Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.11.2016, Blaðsíða 26
Mikið er lagt upp úr því áHeilsustofnuninni íHveragerði að hafa mat-
inn heilsusamlegan, næringarríkan
og bragðgóðan. Sérstök áhersla er
lögð á grófmeti úr jurtaríkinu eins og
til dæmis baunir, hýðishrísgrjón, ým-
iss konar heil korn og svo auðvitað
grænmeti og ávexti. Stefna heilsu-
hælisins er að hafa sem minnst af
unnum matvælum og er allur matur
eldaður frá grunni á staðnum.
Matsalurinn er ekki aðeins opinn
fyrir dvalargesti heldur er opið fyrir
gesti og gangandi að kaupa sér há-
degisverð alla daga vikunnar. Hægt
er að borða á staðnum eða taka með.
Fallegur matur í kroppinn
„Það sem hefur breyst hér á síðustu
árum er að það er búið að færa meiri
þekkingu inn í samsetningu matar-
ins. Halldór Steinsson yfirmat-
reiðslumaður og starfsfólkið í eld-
húsinu eru orðin meðvitaðri um hvað
þau setja ofan í sig og hvað ekki,“
segir Ingi Þór Jónsson, markaðs-
stjóri Heilsustofnunar Náttúru-
lækningafélags Íslands. „Maturinn
er orðinn svo fallegur og bragðgóður
og mikið úrval af fjölbreyttri ofur-
fæðu og flottu hráefni. En þessi vitn-
eskja kemur ekki á einum degi, eða
upp úr einni bók. Það eru mikil fræði
á bak við fæðuna.“
Á Heilsustofnun er fiskur fram-
reiddur tvisvar í viku en alla aðra
daga er úrval grænmetis- og bauna-
rétta ásamt súpu og hlaðborði af sal-
ati, ávöxtum og sýrðu grænmeti.
Ekkert kjöt og afskaplega lítið er um
mjólkurvörur. „Það er búið að taka
mjólkurvörur mikið út úr matnum
hérna, enda geta þær verið bólgu-
myndandi. Hér áður var mikið um
rétti í rjómasósu eða þvíumlíkt. En
eftir að það var tekið út komu margir
til okkar sem tóku eftir því að ýmsir
kvillar sem höfðu hrjáð viðkomandi,
eins og útbrot og annað, höfðu horfið
eftir að þeir höfðu neytt fæðunnar
sem hér er í nokkra daga. Það gerir
þetta hreina fæði,“ segir Ingi Þór.
Maturinn á Heilsustofnun hefur
vakið mikla lukku og segir Ingi Þór
að margir leggi leið sína úr höfuð-
borginni austur til að sækja sér fiski-
bollur sem eru gerðar í eldhúsinu á
staðnum og hægt er að kaupa til að
taka með og elda heima. „Þær hafa
notið mikilla vinsælda, fiskiboll-
urnar. Draumurinn okkar er síðan að
vera með okkar eigin vörulínu, beint
frá býli. Eitthvað sem við fram-
leiðum á staðnum. Það kemur að
því,“ segir Ingi Þór að lokum.
Ljósmyndir/Áslaug Snorradóttir
Spírandi kartöflu-
salat með radísum,
dilli og dressingu.
Endalaus orka.
Litríkt salat af kross-
blómaætt. Brokkolí, gult og
fjólublátt blómkál á gúrku-
sneiðum ásamt radísum.
Alls konar góðgæti á lauf-
blaðsplatta, íslensk upp-
skera með suðrænu
flæði. Bananalaufið er úr
gróðurhúsi Garðyrkju-
skólans í Hveragerði.
Leynda perlan
handan
heiðarinnar
Á Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands
er litið á matinn sem hluta af fræðslu og meðferð
gestanna en hver sem er getur komið við og
keypt sér hádegisverð. Áhersla er lögð á hreint
fæði og að elda allt frá grunni á staðnum.
Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is
’Maturinn er orðinnsvo fallegur og bragð-góður og mikið úrval affjölbreyttri ofurfæðu og
flottu hráefni.
Kjörið aðventusalat,
raspaðar rauðrófur,
jarðarber og baunagras.
Stútfullt af ást og gleði.
Ingi Þór Jónsson og Halldór Steinsson.
Hrökkkex-samloka
með baunum, avókadó
og blönduðum spírum.
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.11. 2016
MATUR