Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.11.2016, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.11.2016, Blaðsíða 18
Gunnar Eyjólfsson og Kristbjörg Kjeld eftir að hafa tekið við sérstökum heið- ursverðlaunum á Edduverðlaununum árið 2001. Þau léku margoft saman. Morgunblaðið/Jim Smart Gunnar ásamt yngri dóttur sinni, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur alþing- ismanni á frumsýningu á Hamskiptunum eftir Kafka í Þjóðleikhúsinu. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Gunnar farðaður í Íslandsbanka fyrir upptökur á sjónvarpsmynd eftir Ágúst Guðmundsson sem fylgist með. Hann lék bæði í sjónvarpi og kvikmyndum. Morgunblaðið/Árni Sæberg E inu sinni þegar Gunnar Eyjólfsson kom út úr Þjóðleikhúsinu að lokn- um vinnudegi var orðið áliðið kvölds og hann að flýta sér út á bílastæðið. Þá kom mað- ur gangandi á móti honum; kom ofan af Hverfisgötu og var auðsjáanlega á leiðinni ofan á Lindargötu. Hann stöðvaði Gunnar á bílastæðinu og sagði: „Gunnar Eyjólfsson?“ Gunnar stoppaði og sagði „já“. „Ég ætla að segja þér dálítið,“ sagði maðurinn. Gunnar gekk til hans og sagði: „Hvað er það?“ Þá benti maðurinn mjög stoltur og ákveðinn á Þjóðleikhúsið og sagði: „Ég hef aldrei á ævi minni stigið mínum fæti inn í þetta hús.“ Gunnar hugsaði sig um andartak, horfði á manninn fullur meðaumk- unar, rétti honum höndina og sagði: „Ég samhryggist þér. Mikið ert þú fátækur maður í dag.“ Þessa sögu rifjaði Gunnar upp hér í Morgunblaðinu á hálfrar aldar af- mæli Þjóðleikhússins árið 2000 og segir hún líklega allt um viðhorf hans til leiklistarinnar. Þótti vænt um öll hlutverk Gunnar glímdi við ófá hlutverkin á löngum og farsælum ferli. Í samtali hér í blaðinu sumarið 2013 spurði Gunnþórunn Jónsdóttir hvaða hlut- verk stæði upp úr. „Á ég að segja þér eitt, ég hef verið spurður að þessu svo oft og svarið er það að ég get ekki gert upp á milli þeirra, mér þykir svo vænt um þau öll. Jafnvel þau sem ég átti erfitt með og gat kannski ekki túlkað eins vel og aðrir hefðu getað gert. Ég er þakk- látur fyrir það traust sem mér hefur verið sýnt þegar ég hef verið beðinn að leika hin ýmsu hlutverk. Þetta er ekki bara einleikur, heldur eru það mótleikararnir sem skipta máli. Það eru mótleikarar sem eru svo gefandi, en það eru líka til leikarar sem aðeins afgreiða hlutina og geta jafnvel ekki horft í augun á manni. Góður leikari manar fram það besta hjá reynslu- litlum leikara, það eru þó sumir sem vilja ekki gera það, því sá reynslu- minni gæti orðið betri en þeir sjálfir,“ sagði Gunnar og hló. Hann ítrekaði að hann hefði verið heppinn með mótleikara í gegnum tíðina. „Það er svo yndislegt að eiga góða mótleikara, þeir ögra og laða um leið fram það besta í manni. Auðvitað get ég ekki annað en minnst á leik- konu sem hefur leikið mikið á móti mér og manað fram gott í mér, það er Kristbjörg Kjeld.“ Tímaskynið mikilvægt Í sama viðtali lagði Gunnar áherslu á að það skipti máli að hafa gott tíma- skyn í leiklistinni. „Það þarf að vera taktur og tímaskyn, ef þú ætlar að spila á hljóðfæri þá þarftu að hafa þennan innri takt. Sumir hafa hann ekki en aðrir sem hafa hann geta orð- ið framúrskarandi tónlistarmenn,“ sagði Gunnar. „Í þessu samhengi rifj- ast upp þegar við Bessi Bjarnason og Valur Gíslason lékum í þriggja manna verki Harolds Pinters, Hús- vörðurinn. Það kemur að áhrifamiklu eintali og í handritinu stendur að það eigi að verða þögn, svo löng að áhorf- endur haldi að viðkomandi leikari hafi gleymt textanum. Það reyndi á þögnina og tímaskynið. Það gerðist tvisvar þegar þögnin mikla kom að úr sal heyrðist rödd sem ómaði um allt leikhúsið: „Nú hefur Gunnar gleymt textanum“. Þetta var ægilega gott leikrit.“ Geta ekki leikið í leikhúsi Margt breyttist í leiklistinni í tíð Gunnars og hann var oft og iðulega spurður út í þróunina, meðal annars í samtali sem höfundur þessarar sam- antektar átti við hann hér í blaðinu haustið 2009. Var þar rætt um þá þró- un að sumir leikarar færu beint úr leiklistarskóla í kvikmyndir. „Þetta er að gerast alls staðar í heiminum. Í Bretlandi, Bandaríkj- unum og víðar eru komnir skólar þar sem bara er kenndur kvikmynda- leikur. Sumir leiksviðsleikarar eru orðnir svo gripnir af þessu að þegar maður horfir á þá í sjónvarpsþáttum ætla þeir að vera svo yfir sig eðlilegir „Sá sem telur sig full- kominn er staðnaður“ Gunnar Eyjólfsson, einn ástsælasti leikari þjóðarinnar undanfarna áratugi, lést í vikunni, níræður að aldri. Sunnudagsblað Morgunblaðsins minnist hans hér í myndum og orðum sem hann lét sjálfur falla hér í blaðinu. Orri Páll Ormarsson tók saman orri@mbl.is Leikritið Fjögur hjörtu eftir Ólaf Jóhann Ólafsson sýnt í Loftkastalanum, Bessi Bjarnason, Gunnar, Rúrik Haraldsson og Árni Tryggvason í hlutverkum sínum. Morgunblaðið/Kristinn Gunnar ásamt kollegum sínum, Baltasar Kormáki og Eddu Heiðrúnu Backman, leikkonu ársins, á Grímunni 2003. Edda féll sem kunnugt er frá fyrr á þessu ári. Morgunblaðið/Arnaldur Morgunblaðið/Kristinn Gunnar Eyjólfsson. Fæddur 24. febrúar 1926, dáinn 21. nóvember 2016. MINNING 18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.11. 2016

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.