Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.11.2016, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.11.2016, Blaðsíða 48
SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 2016 Freddie Mercury var tónelskum harmdauði, en hann lést af völdum alnæmis 24. nóvember 1991. Frægastur var hann fyrir starf sitt með breska rokkbandinu Queen, en lög þeirra fjórmenninga lifa enn góðu lífi. Um nokkurra ára skeið hefur staðið til að gera kvikmynd um líf Mercurys og Queen, Bohemian Rhapsody, en babb kom í bátinn þeg- ar leikarinn sem fara átti með aðalhlutverkið, breski háðfuglinn Sasha Baron Cohen, gekk úr skaftinu vegna ágreinings við Queen-liðana Brian May og Roger Taylor, sem verða tónlistarstjórar myndarinnar. Fyrr í þessum mánuði var tilkynnt að bandaríski leikarinn Rami Malek, sem þekktastur er fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum Mr. Robot, hefði verið ráðinn í hans stað. Við sama tækifæri var upplýst að Bandaríkjamaðurinn Bryan Singer myndi leikstýra myndinni. Hann er þekktastur fyrir The Usual Suspects og X Men-myndirnar. Tökur eiga að hefjast snemma á næsta ári. AFP Malek mun leika Mercury Rami Malek fær það verðuga verkefni að leika Freddie Mercury í Bohemian Rhapsody. Aldarfjórðungur var í vikunni liðinn frá andláti söngvarans Freddies Mercury. Freddie Mercury á tónleikum með Queen árið 1984. Sitthvað var í Dagbókarblöðum Reykvíkings í Morgunblaðinu á þessum degi árið 1936. Meðal annars þessi huggulega frétt ut- an úr heimi: „Um daginn fjekk kona ein í Póllandi eina milljón dollara sem borgun fyrir einn koss, sem hún hafði gefið á sínum ungu dögum, eða fyrir 50 ár- um. Það var með þeim hætti að Ameríkumaður hafði lofað að giftast henni og kysst hana, eitt sinn er þau hittust, en síðan svikið hana og farið til Am- eríku. En hann gleymdi henni aldrei nje kossinum, og hún var stöðugt í huga hans, þó hann ljeti aðeins þar við sitja. Eftir því sem árin liðu grædd- ist honum fje, og þegar hann dó, var hann orðinn auðugur maður. En í erfðaskránni hafði hann mælt svo fyrir, að stúlkan í Póllandi, sem nú var orðin gömul kona, fengi allar eign- irnar.“ Þar var og þessi skrítla: „Frænkan: Jeg vona, að pabbi þinn hafi lumbrað duglega á þjer fyrir óþekktina í gær? Drengurinn: Nei, hann sagði, að hann tæki það allt of nærri sjer að slá mig. Frænkan: Hann hlýtur að vera óvenju viðkvæmur, hann faðir þinn. Drengurinn: Já – í öxlinni, hann er með gigt.“ GAMLA FRÉTTIN Rándýr koss Þetta er ekki parið sem um getur í fréttinni, heldur hollenskt par í al- þjóðlegri kossakeppni löngu síðar. Ekki er vitað um verð þess koss. Reuters ÞRÍFARAR VIKUNNAR Hlynur Hallsson safnstjóri Listasafnsins á Akureyri Tinni blaðamaður Albert Guðmundsson knattspyrnumaður ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18, mánudaga - föstudaga 11-18:30 FRIDAY Crystal. Glas. Ø8 x 10 cm. 695 kr. Nú 278 kr. Vínglas. Ø8 x 15 cm. 895 kr. Nú 358 kr. Kampavínsglas. Ø6 x 20 cm. 595 kr. Nú 238 kr. Desertskál. Ø12 x 10 cm. 795 kr. Nú 318 kr. 6 stk. af 4 mismunandi gerðum. 18.480 kr. Nú 7.392 kr. Dream. Koddi. 60 x 63 cm. 3 hólf. Visco. 3.995 kr. Nú 2.397 kr. Dream. Sæng. 135 x 200 cm. 100% pólýester. 7.995 kr. Nú 4.797 kr. Cookie. Kökudiskur. 3 hæðir. 32 cm. 3.995 kr. Nú 1.598 kr. Link-stóll. Plastseta. Ýmsir litir. 12.900 kr. Nú 7.450 kr. Stool-fellikollur. Hvítur eða svartur með viðarlitaðri setu. 2.495 kr. Nú 998 kr.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.