessu væri bláa hjartað ekki svona stórt. Á móti kemur að við höfum metnað til að gera vel og þess vegna sættum við okkur ekki við þetta ástand.“ Silja segir tvo kosti hafa verið nefnda; annars vegar að ráða þjálf- ara til bráðabirgða fram að ára- mótum og meta stöðuna aftur þá og hins vegar að fara í samstarf við annað félag. „Hvað sem gerist þá viljum við helst halda hópinn.“ Silja er hugsi yfir samskiptunum við stjórn knattspyrnudeildar og er sár yfir því að stjórnin í heild hafi ekki gefið sér tíma til að setj- ast niður með leikmönnum og fara yfir málið. „Er til of mikils mælst að stjórn- in komi til okkar og segi að henni þyki þetta leiðinlegt og lýsi vilja til að greiða úr flækjunni sem upp er komin? Því miður er ekki hægt að skilja þetta öðruvísi en að stjórn- inni sé sama hvort við erum eða förum.“ Að sögn Silju er skortur á þjálf- urum ekki sennileg skýring því vit- að sé um þjálfara sem sýnt hafi starfinu áhuga. Silja segir útilokað að þessi staða gæti komið upp hjá meist- araflokki karla hjá Fram enda sé hann löngu farinn að æfa af kappi fyrir átökin í Inkasso-deildinni næsta sumar, með þjálfara, og þegar farinn að leika æfingaleiki. „Við höfum á tilfinningunni að við séum mjög neðarlega í bunkanum á borði stjórnarinnar og þetta eru auðvitað afleit skilaboð til yngri stelpna í félaginu. Hafi þær metn- að, þurfa þær þá bara að fara ann- að?“ Verið að gera upp á milli karla og kvenna Matthías Jochum Matthíasson, sem þjálfar 6. og 7. flokk stúlkna hjá Fram, stendur þétt að baki leik- mönnum meist- araflokks kvenna. Löngu ætti að vera búið að leysa þjálfaramálið og æfingar komnar á fullan skrið. „Árið 2016 er verið að gera upp á milli kvenna og karla hjá Fram. Við erum að tala um stórt og rótgróið félag, 108 ára, og það hlýtur að geta boðið upp á meist- araflokk kvenna,“ segir hann. Matthías furðar sig á því sem hann kallar skort á heildarstefnu þegar kemur að kvennaflokkum fé- lagsins. „Það er mikill efniviður í yngri flokkum kvenna hjá Fram og framtíðin ætti að vera björt. Það eru því mjög slæm skilaboð til yngri iðkenda að ekki sé hægt að ráða þjálfara fyrir meistaraflokk. Það er mjög auðvelt að túlka þau á þennan veg: Farið annað! Það er mjög dapurleg tilhugsun fyrir okkur þjálfarana að við séum bara að ala upp leikmenn fyrir önnur félög. Stefnan þarf að ná alla leið upp í meistaraflokk og það er mikilvægt fyrir yngri stelp- urnar að hafa fyrirmyndir í sínu félagi.“ Birna Sif Kristinsdóttir, Silja Runólfsdóttir, Áslaug Inga Bárðardóttir og Kristín Guð- mundsdóttir, leikmenn meistaraflokks kvenna í knattspyrnu hjá Fram. Morgunblaðið/Árni Sæberg Þremur mánuðum eftir að síðasti þjálfari hætti er 1. deildarlið Fram í knattspyrnu kvenna ekki enn komið með nýjan þjálfara. Leikmenn segjast hafa fengið nóg; þetta myndi aldrei líðast hjá meistaraflokki karla. Þær krefja félagið um svör. ’Allir leikmenn meistaraflokks karla eru með samninga, þvott áæfingafatnaði, sjúkraþjálfara á æfingum, tvo þjálfara auk mark-mannsþjálfara en aðeins nokkrar í meistaraflokki kvenna eru meðsamning, voru með einn þjálfara en eins og er engan. Úr yfirlýsingu leikmanna meistaraflokks kvenna í Fram. INNLENT ORRI PÁLL ORMARSSON orri@mbl.is Júlíus Guðmundsson, stjórn- armaður í knattspyrnudeild Fram, kveðst hafa fullan skiln- ing á óánægju leikmanna meistaraflokks kvenna með stöðu mála og harmar að ráðning þjálf- ara hafi dregist úr hömlu. Hann er sá stjórnarmaður sem mest hefur komið að þess- um flokki frá því að hann var endurvakinn árið 2010. Júlíus segir að oft hafi verið erfitt að manna lið meist- araflokks kvenna og reyndi verulega á það undanfarið ár. Meðal annars hafi liðið þurft að gefa leik í vetrarmóti, þar sem ekki náðist í lið. „Hópurinn í kringum liðið hefur verið fá- mennur og menn slást ekki um að starfa kringum svona rekst- ur. Það verður að segjast alveg eins og er. Þetta er sjálf- boðavinna og stundum erfitt að finna tíma. Fram vill halda áfram með lið í meistaraflokki kvenna og þess vegna höfum við verið að skoða mögu- leikana. Niðurstaðan var sú að hefja viðræður við annað félag á höfuðborgarsvæðinu um að senda sameiginlegt lið til keppni á næsta ári. Vilji er fyrir hendi hjá báðum félögum en því miður hefur ekki tekist að klára málið ennþá. Ég á ekki von á öðru en að það verði gert bráðlega,“ segir Júlíus sem vill ekki nefna hitt félagið að svo stöddu. Spurður hvort upplýs- ingaflæði hefði ekki mátt vera betra gagnvart leikmönnunum svarar Júlíus játandi. „Mér dett- ur ekki í hug að afsaka það. Það skrifast á okkur í stjórninni. Ég átti fund með stelpunum fyrir rúmum tveimur vikum og þeim á að vera kunnugt um áform fé- lagsins. Minn skilningur var sá að við værum sammála um að klára samkomulagið við hitt fé- lagið og leika undir merkjum beggja félaga næsta sumar.“ Júlíus segir af og frá að hér sé um metnaðarleysi að ræða. Þvert á móti hafi Fram rifið kvennastarf sitt upp fljótlega eftir aldamót með góðum ár- angri og mikill efniviður sé til staðar í félaginu. „Hér hefur enginn rætt um að leggja meistaraflokk kvenna niður enda væri það mikil afturför.“ Áform um að sam- einast öðru félagi Júlíus Guðmundsson Matthías Jochum Matthíasson

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.