Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.11.2016, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.11.2016, Blaðsíða 24
Uppskriftin er samsetning af mjög hollri og nærandi máltíð sem er frábær sem nesti dagsins ein og sér eða sem aðalréttur með salati. Prótínblandan er blanda af spíruðum baunum, ertum, linsum og fræjum. Henni er blandað saman við pestó, sólblómagrös og piccolotómata eða kon- fekttómata. 75 g spíruð prót- ínblanda frá Ecospíru 25 g sólblómagrös frá Eco- spíru 5 stk piccolotómatar PESTÓ 50 g steinselja 1 askja fersk basilikublöð, ca 25 gr 1 dl blanda af graskersfræjum og kasjú- hnetum (gott að útvatna áður í 2 klst.) 1 hvítlauksrif pressað 1½ msk næringarger 1½ msk hemp fræ 1½ dl ólífuolía (má vera aðeins meira, fer eftir hve þykkt pestóið er) ¼ tsk sjávarsalt smá pipar Hneturnar muldar fyrst í matvinnsluvél, ekki fín- malaðar, hvítlauknum blandað saman við ásamt steinseljunni, basilikublöðunum, næringarduftinu og hempfræjunum. Ólívuolíunni síðan hellt rólega útí pestó- ið. Að síðustu er smá salti og pipar bætt úti eftir smekk. Gott að hafa pestóið frekar grófmalað. Spíruð prótínblanda í pestó með sól- blómagrösum Ljósmynd/Áslaug Snorradóttir Prótínblandan er sett á disk (box ef nesti) ásamt sólblómagrösunum og pestósósunni hellt yfir. Pic- colotómatarnir skornir til helminga og settir með. Spírublandan er mjög rík af næringarefnum, m.a. prótínum, steinefnum og vítamínum, einkum, A, B1, B5, B6 vítamínum, C og K. Mungbaunir eru góð uppspretta af prótíni, sérstaklega amínósýrunni methionine sem talin er hafa róandi áhrif á líkamann. Linsur eru einnig ríkar af próteini og járni og eru mjög góð uppspretta af C- vítamíni. Fenugreek er blóð- og nýrnahreinsandi. Ríkt af fosfór og járni, auk snefilefna og inniheldur ens- ímið U, sem verndar meltingarveginn og magann. Mjög gott við magabólgum. Ertur eru ríkar af pró- teini og kolvetnum, trefj- um og vítamíninu A, ásamt mikilvægum steinefnum, m.a. járni, kalíum og magnesíum. Þá er sólblómagrösin einstakt of- urfæði með ríkulegt magn næringarefna og blaðgrænu. 1 gulrót (2 litlar) 2 lífræn epli, kjarnhreinsuð 4 dl vatn 2 msk rifinn engifer 4 msk sítrónusafi 1 msk chiafræ 1/4 tsk mulin söl blanda vel og síðan bæta við 20 g brokkólíspírur 20 g sólblómaspírur 25 g prótínblanda blanda létt saman við og svo bara neyta og njóta áhrifanna! Spírandi orku- drykkur, full- komin næring MATUR Sunnudagsmogginn mælir með virkilega góðri samsetningu, bökuðum rauð-rófum og feta osti eða geitaosti. Þetta tvennt bragðast alveg einstaklega velsaman. Líklega eru fleiri tegundir sem fara vel saman með rauðrófunum, endilega að prófa sig áfram. Paraðu rauðrófur með osti 24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.11. 2016 REYKJANESBÆ Hafnargötu 61 | 230 Reykjanesbær | Sími: 421 7104 Þú finnur jólagjöfina hjá okkur Siemens - Adidas Under Armour - Cintamani Katrín H. Árnadóttir, við-skipta- og umhverfisfræð-ingur, tók ákveðna U- beygju í lífinu þegar hún varð ást- fangin af spírum og ákvað að hefja framleiðslu á þeim hér á landi. „Af heilsufarsástæðum sem ég hafði glímt við um nokkurt skeið fór ég til Púertó Ríkó á heilsustofnun sem byggist á spíruðu fæði og dvaldi þar í hálfan mánuð. Það var alveg nýtt fyrir mér á þeim tíma að neyta spír- aðs fæðis í öll mál en áhrifin létu ekki á sér standa, ég upplifði ótrú- lega mikla orku og vellíðan bæði andlega og líkamlega. Þegar ég kom heim neytti ég eingöngu lifandi fæð- is í um eitt ár og leið alveg dásam- lega,“ segir Katrín. Það leiddi til þess að hún fór að huga að því að gera þetta fyrir alvöru og koma þessu á markað og árið 2012 fór hún að framleiða nokkrar tegundir. „Ég valdi einkum þær sem höfðu bestu eiginleikana með tilliti til heilsu skv. rannsóknum og sem ég hafði sjálf reynslu af. Það voru brokkolíspírur, radísuspírur, alfalfa og blandaðar baunir, ertur, linsur og fenugreek.“ Opnaði SpíruBarinn Katrín spírar eingöngu lífræn og ómeðhöndluð fræ en hugmynd henn- ar í upphafi var ekki eingöngu að selja ferskar spírur heldur einnig aðra matvöru sem unnin er úr spír- uðu hráefni og þá þurrkuðu. „Það var síðan í sumar að ég opn- aði SpíruBarinn í Krónunni, Flata- hrauni. Þar er nú hægt að kaupa ferskar spírur, spírudrykki, spíruð frækex, spíraðar möndlur og spíraða fræblöndu sem og fræ og baunir til spírunar og spírunarpoka með leið- beiningum um hvernig á að spíra. Einstakur hollustubar!“ En hvers vegna spírur? „Það sem greinir spírur frá öðrum matvælum er gnægð ensíma sem eru í spírum. Í stað þess að nota orku líkamans og eigin ensímforða við að brjóta niður fæðuna brýtur ensím spírunnar næringarefnin nið- ur í það form sem líkaminn getur nýtt sér og skilar út í blóðið í gegn- um slímhúð meltingarfæranna. Á þennan hátt sparar spírað fæði orkubirgðir líkamans. Um leið og það gefur líkamanum hágæða nær- ingu og orku eykur það möguleika líkamans á endurnýjun og heldur líkamanum ungum og orkumiklum. Með aldrinum minnkar ensímforði okkar til að melta fæðu og er því mikilvægt að neyta ensímríkar fæðu til að líkaminn fái þá næringu sem hann þarfnast,“ segir Katrín. „Hvert fræ er forðabúr hverrar plöntu og inniheldur næringarefni hennar. Þegar réttar aðstæður eru fyrir hendi, einkum vatns og hita, byrjar fræið að spíra og leysir úr læðingi gríðarlega mikla orku. Náttúruleg efnabreyting á sér stað. Ensím verða til og umbreyta næring- arefnum fræsins í þá næringu sem plantan þarfnast til vaxtar. Spírur er gott að borða daglega með öllum mat sem hver og einn er vanur að borða, í græna drykkinn, ofan á brauð, í salatið, ofan á pitsuna, í vefj- una, með fiski eða kjöti, það er hægt að borða spírur með nánast öllum mat.“ Spíran, sann- kallað ofurfæði Katrín er mikill aðdáandi spíra. Katrín er konan á bak við Ecospírur sem hún stofnaði árið 2012. Hún segir það gott fyrir líkamann að neyta spíra sem innihalda mikið magn mikilvægra trefja og vítamína sem gagnast til að halda góðri heilsu út lífið. Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.